Morgunblaðið - 13.07.2009, Page 28

Morgunblaðið - 13.07.2009, Page 28
Umfjöllunarefni My Sister’sKeeper er svo átakanlegtað það eitt vekur ótelj-andi erfiðar spurningar sem jafnvel er útilokað að svara. Svo öllum líki, a.m.k., er jafnviðkvæmt efni og barátta fjölskyldu við að halda lífinu í dauðvona dóttur á tán- ingsaldri vandmeðfarið, svo ekki sé meira sagt. Í þessu tilfelli er hand- ritið byggt á bók eftir Jodi Picault, sem gerir viðfangsefnið ekki auð- veldara en öllu frekar erfiðara, bók- in er vel skrifuð og listformið nær betri tökum á harmþrungnu efninu. Kvikmyndagerðum slíkra verka hættir hinsvegar til að ganga skref- inu of langt og hér eru notuð meðöl í öllum verðflokkum til að spila á við- kvæmustu tilfinningar áhorfenda. T.d. er treyst um of á vandasamar lausnir með mörgum, væmnum tón- listarmyndböndum og óhóflegri notkun ljósmynda frá bestu stund- um þessa litla, samþjappaða sam- félags. Sem fyrr segir er My Sister’s Keeper byggð á metsölubók um bar- áttu fjölskyldu við ólæknandi hvít- blæði eldri dótturinnar, Kate (Vassi- lieva). Hún kostar miklar fórnir, mestar hjá Önnu (Breslin), yngri systurinni, sem var getin í þeim til- gangi, að því er virðist, að vera líf- færabanki fyrir stóru systur. Nú er komið að því að Anna vill segja stopp, hingað og ekki lengra, ég á mitt líf og það hefur enginn siðferði- legan rétt til að gera mér það óbæri- legt. Hún leitar til Alexanders (Baldwin), valinkunns lögfræðings sem er þekktur fyrir að taka að sér mannúðarmál – og Anna gerist skjólstæðingur hans í framhaldinu. Hitt vitum við ekki að það liggja fleiri og mikilvægari ástæður til grundvallar málaleitan Önnu. Cassavetes gerði The Notebook, eina vinsælustu klútamynd síðari ára, og sækir á sömu mið á ný. Hann smalar saman að mestu trúverð- ugum leikhóp til að manna hlutverk fjölskyldu á líknardeild. Breslin, sem er ógleymanleg öllum þeim sem sáu hana leika Olive litlu í snilldinni Little Miss Sunshine, gerir það sem hún getur til að halda myndinni á floti í táradalnum. Sama máli gegnir um Vassilievu, sem gerir krabba- meinssjúklinginn unga fullan af hlýju og hugrekki. Diaz fer með hlutverk móðurinnar, sem vill hvorki heyra né sjá neitt annað en það sem hún kýs. Diaz er kunnust fyrir glam- úrhlutverk, en hér reynir á til þessa vannýtta túlkunarhæfileika og hún virðist ekki alveg með á nótunum, ofleikur og er fjarlæg, kannski með hugann við Óskarsverðlaunin. Pat- rick afgreiðir föðurinn á eðlilegri og hófstilltari nótum, líkt og Ellingson, sem leikur bróðurinn í fjölskyldunni. Síðan kemur til kasta tveggja hæfi- leikaríkra leikara sem bregðast ekki nú frekar en endranær, Cusack, sem leikur sorgbitna móður og dómara, og enn frekar Baldwin, sem kemur með sanna nótu í myndina. Hins vegar vekja málaferlin sjálf áleitnar spurningar sem er svarað los- aralega. Ástæða er einnig til að geta leikarans í hlutverki aðallæknis Kate, og ástarævintýri sem Kate á með öðrum sjúklingi er raunsann- asti tilfinningapunktur mynd- arinnar. My Sister’s Keeper fæst við ein- staklega erfitt umfjöllunarefni sem hefur snert okkur flest meira og minna persónulega. Er hún ein- hverjum sáluhjálp frekar en meló- dramatískt ferðalag um stöðvar taugakerfisins? Svari nú hver fyrir sig. saebjorn@heimsnet.is Regnboginn, Laugarásbíó, Há- skólabíó My Sister’s Keeper – Á ég að gæta systur minnar? bbmnn Leikstjóri: Nick Cassavetes. Aðalleik- arar: Cameron Diaz, Abigail Breslin, Alec Baldwin, Jason Patrick, Sofia Vassilie, Heather Wahlquist, Joan Cu- sack, Thomas Dekker. 105 mín. Banda- ríkin. 2009. SÆBJÖRN VALDIMARSSON KVIKMYND Átakanleg Anna, yngri systirin, var getin í þeim eina tilgangi, að því er virðist, að vera líffærabanki fyrir stóru systur og finnst komið nóg. Kate kveður lífið MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. JÚLÍ 2009 SACHA BARON COHEN SNÝR AFTUR Í EINHVERRI SNARKLIKKUÐUSTU OG FYNDNUSTU MYND SÍÐARI ÁRA MYND SEM ÞÚ MÁTT EKKI MISSA AF HHHH „BETRI EN BORAT COHEN ER SCHNILLINGUR!“ – T.V. KVIKMYNDIR.IS ATH: FYRSTA SÝNING ER KL. 13:30 Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI / ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI BRUNO kl. 4D - 6D - 8D - 10D - 11D - 12D 14 DIGITAL THE HANGOVER kl. 4 - 6 - 8- 10:20 12 BRUNO kl. 2 - 4 - 6 - 8D - 8:30 - 10:10D - 10:30 14 DIGTAL ÍSÖLD 3 m. ísl. tali kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 L BRUNO kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10:10 LÚXUS VIP THE HANGOVER kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 8:30 - 10:20 - 10:50 12 TRANSFORMERS 2 kl. 2 - 5:30 - 8 - 10:50 10 DIGTAL ÍSÖLD 3 m. ísl. tali kl. 1:303D - 3:403D - 5:503D L DIGTAL 3D NÚ stendur yfir ljósmynda- samkeppni mbl.is og Canon. Mynd vikunnar að þessu sinni ber yfirskriftina Endur- speglun og undirtitilinn „Bankarnir hafa svo sann- arlega brenglað sýn okkar á heiminn …“ Ljósmyndarinn nefnist Nanna Lind og er búsett í Bessastaðahreppi. Myndin var tekin við Höfða á fögrum sumardegi. Mynd vikunnar Morgunblaðið/Golli Flottur Megas var sumarlegur til fara í tilefni dagsins. Hópur Fjöldi fólks lagði leið sína í Hljómskálagarðinn í góða veðrinu á föstudagskvöldið til að hlýða á tónleikana. Rokk Megas og Senuþjófarnir léku fyrir gesti í Hljómskálagarðinum. Senuþjófar í sólskini VEÐURGUÐIRNIR voru greinilega ánægðir með tón- leika Megasar og Senuþjóf- anna síðastliðið föstudags- kvöld. Allavega töfruðu þeir fram hið fallegasta veður sem gerði stemninguna á tónleik- unum enn betri. Tónleikarnir fóru fram að viðstöddu fjölmenni í Hljóm- skálagarðinum í Reykjavík og steig söngkonan Magga Stína meðal annars á svið með Meg- asi og félögum. Söngvarar Magga Stína tók lagið með Megasi og Senuþjófunum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.