Morgunblaðið - 18.08.2009, Síða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 2009
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Stærðir 38-56
20%
auka afsláttur
af útsöluvörum
við kassa
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
Opið virka daga kl. 10-18
DÖMUPEYSUR
kr. 4.900
Fleiri litir
LAGERSALA 50-70% AFSL.
Max Mara, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
Opnun
Hef opnað aftur eftir sumarfrí
Fótaaðgerðarstofa Kolbrúnar
Ármúla 5, sími 845 0527
GUÐLAUGUR Þór Þórðarson beindi þeirri fyrirspurn
til Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra hvort sú
stefnumörkun ríkisstjórnarinnar að enginn ríkisstarfs-
maður skuli vera með hærri laun en forsætisráðherra
fari saman við það markmið ríkisstjórnarinnar að halda
vel menntuðu fólki í landinu.
„Varðandi þá sérstöku spurningu hvort sú ákvörðun
ríkisstjórnarinnar að miða hæstu laun í ríkisgeiranum
við laun forsætisráðherra muni ýta undir spekileka [þ.e.
brain drain á ensku eða atgervisflótta] þá verð ég nú að
fullyrða að ég tel að það sé nú hægt að fá ansi gott fólk til
starfa fyrir tæpa milljón á mánuði. Og ef viðmiðið er að
besta fólkið fáist einungis með þeim ofurlaunum sem
voru í boði innan íslenska fjármálakerfisins þá tel ég að
okkur hafi ekki tekist mjög vel að ráða fólk fyrir þau
laun,“ sagði Gylfi.
„Ég vil upplýsa hæstvirtan viðskiptaráðherra um það
að þetta snýst ekki um ofurlaun í bankakerfinu. Þetta
snýst m.a. um heilbrigðiskerfið og það kemur í ljós að við
erum með nokkur hundruð manns sem eru með hærri
laun heldur en forsætisráðherra, án fríðinda, og það er
algjörlega ljóst að við erum í mjög mikilli samkeppni um
þetta fólk. Ef hæstvirtur viðskiptaráðherra hefur ekki
áhyggjur af þessu þá er það auðvitað ákveðið svar og ber
að þakka fyrir hreinskilnina,“ sagði Guðlaugur Þór.
silja@mbl.is
Morgunblaðið/Heiddi
Í pontu Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Gott fólk fyrir tæpa milljón
SIGMUNDUR Davíð Gunn-
laugsson, formaður Framsóknar-
flokksins, beindi í óundirbúnum fyr-
irspurnartíma Alþingis í gær þeirri
spurningu til Steingríms J. Sigfús-
sonar fjármálaráðherra, hvað myndi
gerast ef Bretar og Hollendingar
ákvæðu að beita fyrir sig vanefnd-
arákvæðum og gjaldfella Icesave-
lánið í heild sinni.
Steingrímur sagði málið í heild
snúast um það hvort reynt sé að
vinna úr málum í góðri trú eða gefa
sér fyrirfram að allt fari á versta
veg. Minnti hann á að náist að ljúka
málinu með þeim hætti að íslenski
tryggingasjóðurinn taki lán fyrir
innistæðunum og fái ríkisábyrgð
innan þeirra marka sem þingið hefur
verið að leggja grunn að að undan-
förnu, þá eigi allir aðilar hagsmuna
að gæta af því að málið gangi upp.
Öllum í hag að
Íslendingum vegni vel
„Þeirra hagsmunir [þ.e. Breta og
Hollendinga] verða að sjálfsögðu
þeir að íslenskt hagkerfi þróist
þannig að okkur vegni það vel að það
sé líklegt að við getum borgað pen-
ingana til baka. Það væri væntan-
lega ekki vænlegasta leiðin til þess
af þeirra hálfu að koma okkur í
vandræði með því að gjaldfelli allt í
einu lánasamninginn upp úr þurru,“
sagði Steingrímur. Ítrekaði hann þá
skoðun sína að það væru ekki aðeins
hagsmunir Breta og Hollendinga
heldur fjölmargra annarra, s.s.
Norðurlandanna og Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins, að Íslendingum vegni
það vel að þeir geti greitt til baka
þau lán sem þjóðin verði að fá úr
ýmsum áttum.
Sigmundur sagði það geysilega
ánægjuleg tíðindi að fjármálaráð-
herra skyldi hafa viðurkennt að það
væri fráleitt fyrir Breta og Hollend-
inga að ætla að skaða íslenskt efna-
hagslíf. „Því hefur nefnilega verið
haldið fram hérna vikum og mán-
uðum saman og nánast hótað að ef
Íslendingar gengju ekki að Icesave-
samningunum nákvæmlega eins og
þeir eru myndu Bretar og fleiri þjóð-
ir hreinlega leggja íslenskt efna-
hagslíf í rúst. Þetta var hótunin sem
var hér hangandi yfir þingi og þjóð
og markaði mjög alla umræðu um
þessa samninga og hefur gert okkur
mjög erfitt fyrir um að ræða þetta á
rökréttum nótum. Þannig að það er
mjög gott að ráðherra skuli gangast
við því nú að auðvitað er það ekki
rökrétt fyrir þessar þjóðir að leggja
íslenskt efnahagslíf í rúst, sérstak-
lega ef þau hafa ekki þau veð í ís-
lenskum eignum sem þá þyrftu að
koma í stað greiðslu sem samning-
arnir hefðu tryggt þeim ef ekki
hefðu komið til fyrirvararnir.“
silja@mbl.is
Gagnkvæmir
hagsmunir
Ætla ekki að skaða íslenskt efnahagslíf
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Steingrímur J.
Sigfússon
Orðrétt
’ Hæstvirtur fjármálaráðherra oghæstvirtur forsætisráðherra hafaákveðið að beita sinni skapandi hugs-un og troða breytingatillögunumþannig inn í samninga að þær rúmist
nú allar innan þeirra. Ég er þeirrar
skoðunar að við erum ekki að gera
þjóðinni nokkurt einasta gagn með
því að horfast ekki í augu við þá aug-
ljósu staðreynd að breytingatillögur
þær sem gerðar voru í fjárlaganefnd
gjörbreyta forsendum samningsins.“
BJARNI BENEDIKTSSON
’Þess vegna eigum við ekki aðgefa okkur fyrirfram að af ein-hverri meinbægni í okkar garð munimenn reyna að bregða fæti fyrir þaðað við getum staðið við okkar skuld-
bindingar.“
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON
’ Mig langar að biðja [fjár-mála]ráðherra að upplýsa migum það, fari svo að það þurfi aðsemja upp á nýtt, hvort hann munikalla til starfa þá samninganefnd sem
gerði upphaflegu samningana eða
hvort hann sjái fyrir sér að leitað
verði nú til erlendra sérfræðinga og
þeir beðnir um aðstoð við samn-
ingagerðina.“
GUNNAR BRAGI SVEINSSON
’ Virðulegi forseti. Það stóð áklukkunni minni að það væri mín-úta eftir […] Ég get ekki tekið mið aföðru en þeirri klukku sem hér er. Erueinhverjar aðrar hugmyndir í gangi?“
GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON
’ Þingmanninum ber nú að þekkjaþingsköp eftir alla hans reynsluaf þingstörfum.“ÁSTA RAGNHEIÐUR JÓHANNESDÓTTIR
ÞRÁINN Bertelsson sagði sig
formlega úr þingflokki Borg-
arahreyfingarinnar við upphaf
þingfundar í gær. Í bréfi frá
Þráni sem Ásta Ragnheiður Jó-
hannesdóttur, þingforseti, las
upp sagði meðal annars: „Ég hef
sagt mig úr Borgarahreyfingunni
og slitið samstarfi við fólk sem
telur orðheldni vera til marks
um alvarlega heilabilun. Ég mun
starfa sem óháður þingmaður og
vinna í anda stefnuskrár og
kosningaloforða Borgarahreyf-
ingarinnar hér eftir sem hingað
til. “
Í beinu framhaldi kvaddi Mar-
grét Tryggvadóttir, þingmaður
Borgarahreyfingarinnar, sér
hljóðs og bað Þráin afsökunar á
tölvubréfi því sem hún skrifaði
og komst í hámæli í síðustu viku
. „Mig langar að nota þetta tæki-
færið og biðja háttvirtan þing-
mann Þráinn Bertelsson afsök-
unar á bréfi sem ég skrifaði og
verið hefur í umræðunni síðustu
daga . Um mannleg mistök var
að ræða. Ætlunin var alls ekki að
skaða mannorð háttvirts þing-
manns á nokkurn hátt eða veitast
að persónu hans.“ silja@mbl.is
Margrét bað Þráin
afsökunar á Alþingi
Margrét
Tryggvadóttir
Þráinn
Bertelsson
@ Fréttirá SMS
Í YFIRLÝSINGU sem Morgunblað-
inu hefur borist frá Þórði Þor-
geirssyni hestamanni segir m.a. að
brottvikning hans úr landsliðinu í
hestaíþróttum fyrir agabrot hafi
verið honum og fjölskyldu hans
erfið reynsla en að eftir að hafa
íhugað öll málsatvik fallist hann á
að fyrirliði landsliðsins hafi engan
annan kost átt í stöðunni. „Ég bið
trúnaðarmenn landsliðsins, hesta-
menn og aðra velunnara hesta-
mennskunnar afsökunar á aga-
brotum mínum,“ segir í
yfirlýsingunni.
Biðst afsökunar
NÝR ferðavefur,
www.turisti.is,
var opnaður 6.
ágúst sl.
Með vefsíðunni
er ferðalöngum
gert auðveldar
um vik að nálg-
ast gagnlegar
upplýsingar á
íslensku um
ferðalög til út-
landa, en gott getur verið að kynna
sér áfangastaðinn fyrirfram til að
fá sem mest út úr fríinu.
Á síðunni er einnig að finna
ferðatengdar greinar og fréttir.
Ferðavefur fyrir
utanlandsferðir
Í sólinni Gott er að
skipuleggja fríið.
HEILDARFJÖLDI nema í Háskóla
Íslands í haust verður á sextánda
þúsund og hafa aldrei fleiri nemar
verið skráðir í skólann frá upphafi.
Um 14.000 þúsund stúdentar hafa
þegar staðfest skólavist vegna
náms við skólann á næsta misseri
og á annað þúsund umsóknir eru
enn í vinnslu.
Námsumsóknum fjölgaði um 20%
milli áranna 2008 og 2009 og hefur
mjög stór hluti umsækjenda stað-
fest skólavist.
Nýnemar í grunnnámi verða um
3.700 í haust og nýnemar í fram-
haldsnámi um 1.300.
Aldrei fleiri nemar
við HÍ en í haust