Morgunblaðið - 24.08.2009, Qupperneq 6
6 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2009
Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja
mælum • skiptum um • traust og fagleg þjónusta • 30 ára reynsla
MEÐ TUDOR
fæst í Sólningu Kópavogi, Njarðvík og Selfossi
og Barðanum Skútuvogi
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
ÞRÁTT fyrir að Menningarnótt hafi
farið vel fram að mati lögreglu, sér-
staklega hegðun við auglýsta við-
burði, þá var ölvun ungmenna mikil
og áberandi.
Lögreglumenn sem voru á eftir-
litsgöngu í miðborginni helltu niður
miklu magni af áfengi hjá ungmenn-
um en það dugði þó skammt, þar
sem mannfjöldinn var mikill.
Dagskrá Menningarnætur fór vel
fram yfir daginn og fram að mið-
nætti, þegar flugeldasýningin fór
fram.
Sóttu börn í athvarf
Eftir það var áberandi mikil ölvun
og þá einkum meðal ungs fólks. Sér-
stakt athvarf var sett upp við Safn-
aðarheimili Dómkirkjunnar. Þangað
gátu ungmenni leitað í vanda og þá
var farið með yngstu börnin, sem
voru ýmist undir áhrifum áfengis
eða á ferð of seint að kvöldi miðað
við aldur, rakleiðis í athvarfið.
Starfsmenn höfðu síðan samband við
foreldra sem sóttu börnin. Samtals
komu upp um 25 slík tilfelli.
Engin alvarleg atvik komu þó upp
að sögn lögreglu. Um 10 minniháttar
líkamsárásarmál komu upp. Ekki er
útilokað að einhverjar tilkynningar
berist lögreglu fyrri part þessarar
viku. Um 130 mál voru í bókum lög-
reglu eftir nóttina og laugardaginn
allan. Tíu gistu í fangageymslum
lögreglu en pláss er fyrir 16 í klef-
unum.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu, segir Menn-
ingarnótt hafa farið vel fram. Þrátt
fyrir mikinn fjölda og ölvun sem
honum tengist þá hafi hegðun fólks
verið góð.
„Undirbúningurinn fyrir Menn-
ingarnótt er gríðarlega góður og
mikill hjá öllum sem að honum
koma. Sú vinna skilaði sér í vel
heppnuðum viðburði þar sem vel
gekk miðað við aðstæður og mann-
fjölda. Það voru engar alvarlegar
uppákomur mér vitanlega, en mikil
gleði hjá fólki.“
Ölvun og gleði
Ölvun ungmenna var mikil á Menningarnótt Miðað við
mannfjölda fór viðburðurinn vel fram að mati lögreglustjóra
Morgunblaðið/Júlíus
Í höndum lögreglu Hér sjást lögreglumenn leiða ungan pilt í átt að athvarfi fyrir ungmenni vegna áfengisdrykkju.
Morgunblaðið/Júlíus
Bjórnum hellt Stefán Eiríksson, Hörður Jóhannesson og Jón H. Snorrason,
yfirmenn í lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, sjást hér á vettvangi.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sigurð Boga Sævarsson
sbs@mbl.is
„MEGINSTEFNAN er sú að vera
með sem mest af upplýsingum í
kortagrunnunum, bæði um ökuslóða
og annað. Villist menn til dæmis út af
ætlaðri leið geta þeir með kortunum
komist aftur á rétta braut. Slíkt
vinnur gegn utanvegaakstri,“ segir
Ríkharður Sigmundsson, fram-
kvæmdastjóri RS – Import.
Merkja sína eigin slóða
Grein Kolbrúnar Halldórsdóttur
fyrrverandi umhverfisráðherra í
Morgunblaðinu sl. laugardag sem
ber yfirskrifina „Stjórnlaus vega-
gerð á hálendi Íslands“ hefur kallað
fram sterk viðbrögð. Þar segir hún
að tölvustýrður kortagrunnur
merktur fyrirtækinu R. Sigmunds-
syni sýni jeppaslóða inn í friðland
Þjórsárvera, þvert á það sem fram
komi í kortum Landmælinga. Þetta
segir Kolbrún afleiðingu lagabreyt-
ingar fyrir nokkrum árum en þá var
kortaútgáfa gefin frjáls. Í krafti
þess, segir Kolbrún, að „sjálfskipaðir
slóðagerðamenn“ geti nú farið sínu
fram og merkt sína eigin slóða, hvar
sem hjólför má finna.
RS – Import er í dag umboðsaðili
umræddra kortagrunna. Fram-
kvæmdastjórinn, Ríkharður Sig-
mundsson, segir stafræn kort fyrir-
tækisins af Þjórsárverum og öðrum
landsvæðum unnin úr margvíslegum
gögnum. Þar megi nefna kort frá
Landmælingum, loftmyndir, skipu-
lagsgögn auk þess sem einstaklingar
láti í té ýmsar upplýsingar, til dæmis
um gamlar þjóðleiðir eða jeppaslóða.
Í grein sinni nefnir Kolbrún að
hún hafi í Þjórsárverum séð för eftir
marga jeppa. Ríkharður telur lang-
sótt að kenna kortum þar um. Lík-
legast sé að menn hafi þvælst inn á
þetta svæði að vori til og þá misst
bíla sína niður um snjó eða frera.
„Í jeppasporti eins og öllu öðru
eru svartir sauðir. Flestir jeppa-
menn hafa þó metnað til þess að
ganga vel um landið og aka ekki utan
vega og í því efni eru góð kort mik-
ilvæg,“ segir Ríkharður.
Reyndi að spyrna við fæti
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Magnús Guðmundsson, forstjóri
Landmælinga, að hann hefði borið
kvíðboga fyrir því þegar kortaútgáfa
yrði gefin frjáls og reynt að spyrna
við fæti. Afleiðingar lagabreyting-
anna væru nú að koma í ljós. Meg-
inmálið væri þó, að skipulagsreglur á
hálendinu væru víða óljósar og ekki
alltaf skýrt hvaða slóðar væru opnir
umferð og hverjir ekki.
Segir góð kort
vinna gegn ut-
anvegaakstri
Víða er óljóst hvaða slóðar eru opnir
Morgunblaðið / RAX
Þjórsárver Náttúruparadís sem
þykir raskað með merktum slóðum.
Stefnan er sú að vera með sem
mest af upplýsingum í stafræn-
um kortum. Slóðagerðarmenn
fara sínu fram, segir fyrrverandi
umhverfisráðherra. Skipulags-
reglur eru víða óljósar.
SIGURÐUR Kristján
Oddsson þjóðgarðs-
vörður á Þingvöllum
er látinn, 69 ára að
aldri. Hann varð
bráðkvaddur síðast-
liðinn laugardag þeg-
ar hann var með hópi
fólks úr röðum
Ferðafélags Akureyr-
ar sem gekk á
Herðubreið.
Sigurður fæddist á
Hafursá í Fljótsdal
22. janúar 1940, en
ólst upp á Akureyri.
Foreldrar hans voru
hjónin Oddur Kristjánsson húsa-
smíðameistari og Guðbjörg Kjer-
úlf. Sigurður var byggingameistari
að iðn en nam byggingatæknifræði
í Svíþjóð. Að námi loknu starfaði
hann við uppbyggingu álversins í
Straumsvík fyrst á vegum sænska
verktakafyrirtæksins Siab og var
síðar starfsmaður Ísal. Var seinna
bæjartæknifræðingur í Hafn-
arfirði. Eftir það stofnaði hann í
félagi við aðra og
starfrækti Tækniþjón-
ustuna í Reykjavík.
Árið 1995 var Sig-
urður ráðinn þjóð-
garðsvörður á Þing-
völlum og
framkvæmdastjóri
Þingvallanefndar.
Gegndi hann því starfi
til dauðadags. Sig-
urður var mikill
útivistarmaður og á
yngri árum virkur
þátttakandi í skáta-
og björgunarsveit-
arstarfi. Var jafn-
framt þátttakandi í margvíslegu
öðru félagsstarfi og gegndi þar
trúnaðarstörfum.
Eftirlifandi kona Sigurðar er
Herdís Tómasdóttir, textíl-
hönnuður og bókasafnsfræðingur.
Börn þeirra eru þrjú: Tómas Már,
verkfræðingur og forstjóri Alcoa á
Íslandi, Kristín Vilborg, leirlista-
kona og kennari og Sigríður Björg
myndlistarmaður.
Andlát
Sigurður K. Oddsson
þjóðgarðsvörður
AÐEINS eru nokkrir dagar í fyrstu
sauðfjárréttir haustsins, en réttað
verður í Hlíðarrétt í Mývatnssveit
næstkomandi sunnudag, 30. ágúst.
Ólafur R. Dýrmundsson, ráðunaut-
ur Bændasamtaka Íslands, hefur
tekið saman lista um fjár- og stóð-
réttir haustið 2009 og er hann að-
gengilegur almenningi á vefnum
www.bondi.is. Almennt má segja að
réttir séu á svipuðum tíma og í
fyrra.
Fyrstu stóðréttir haustsins verða
í Miðfjarðarrétt laugardaginn 5.
september.
Fyrstu réttir hausts-
ins verða um næstu
helgi í Mývatnssveit
Morgunblaðið/RAX