Morgunblaðið - 24.08.2009, Page 1
M Á N U D A G U R 2 4. Á G Ú S T 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
228. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
Við höldum með
stelpunum okkar
Ítarleg umfjöllun um
EM 2009 í Morgublaðinu
www.tskoli.is
Innritun í kvöld- og fjarnám
stendur til 26. ágúst Lækkað verð
«KATÝ HÖNNUÐUR
BRÓDERAR MÁLS-
HÆTTI OG VÉLPRJÓNAR
«MENNINGARNÓTT
Rimmugýgur og
annað skemmtilegt
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
EIGENDUR Haga stefna að því að
gera Haga að skuldlausu félagi innan
tveggja ára og endurfjármagna það
síðan að nýju með þátttöku erlendra
fjárfesta. Um er að ræða breska fag-
fjárfesta á sviði smásöluverslunar.
Jón Ásgeir Jóhannesson staðfesti
þetta í samtali við Morgunblaðið.
Þau félög sem mynda rekstur
Haga eru m.a. Bónus, Hagkaup, 10-
11, Útilíf og tískuverslanir eins og
Zara, Debenhams, Topshop, Coast
og Oasis, en um tvö þúsund manns
vinna hjá samstæðunni.
Eins og Morgunblaðið greindi frá
síðastliðinn laugardag mun Nýja
Kaupþing hugsanlega taka yfir
95,7% eignarhlut í Högum, en Kaup-
þing fjármagnaði kaup 1998 ehf.,
sem er í eigu Jóns Ásgeirs og fjöl-
skyldu, á Högum í júlí á síðasta ári
fyrir þrjátíu milljarða króna gegn
veði í 95,7% hlut og er lánið staðsett
hjá Nýja Kaupþingi í dag.
Jón Ásgeir segir enga hættu á því
að bankinn taki yfir rekstur Haga.
Fjármögnunin tvískipt
Fram hefur komið að lánið sé á
einum gjalddaga á árinu 2010, en Jón
Ásgeir segir það ekki rétt. Hann seg-
ir að fjármögnunin sé tvískipt til sex
ára. Fyrri hlutinn sé á gjalddaga árið
2011 og sá síðari árið 2014. „Félagið
mun standa við sínar skuldbinding-
ar,“ segir hann. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins mun Nýja
Kaupþing samt sem áður fylgjast
áfram gaumgæfilega með rekstri
Haga til að vernda hagsmuni sína.
Rekstur Haga gengur vel
Jón Ásgeir segir rekstur Haga
ganga vel þrátt fyrir þrengingar í ís-
lensku efnahagslífi. Það sé ekki að-
eins matvöruhlutinn sem gangi vel
heldur einnig sérvöruverslanir fé-
lagsins. „Fyrirtækið er á áætlun og
gott betur. Sérvaran hefur gengið
mjög vel, ekki síst vegna þess að
verslunin hefur færst heim frá út-
löndum,“ segir hann.
Fá breska fjárfesta
inn í rekstur Haga
Jón Ásgeir segir enga hættu á að Kaupþing taki félagið yfir
Jón ekki á útleið | 4
HÚN Kristín Helga Ómarsdóttir þáði hjálp hjá Dóru Jónsdóttur á Árbæjar-
safni í gær við að klæða sig í fallegan þjóðbúning til að láta taka af sér
mynd. Búningadagur barna var á safninu og hafði íslenskum þjóðbúning-
um á börn verið safnað saman og bauðst gestum að koma með börn sín til
að láta taka myndir af þeim í þessum fallegu klæðum. Sérfræðingar í þjóð-
búningum spjölluðu við gesti og var þó nokkur handagangur í öskjunni.
BÖRNIN FÓRU Í KLÆÐIN FÍN OG ÞJÓÐLEG
Morgunblaðið/Kristinn
HÓTEL mun rísa við hlið tónlist-
ar- og ráðstefnuhússins við Reykja-
víkurhöfn og hyggst Situs, systur-
félag Portusar, leita að áhuga-
sömum erlendum fjárfestum, með
reynslu af hótelrekstri, til að bera
kostnaðinn vegna byggingar og
reksturs slíks mannvirkis.
Situs áætlar að selja lóðina við
hlið tónlistarhússins undir hótelið
og vonast eftir að fá 1,5 til 3,5 millj-
arða króna fyrir lóðina. Hvorki Sit-
us né Portus munu bera fjárhags-
legan kostnað vegna byggingar eða
reksturs hótelsins. Á teikniborðinu
eru hugmyndir um að reisa 250-450
herbergja hótel. Áætlaður kostn-
aður vegna byggingar hótelsins er
12-14 milljarðar króna. | 4
Hyggjast reisa hótel fyrir
12-14 milljarða við höfnina
ÞRÓTTUR tapaði gegn ÍBV í 18.
umferð Pepsi-deildar karla í fót-
bolta. Staða liðsins á botninum er
dökk. Meistaralið FH tapaði gegn
Grindavík. Norðmaðurinn Andre
Hansen varði tvær vítaspyrnur fyr-
ir KR gegn Keflavík.
ÍÞRÓTTIR
Þróttur er í miklu
basli á botninum
ÍSLENSKA karlalandsliðið í körfu-
knattleik lagði Hollendinga í B-
deild Evrópukeppninnar. Jón Arn-
ór Stefánsson gefur ítalska liðið Be-
netton á Ítalíu upp á bátinn.
Glæsilegur sigur
gegn Hollandi