Morgunblaðið - 24.08.2009, Síða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2009
Heimsferðir bjóða nú einstakt tilboð á síðustu flugsætunum til Costa del
Sol 25. ágúst í 11 nætur. Þú kaupir 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir 1.
Við bjóðum einnig fjölbreytta gistingu á meðan á dvölinni stendur.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt
til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 29.990
Flugsæti með sköttum, m.v. 2 fyrir 1 tilboð
25. ágúst í 11 nætur. Netverð á mann.
Takmarkaður fjöldi sæta á þessu verði –
Verð getur hækkað án fyrirvara.
Gisting frá kr. 3.800
m.v. 2-4 í herbergi / stúdíó / íbúð á „stökktu
tilboði“. Netverð á mann pr. nótt. Aukalega
m.v. 2-4 í stúdíó / íbúð á Timor Sol kr. 900
(á mann pr. nótt). Aukalega m.v. 2-4 í íbúð á
Principito Sol kr. 1.800 (á mann pr. nótt).
Takmarkaður fjöldi sæta!
2 fyrir 1
Costa del Sol
25. ágúst
frá kr. 29.990
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
EIGENDUR Haga stefna að því að
gera Haga að skuldlausu félagi inn-
an tveggja ára og endurfjármagna
það síðan með þátttöku breskra fjár-
festa á sviði smásöluverslunar. Jón
Ásgeir Jóhannesson staðfesti þetta í
samtali við Morgunblaðið.
Rekstur Haga gengur vel
Jón Ásgeir segir rekstur Haga
ganga vel þrátt fyrir þrengingar í ís-
lensku efnahagslífi, ekki aðeins mat-
vöruhlutann heldur einnig sér-
vöruverslanir félagsins. „Fyrirtækið
er á áætlun og gott betur. Sérvaran
hefur gengið mjög vel, ekki síst
vegna þess að verslunin hefur færst
heim frá útlöndum,“ segir hann.
Hagar var móðurfélag innlendrar
starfsemi Baugs en þau félög sem
mynda rekstur Haga eru m.a. Bón-
us, Hagkaup, 10-11, Útilíf og tísku-
verslanir eins og Zara, Debenhams,
Topshop, Coast, Oasis o.fl. Félagið
var skilið frá rekstri Baugs í júlí á
síðasta ári þegar eignarhaldsfélagið
1998 ehf., sem er í eigu Jóns Ásgeirs
og fjölskyldu, keypti 95,7% hlut í
Högum af Baugi. Kaupin voru fjár-
mögnuð með 30 milljarða króna láni
frá Kaupþingi gegn veði í öllum
eignarhlut félagsins í Högum.
Jón Ásgeir segir enga hættu á því
að Nýja Kaupþing taki Haga yfir
vegna láns til 1998 ehf. „Félagið
mun standa við sínar skuldbindingar
meðal annars fyrir tilstilli erlendra
fjárfesta á sviði smávöruverslunar
sem koma að félaginu,“ segir hann
um lán Kaupþings banka til 1998
ehf. Fram hefur komið að lánið sé á
einum gjalddaga á árinu 2010 en Jón
Ásgeir segir það ekki rétt. Hann
segir að fjármögnunin sé tvískipt til
sex ára, fyrri hlutinn sé á gjalddaga
árið 2011 og sá síðari árið 2014.
Endurspeglaði raunvirði
Fram hefur komið að þrotabú
Baugs kunni að athuga réttarstöðu
sína vegna sölunnar á Högum til
1998 ehf. ef sýnt þykir að kaup-
verðið á Högum, þrjátíu milljarðar
króna í júlí 2008, þyki ekki endur-
spegla raunvirði þess. Jón Ásgeir
segir enga hættu á því að þrotabúið
muni hafa forsendur til að krefjast
leiðréttingar á kaupverði. Hann seg-
ir kaupverðið hafa endurspeglað
raunvirði Haga og markaðsað-
stæður þess tíma. „Ég tel enga
hættu á því að til þess komi, enda
var greitt fullt verð,“ segir Jón Ás-
geir.
Jón ekki á útleið
Hagar verða endurfjármagnaðir með þátttöku erlendra
fjárfesta Engin hætta á að Kaupþing taki yfir reksturinn
EINS og greint var frá í Morgunblaðinu á laugardag hefur Nýja Kaupþing
verið að meta til hvaða aðgerða eigi að grípa ef 1998 ehf. getur ekki staðið
í skilum með þrjátíu milljarða króna lán sem félagið fékk til að fjármagna
kaup á Högum frá Baugi í júlí á síðasta ári. Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins hefur þrotabú Baugs ekkert tilefni gefið Nýja Kaupþingi til að
grípa til ráðstafana gagnvart 1998 ehf. Þrotabúið sjálft hefur ekki tekið
neina ákvörðun um hvort það muni krefjast leiðréttingar á kaupverði eða
taka aðrar ákvarðanir til að verja hagsmuni sína, vegna sölunnar á Hög-
um, en kaupsamningurinn var gerður minna en 12 mánuðum áður en
Baugur leitaði fyrst eftir heimild til greiðslustöðvunar. Samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins skoðar þrotabúið alla samninga milli tengdra aðila
mjög náið og samningur vegna sölu Haga fellur í þann flokk.
Þrotabúið ekki gripið til ráðstafana
Morgunblaðið/Kristinn
Morgunblaðið/Kristinn
Engin hætta Jón Ásgeir er ekki á
leið út úr íslenskri smásöluverslun.
Jón Ásgeir Jóhannesson segir að
eignarhaldsfélagið 1998 ehf.
muni standa við allar sínar skuld-
bindingar gagnvart Nýja Kaup-
þingi. Engin hætta sé á að bank-
inn taki yfir rekstur Haga.
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
HÓTEL mun rísa við hlið tónlistar-
og ráðstefnuhússins við Austurhöfn
og hyggst Situs, systurfélag Portus-
ar, leita að áhugasömum erlendum
fjárfestum, með reynslu af hótel-
rekstri, til að bera kostnaðinn vegna
byggingar og reksturs slíks mann-
virkis, að sögn Péturs J. Eiríksson-
ar, stjórnarformanns Portusar.
Selur lóðina undir hótelið
Situs áætlar að selja lóðina við hlið
tónlistarhússins undir hótelið og
vonast eftir að fá 1,5 til 3,5 milljarða
króna fyrir lóðina. Hvorki Situs né
Portus munu bera fjárhagslegan
kostnað vegna byggingar eða rekst-
urs hótelsins. Á teikniborðinu eru
hugmyndir um að reisa 250-450 her-
bergja hótel. Áætlaður kostnaður
vegna byggingar hótelsins er 12-14
milljarðar króna. Í upphaflegum
áætlunum var gert ráð fyrir að 100
lúxusíbúðir yrðu í sömu byggingu en
fallið hefur verið frá hugmyndum um
slíkt. „Það er nóg af tómum íbúðum í
Reykjavík,“ segir Pétur.
Um helgina auglýsti Situs eftir að-
ilum til að taka þátt í lokuðu útboði á
ráðgjöf vegna hótelsins. „Það sem
ráðgjafinn á að gera er að finna fjár-
festinn og rekstraraðila hótelkeðj-
unnar og leiða þá tvo saman,“ segir
Pétur. Að sögn Péturs hefur Situs
orðið var við áhuga erlendra hótel-
keðja á að reka hótel við tónlistar-
húsið og því er fyrirtækið ekki að
renna blint í sjóinn hvað þetta varð-
ar.
Pétur segir að stefnan sé að hót-
elið verði þriggja til fjögurra stjörnu
og það sé ekki síst aukinn ferða-
mannastraumur til landsins sem geri
það að verkum að möguleikinn fyrir
opnun slíks hótels sé raunhæfur. Er-
lendar hótelkeðjur séu meðvitaðar
um að á Íslandi séu ónýtt tækifæri í
hótelrekstri.
Opnar ekki á sama tíma
Áætlað er að taka tónlistar- og
ráðstefnuhúsið í notkun árið 2011.
Útlit er fyrir að hótelinu muni seinka
eitthvað og er mjög ólíklegt að það
opni á sama tíma. „Það var hluti af
samkomulagi Austurhafnar TR og
Portusar að hótel myndi rísa. Það
var hins vegar ekki búið að skuld-
binda Portus um að tímasetja hót-
elbygginguna,“ segir Stefán Her-
mannsson, framkvæmdastjóri
Austurhafnar.
Reiknað er með að vel á annað
hundrað störf skapist vegna bygg-
ingar hótelsins. Að sögn Péturs J.
Eiríkssonar mun svipaður fjöldi
starfa skapast þegar hótelið verður
komið í fullan rekstur.
Forvalsgögn vegna ráðgjafar
liggja fyrir á skrifstofu Situs í Aust-
urstræti 17.
Vilja fá erlenda
fjárfesta í hótel
við tónlistarhús
Hótelkeðjur sýna áhuga á rekstrinum
Morgunblaðið/Ómar
Austurhöfn Situs vill fá erlenda
fjárfesta í byggingu hótels.
Í HNOTSKURN
»Áætlaður kostnaður vegnabyggingar tónlistar- og
ráðstefnuhússins er 24,5–25,2
milljarðar króna. Verklok eru
áætluð í janúar 2011.
»Kostnaður vegna bygg-ingar hótelsins er 12–14
milljarðar króna.
»Hótelið mun ekki opna ásama tíma en það verður
staðsett við hlið tónlistar- og
ráðstefnuhússins.
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
UM helgina var rauðri málningu
skvett á Hummer-jeppabifreið
Björgólfs Thors Björgólfssonar,
kaupsýslumanns og fyrrverandi
stærsta eiganda Landsbankans,
ásamt föður sínum Björgólfi Guð-
mundssyni. Bíllinn stóð við bygg-
ingu Háskólans í Reykjavík við
Höfðabakka.
Þá var rauðri málningu skvett á
íbúðarhús Sigurðar Einarssonar,
fyrrverandi starfandi stjórnarfor-
manns Kaupþings. Ekki er vitað
hverjir voru að verki.
Þessi mál bætast í hóp óupplýstra
mála þar sem skemmdarverk hafa
verið unnin á eignum bankamanna.
Þá hefur málningu einnig verið
skvett á hús Rannveigar Rist, for-
stjóra Alcan á Íslandi, og Hjörleifs
Kvaran, forstjóra Orkuveitu
Reykjavíkur.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu, segir öll
skemmdarverkamálin vera í rann-
sókn. „Þessi mál eru öll í rannsókn
hjá lögreglu. Meira get ég ekki sagt
um málin, og rannsókn þeirra, í bili,“
sagði Stefán í samtali við Morg-
unblaðið. Myndir af skemmdarverk-
unum voru sendar til fjölmiðla í
tölvupósti.
Skemmdarverk unnin
á eignum bankamanna
Rauður jeppi Hummer-jeppi Björgólfs Thors stóð útataður í rauðri máln-
ingu fyrir utan byggingu Háskólans í Reykjavík við Höfðabakka.