Morgunblaðið - 10.08.2009, Side 28

Morgunblaðið - 10.08.2009, Side 28
28 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 2009 Alltaf er það virðingarvertþegar tónlistarfólk sendirfrá sér sköpunarverk semlúta í engu utanað- komandi lögmálum heldur eingöngu persónulegum metnaði flytjandans sjálfs. Þeir sem láta markaðs- sjónarmið lönd og leið eru sann- arlega menn með mönnum og með það í huga verður að segjast að Níels Árni Lund er karl í krapinu – ekki síst fyrir þær sakir að hann tekur sjálfan sig mátulega alvarlega og leggur metnað sinn óskertan í að létta lund áheyrandans. Víst er á því þörf nú um stundir og Níelsi ferst ætlunarverkið vel úr hendi. Eins og Níels kveður sjálfur um er hann á afa aldri og man því tím- ana tvenna hvað flestar hliðar til- verunnar varðar. Það er ekki síst þegar skoplegt sjónarhorn hans á nútímann blasir við sem hlustand- inn kímir enda skondið að heyra hann bera saman íslenskan heim- ilismat við pestó, pítur og þess- háttar nýmeti eða þá heilbrigðan rómans saman við tilhugalíf sem hefst og endar á forsíðum „menn- ingarrita“ við búðarkassann. Aðrar skuggahliðar nútímans fá sína sneið, og nægir þar að nefna svif- ryk, rítalín og sorpflokkun. Í bland fljóta með tímalausari yrkisefni á borð við framboðsslag og framhjá- hald, með jafnfínum árangri. Samt má segja að í draumi Níels- ar – að gefa safn af frumsömdum gamanvísum út – sé ef til vill fall hans sömuleiðis falið því breiðskífur með gamanvísum af þessu tagi gáfu menn gjarnan út á áratugum áður. Fyrir bragðið er útgáfa af þessu tagi mestanpart barn síns tíma, sem fyrir þónokkru er liðinn. Engu að síður má leiða þónokkrar líkur að því að kynslóð Níelsar – sem man sprelligosa á borð við Ómar Ragn- arsson, Bessa Bjarnason og Flosa Ólafsson syngja glens útgefið af SG hljómplötum – muni taka geisladiski hans höndum tveim og það með réttu því skáldið yrkir skemmtilega og um leið þónokkuð dýrt, og þegar best lætur er ómögulegt annað en að brosa með. Þó diskur þessi hrökkvi skammt sem dægurtónlist þá mætti segja mér að margir sem eru á aldur við flytjandann taki honum tveim hönd- um. Flest lögin geta framkallað bros, og yfirlýstu markmiði Níelsar er þar með náð – að menn hafi af músíkinni gaman. Gaman á gamla mátann Níels Árni Lund – Gamanvísur bbmnn JÓN AGNAR ÓLASON TÓNLIST Í DAG verður opnuð sýningin Dalir – hólar – handverk í Ólafsdal. Sýningin er sýning- arverkefni í Dölum, við Breiða- fjörð og á Ströndum. Náttúra og menning svæðisins er upp- spretta verkanna, og er skóla- hús gamla landbúnaðarskólans í Ólafsdal og umhverfi hans út- gangspunktur sýningarinnar. Skólinn var á mörkum þeirra þriggja sýslna sem sýningin spannar. Sýningin fer þannig fram á 4 stöðum: í húsi gamla Landbúnaðarskólans í Ólafsdal, á Sauðfjársetrinu í Sævangi við Steingrímsfjörð, í Byggðasafni Dalamanna að Laugum í Sælingsdal og í Bátasafni Breiðafjarðar, Reykhólum. Handverk Sýning á handverki opnuð í Ólafsdal Landbúnaðarskól- inn í Ólafsdal. Í KVÖLD kl. 21 stendur skáldafélagið Nykur fyrir svakalegri ljóðadagskrá eins og fram kemur í tilkynningu. Skáldin sem lesa að þessu sinni eru Davíð Stefánsson, Emil Hjörvar Petersen, Halla Gunn- arsdóttir, Sigurlín Bjarney Gísladóttir og Sverrir Norland, sem mun leika popptónlist í bland við ljóðalestur. Þetta kvöld, sem er tileinkað hinum melankólíska mánuði, ágúst, fer fram á veit- ingastaðnum og öldurhúsinu vinsæla Boston og segir jafnframt í hnyttinni tilkynningu að „að boð- ið verði upp á skemmtileg ljóð í bland við leiðinleg. Eitthvað fyrir alla.“ Ljóðlist Ljóðágústkvöld Nykurs á Boston Sverrir Norland mun lesa og spila. VÖKUDRAUMAR er yf- irskrift myndlistarsýningar Maríu Sigríðar Jónsdóttur list- málara sem nú stendur yfir í Ketilhúsinu – svölum – á Ak- ureyri. Þar sýnir María olíu- málverk, en þau voru máluð á árunum 2008-2009. Sýningin stendur til 16. ágúst og er opin alla daga nema mánudaga frá 13 -17. María Sigríður Jóns- dóttir er fædd á Akureyri. Hún hleytpi svo heimdraganum og árin 1994-1998 stundaði hún myndlistarnám við Accademia di Belle Arti í Flórens og hefur búið og starfað í Prato á Ítalíu síðan. Hún hefur haldið einkasýn- ingar og samsýningar bæði hér og á Ítalíu. Myndlist María Sigríður sýnir í Ketilhúsinu María Sigríðar Jónsdóttir FRÉTTASKÝRING Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is „ÞETTA er auðvitað tæknilega hægt, að gera út svona stöð,“ svarar Páll Magnússon útvarpsstjóri. Hann bend- ir þó á mikinn niðurskurð og sparnað- araðgerðir hjá RÚV seinustu misseri og þá sérstaklega eftir bankahrunið. Við þær hafi íþróttaumfjöllun hjá RÚV snarminnkað og því sé ekki eins knýjandi og oft áður að velta fyrir sér slíkri sjónvarpsrás, þar sem efnið sem færi á hana væri ekkert sérstaklega mikið. „Þegar dreifing RÚV verður komin á stafrænt form þá er þetta enginn vandi. Þá er þetta útlátalítið og gæti vel komið til greina að búa til að- gang að þannig rás þegar stórar og langvinnar keppnir eru í gangi, t.d. Ólympíuleikar og heimsmeistaramót, að þá séum við a.m.k. með tímabundið opna svoleiðis rás. Það er líka aukin þjónusta því þá væri hægt að sýna alla leiki og allar greinar, þá þyrftum við ekki að velja og hafna, fólk gæti gert það sjálft,“ segir Páll. Útvarpsstjóri segir það illverjandi fyrir RÚV að verja takmörkuðu fjár- magni í að koma upp slíkri sjónvarps- stöð mitt í efnahagskreppunni. Upp- hafskostnaður við hana yrði um 100 milljónir króna, að viðbættum kostn- aði við að halda henni úti. Stafræn dreifing eftir 5 ár? Hefur þetta verið rætt hjá RÚV? „Já, þetta hefur oft verið rætt en venjulega hafa menn þó verið að tak- marka þessa umræðu við það hvað við myndum gera þegar við förum í stafræna dreifingu og hvort við myndum þá ekki búa þannig um hnútana að við myndum tappa af yfir á aðra rás þegar við værum með stórviðburði af þessu tagi,“ svarar Páll. Ef ekkert óvænt komi upp á þá sé raunhæft að Sjónvarpið fari í staf- ræna dreifingu innan fjögurra eða fimm ára. „Þá er þessi spurning orð- in mjög gild, hvort við búum þá ekki þannig um hnútana að við getum keyrt hliðarrás þegar svona við- burðir og beinar útsendingar eru í gangi,“ segir Páll. Sjálfsagt hefði stafræn dreifing verið möguleg innan tveggja ára hefði kreppan ekki skoll- ið á. „Ég hugsa að þetta verði ekki al- mennilega á dagskrá fyrr en sam- hliða því að við tökum upp stafræna dreifingu.“ Aukasjónvarpsstöð tæknilega möguleg  Það myndi kosta RÚV 100 milljónir að opna sérstaka stöð fyrir útsendingar frá íþrótta- og menningarviðburðum  Kreppan tefur fyrir stafrænni dreifingu Af hverju er ríkisútvarpið ekki með sérstaka sjónvarpsstöð til að sýna frá íþrótta- og menning- arviðburðum, t.d. Ólympíu- leikum, í stað þess að rjúfa dag- skrá? Hvað er því til fyrirstöðu að opna slíka stöð? Morgunblaðið/Golli Snúið Páll Magnússon segir illverjandi fyrir RÚV að koma upp sérstakri sjónvarpsstöð fyrir íþrótta- og menningarviðburði – eins og staðan er í dag. Svo efnislega and- styggileg að í lokin er maður orðinn nei- kvæður og reiður sakir illskunnar 30 » FÆREYSKI „leikbólkurinn“ Huðr- ar mun sýna Óþelló Shakespeares í Iðnó næstkomandi miðvikudag í tví- gang. Einnig verður sýnt á Húsavík á föstudaginn. Leikhópurinn er skip- aður ungum leikurum og hefur hann átt mikilli velgengni að fagna að undanförnu og er að fara með sýn- inguna á Mondial du Theatre hátíð- ina í Mónakó, sem er ein stærsta og virtasta hátíð áhugamannaleikhópa í heimi. Er þetta í fyrsta sinn sem færeyskur leikhópur sækir hátíðina. Færeyskur Óþelló Grundvallarreglan er þessi að við fylgjum íslensk- um landsliðum í alþjóðlegum keppnum, það er númer eitt, og þá ekki bara í boltaíþróttum,“ segir Páll um beinar útsendingar frá íþróttaviðburðum í Sjónvarpinu og nefnir sem dæmi Ólympíuleikana og HM íslenska hestsins. „Það er engin launung á því að eftir því sem þessi landslið okkar ná lengra í keppni, þeim mun betur fylgjum við þeim eftir.“ Páll nefnir frábæran árangur íslenska kvenna- landsliðsins í knattspyrnu, að sýnt verði beint frá leikjum liðsins í úrslitakeppni EM í Finnlandi. Fyrir því víki aðrir dagskrárliðir og flytjist til, enda sé það minna mál í dag en áður fyrr að hnika til frétt- um. Stór hluti þjóðarinnar hafi aðgang að netinu og geti horft á fréttatíma á vef RÚV hvenær sem þeir kjósi og hafi einnig aðgang að RÚV+ í staf- rænu sjónvarpi, þar sem dagskráin er sýnd klst. síðar. 18. og 19. júlí sl. var Morgunstund barnanna rofin hjá Sjónvarpinu vegna beinnar útsendingar frá Opna breska meistaramótinu í golfi, af hverju? „Þetta heyrir til algjörra undantekninga,“ svarar Páll. Einstaka undantekningatilvik frá fyrri reglu komi upp, tvisvar til þrisvar á ári u.þ.b. og þetta alþjóðlega golfmót sé dæmi um slíkt. Slíkir við- burðir hitti stundum á sýningartíma ákveðinna dagskrárliða sem stjórnendur RÚV vilji treglega flytja til, barnaefni og fréttir þá helst, og þá hugsi menn sig tvisvar um. Ekki megi gleyma því að RÚV hafi víðfeðmar skyldur við landsmenn varð- andi fréttaflutning og útsendingar frá íþróttum. Slíkar útsendingar séu því ekki utan almanna- þjónustu RÚV heldur innan hennar. Stundum þurfi að þjóna tilteknum hópi á kostnað annars. „Undan því verður bara ekki vikist meðan við er- um að reyna að þjóna öllum á einni og sömu rás- inni.“ Páll segir s.k. dagskrárráð hittast einu sinni í viku og það leggi endanlega blessun sína yfir dag- skrána. Á þeim fundum sé sérstaklega tekið fyrir ef rjúfa þurfi hefðbundna dagskrárliði. Í ráðinu sitja dagskrárstjórar RÚV. Stundum þarf að þjóna tilteknum hópi á kostnað annars Morgunblaðið/Ómar Í beinni Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu, sem hefur staðið sig gríðarlega vel að und- anförnu, leikur í úrslitakeppni EM í Finnlandi. Sjónvarpið sýnir að sjálfsögðu beint frá því.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.