Morgunblaðið - 24.08.2009, Page 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
„VIÐ erum með það í skoðun nú
að höfða mál gegn mönnum per-
sónulega, sem komu að ákvörðun
Giftar fjárfestingafélags og Eignar-
haldsfélags Samvinnutrygginga,“
segir Sigurður G. Guðjónsson hrl.
Skjólstæðingar hans, sem áður
voru tryggingatakar hjá Sam-
vinnutryggingum, eru þeir sem sér-
staklega vilja sækja rétt sinn vegna
málefna félagsins.
Sigurður segir margt í starfsemi
Giftar og Samvinnutrygginga orka
tvímælis. „Það er ekki mikið upp úr
þessu félagi [Gift innsk. blm.] að
hafa núna þannig að þá er spurn-
ingin hverjir tóku þær ákvarðanir
sem leiddu til þess að félagið lenti í
erfiðleikum og eru hugsanlega per-
sónulega ábyrgir fyrir hvernig fór.“
Úr miklum plús í mínus
Um mitt ár 2007, þegar eignir
Samvinnutrygginga, einkum í skráð-
um hlutafélögum, voru færðar yfir í
Gift fjárfestingafélag, var eigið fé fé-
lagsins um 30 milljarðar. Þá var
einnig skipuð
stjórn í félaginu,
án þess að hinir
raunverulegu eig-
endur félagsins,
fyrrverandi
tryggingatakar
hjá Samvinnu-
tryggingum,
hefðu nokkuð um
það að segja.
Það eru ekki
síst þær ákvarðanir sem Sigurður
telur að menn þurfi að svara fyrir.
„Menn skipuðu sjálfan sig í stjórn
þessa félags, án þess að hafa til þess
umboð frá eigendum félagsins. Síð-
an fara menn að sýsla með eignir og
ég tel það ekki standast lög að
standa svona að málum.“
Strax í lok árs 2007, tæplega hálfu
ári frá því Gift var stofnað og
ákvörðun tekin um að slíta félaginu
og greiða virði eigna út til eigenda,
var staða félagsins orðin tvísýn.
Hrun íslenska hlutabréfamarkaðar-
ins, sem hófst í lok árs 2007 og lauk
með hruni bankanna í október í
fyrra, gerði útaf við félagið. Gift var
m.a. hluthafi í Kaupþingi og Exista.
Undir það síðasta var félagið komið í
hendurnar á Kaupþingi, eins og
greint var frá í Morgunblaðinu 28.
nóvember í fyrra. Vegna ákvæðis í
lánasamningum þess efnis að Kaup-
þing hefði síðasta orð um alla eigna-
umsýslu félagsins umfram 15 pró-
sent af heildareignasafni, réði
bankinn í raun ferðinni. Auk fyrr-
nefndra áfalla leiddi gengisfall krón-
unnar til þess að skuldir félagsins
hækkuðu langt umfram eignir. Tug-
milljarða gjaldþrot félagsins var því
óumflýjanlegt.
Sigurður vildi ekki upplýsa gegn
hvaða fólki hugsanlegar málsóknir
myndu beinast, þar sem það væri
ótímabært að segja til um það. Lík-
legt er þó að þar á meðal séu stjórn-
arformenn Giftar og helstu forsvars-
menn Eignarhaldsfélags Samvinnu-
trygginga.
Þórólfur Gíslason, kaupfélags-
stjóri Kaupfélags Skagfirðinga, var
stjórnarformaður félagsins eftir að
það var stofnað og fram á árið 2008.
Hann gerði meðal annars munnlegt
samkomulag um að selja ekki hluti
Giftar í Exista, sem olli deilum innan
stjórnar félagsins. Hann hætti sem
formaður stjórnar þegar Gift var
komið í vanda. Næsti stjórnarfor-
maður félagsins var aðstoðarmaður
Þórólfs á Sauðárkróki, Sigurjón
Rúnar Rafnsson, sem hefur setið í
stjórn Exista síðan 2006.
Málsókn á hendur forsvarsmönnum Giftar og Samvinnutrygginga er í skoðun Lítið að sækja í
skuldum vafið félag, segir Sigurður G. Guðjónsson Sátu í stjórn án umboðs eigendanna
Fara í mál við valda menn
Fyrrverandi tryggingatakar hjá
Samvinnutryggingum vilja höfða
mál gegn þeim sem sýsluðu með
eignir Samvinnutrygginga og síð-
ar Giftar. Stjórn Giftar var skipuð
án aðkomu eigenda.
Sigurður G.
Guðjónsson
GUÐBJARTUR
Hannesson, for-
maður fjárlaga-
nefndar Alþingis,
segir „endalokin“
á umræðum um
Icesave á Alþingi
vera að nálgast.
Fjárlaganefnd
muni hittast
klukkan 10 í dag
og halda áfram
umfjöllun um frumvarp fjár-
málaráðherra um ríkisábyrgð á
Tryggingasjóði innistæðueigenda
vegna lána frá Bretum og Hollend-
ingum fyrir Icesave-reikningsinni-
stæðum Landsbankans. Guðbjartur
segir nefndarmenn reyna eftir
fremsta megni að ná sáttum um mál-
ið í heild.
Meirihluti Alþingis samþykkti
þær breytingartillögur sem gerðar
voru við frumvarpið í 2. umræðu, og
var málið þannig sett aftur til fjár-
laganefndar fyrir 3. umræðu. Meðal
breytingartillagna var að endur-
greiðslur á lánunum til Breta og
Hollendinga skuli taka mið af þróun
efnahagsmála hér á landi.
Þar er hagvöxtur í landinu helsta
forsendan sem stýrir greiðslum á
lánunum. Þ.e., að ef enginn hag-
vöxtur er í landinu þá falli greiðslur
af lánunum niður.
Guðbjartur segir helst unnið að
því að reyna að styrkja fyrirvarana.
„Það kom upp í umræðunni að hugs-
anlega væri einhver vafi á því að fyr-
irvararnir myndu halda þegar á
reyndi. Við viljum reyna að tryggja
að það sé ekki vafi á því að fyrirvar-
arnir haldi. Það skiptir miklu máli að
ná sáttum um þetta mál og við mun-
um reyna það eftir fremsta megni.
Ég tel að það sé vel hægt að eyða öll-
um efasemdum um þessi mál, en
þetta er í raun að miklu leyti texta-
vinna, þar sem góð sátt hefur náðst
um meginatriðin.“ | 14
Nálgast endalokin í
umræðum um Icesave
Guðbjartur
Hannesson
Fjárlaganefnd fundar
áfram um málið í dag
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
ÞETTA er með ólíkindum,“ segir Björgvin Njáll Ingólfs-
son, framkvæmdastjóri bílaleigunnar Hertz. Liðsmenn
björgunarsveitanna sem í sumar hafa verið við gæslu-
störf á hálendinu hafa meðal annars
fylgst með umferð lítilla bílaleigubíla
þar.
Samkvæmt samningum sem við-
skiptavinir bílaleiga undirrita er þeim
óheimilt að fara upp um fjöll og firn-
indi. Sumir, einkum erlendir við-
skiptavinir, gefa þó lítið fyrir loforð
um slíkt og í sumar hafa björgunar-
sveitarmenn tekið myndir af alls
fimmtíu smábílum frá Hertz á hálend-
inu.
„Þetta er mikið vandamál,“ segir Björgvin Njáll.
„Björgunarsveitarmenn taka myndir af bílunum á svæð-
um sem óheimilt er að fara um ásamt því sem nákvæm
staðsetning er skráð. Þessi vinnubrögð hafa gefið góða
raun; það er erfitt fyrir viðskiptavinina að neita nokkru
þegar myndir eru til staðar.“
Tjónið 40 til 50 milljónir króna
Björgvin segir tilganginn með þessu fyrst og fremst
fyrirbyggjandi. Öllum megi vera ljóst að smábílar eins og
Toyota Yaris henti ekki í ferðir yfir Sprengisand, Kjöl, í
Landmannalaugar eða um Þórsmerkurleið að jökulánum
þar.
„Á grófum malarvegum er alltaf hætta á skemmdum,
svo sem á pústkerfi, dekkjum og slíku. Þá er vatnstjón
eða skemmdir á undirvagni á hálendisvegum ekki bætt
af tryggingafélögum. Leigutakinn er ábyrgur, hvort sem
bíllinn er lítill eða stór. Stundum hefur það gerst að þeir
sem koma á skemmdum bíl í bæinn skilja þá eftir í Leifs-
stöð og lauma lyklunum í póstkassann okkar þar. Loka
greiðslukorti sínu áður en tjónið uppgötvast og koma sér
úr landi. Þá sitjum við stundum uppi með skaðann, en
tjón okkar vegna svona mála er 40 til 50 milljónir króna á
ári,“ segir Björgvin Njáll.
Á smábílum yfir hálendið
Bílarnir skemmdir og bílaleigur þurfa oft að bera skaðann
Á árbakkanum Öræfaferðir geta verið hættuspil, hvað þá þegar óvanir fara yfir vötnin ströng á smábílum.
Björgvin Njáll
Ingólfsson
Á fjöllum Óráðlegt er að fara yfir Kjöl á smábílum en
nokkrir sem það gerðu voru myndaðir á Hveravöllum.
„VISSULEGA var erfitt að láta ungann frá sér, því krakkarnir höfðu bund-
ist honum sterkum böndum,“ segir Guðlaugur Þorleifsson. Eins og Morg-
unblaðið sagði frá um helgina elti æðarungi, sem starfsmenn Húsdýra- og
fjölskyldugarðsins höfðu reynt að koma út í náttúruna á Seltjarnarnesi á
dögunum, á röndum fjölskyldu sem rakst á hann og tók hún ungann í fóst-
ur. Í gærkvöldi fór hún svo með ungann niður að Reykjavíkurtjörn. „Hann
var tregur til, sneri alltaf aftur. En á endanum var hann þó sáttur við að yf-
irgefa okkur enda tóku gæsirnar honum vel,“ segir Guðlaugur sem ætlar
að taka Tjarnarrúnt í hádeginu í dag og athuga hvernig æðarunganum,
sem fjölskyldan kallaði Emmu, reiddi af.
Morgunblaðið / Kristinn
Sleppt Fjölskyldan, sem Emma tók ástfóstri við, fór með hana á Tjörnina í
gærkvöldi. Systurnar munu sakna hennar sárt eftir góða daga.
Unginn Emma snýr heim