Morgunblaðið - 24.08.2009, Síða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2009
Það veldur nánast vanlíðan aðhorfa á hvatningarmyndbandið
fyrir starfsmenn Kaupþings, sem nú
hefur ratað á Netið.
Ofmetnaður er vægasta orðið, semhægt er að láta sér detta í hug.
Stórmennskubrjálæði er kannski
heldur nær lagi.
Mynd-skeið
af ýmsum
helztu stór-
mennum
sögunnar,
t.d. Martin
Luther
King, Móð-
ur Theresu
og Albert Einstein, renna undir
fyrirtækisáróðrinum um að allt sé
hægt, ætli fólk sér það nógu ákveðið.
Kaupthinking“ var nýja tegundinaf hugsun hjá Kaupþingi. Skil-
greiningin á slíkum þankagangi var
„handan venjulegrar hugsunar.“
Kaupthinking þýddi meðal annarsað tvöfalda stærð fyrirtækisins
árlega í átta ár. Blása út efnahags-
reikninginn, með þekktum afleið-
ingum.
Kaupþing ætlar sér samkvæmtmyndbandinu að „snúa á skrif-
ræðið“. Þar er væntanlega átt við
fjármálaeftirlit, bankalöggjöf og
annað slíkt leiðindatuð.
Því verður ekki neitað að Kaup-þingsmenn og aðrir íslenzkir
bankamenn náðu árangri, sem fáir
töldu mögulegan.
Að setja heilt land á hvínandi haus-inn á nokkrum dögum.
Hrunið var sannarlega handanþess sem flest venjulegt fólk gat
ímyndað sér fyrir ári.
Ofmetnaður
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 15 skýjað Lúxemborg 24 heiðskírt Algarve 31 heiðskírt
Bolungarvík 5 rigning Brussel 27 léttskýjað Madríd 36 heiðskírt
Akureyri 13 skýjað Dublin 19 skýjað Barcelona 28 heiðskírt
Egilsstaðir 11 skýjað Glasgow 18 skúrir Mallorca 30 heiðskírt
Kirkjubæjarkl. 11 skýjað London 27 heiðskírt Róm 33 léttskýjað
Nuuk 11 léttskýjað París 29 heiðskírt Aþena 31 heiðskírt
Þórshöfn 12 skýjað Amsterdam 25 heiðskírt Winnipeg 21 léttskýjað
Ósló 18 léttskýjað Hamborg 23 heiðskírt Montreal 23 alskýjað
Kaupmannahöfn 20 heiðskírt Berlín 24 heiðskírt New York 26 skýjað
Stokkhólmur 16 heiðskírt Vín 23 léttskýjað Chicago 20 skýjað
Helsinki 20 skýjað Moskva 16 skýjað Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
24. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2.41 0,1 8.52 4,0 15.01 0,3 21.10 3,9 5:48 21:13
ÍSAFJÖRÐUR 4.50 0,1 10.52 2,3 17.10 0,2 23.05 2,3 5:43 21:28
SIGLUFJÖRÐUR 1.09 1,4 7.13 0,1 13.31 1,4 19.21 0,1 5:25 21:12
DJÚPIVOGUR 5.56 2,4 12.14 0,2 18.16 2,2 5:15 20:45
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á þriðjudag
Austan og suðaustan 5-13 m/s,
hvassast um landið vestanvert.
Rigning á sunnanverðu landinu,
en annars stöku skúrir. Hiti 10
til 16 stig.
Á miðvikudag og fimmtudag
Austlæg átt, 5-10 m/s, skýjað
og víða skúrir. Fremur milt í
veðri.
Á föstudag og laugardag
Norðaustlæg átt og dálítil rign-
ing eða skúrir, en bjart með
köflum og þurrt að mestu á SV-
og V-landi. Kólnar lítið eitt.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Hvasst við norður- og austur-
ströndina fram að hádegi, en
síðan norðvestantil. Snýst í
suðaustanátt eftir hádegi, fyrst
austantil og dregur úr vindi.
Rigning með köflum. Hiti 7 til
14 stig, hlýjast suðvestanlands.
ALLS komust 36 arnarungar á
legg í sumar og hafa þeir ekki
verið fleiri í manna minnum.
Íslenski hafarnarstofninn telur
nú um 65 pör og urpu 45 þeirra í
vor. Varp misfórst hjá 19 þeirra,
þar á meðal hjá því pari sem
fylgst var náið með á vefmynda-
vél Arnarseturs Íslands. Gífurleg
aðsókn fólks var á vefinn á varp-
tímanum síðastliðið vor.
Besta ár fram að þessu var
2004 en þá komust 34 ungar á
legg. Ástæður þess að varp mis-
ferst eru m.a. ófrjó egg og
reynsluleysi ungra para. Einnig
hafa sum pör verið trufluð vísvit-
andi en minna bar á slíku en
mörg undanfarin ár, að því er
fram kemur á heimasíðu Nátt-
úrufræðistofnunar Íslands.
Varpsvæði arna nær nú frá
Faxaflóa og vestur og norður um
í Húnaflóa. Áður urpu ernir um
land allt og var stofninn þá tvisv-
ar til þrisvar sinnum stærri en í
dag. Fækkun hófst í kjölfar of-
sókna og eitrunar á 19. öld og
urðu pörin fæst um 20 kringum
1960. Fullorðnir ernir hafa sést í
æ ríkari mæli á fornum arn-
arslóðum á Suðurlandi og Norð-
urlandi en ekki ílenst þar enn
sem komið er.
Náttúrufræðistofnun Íslands
fylgist með arnarstofninum í
samvinnu við Fuglaverndarfélag
Íslands og Náttúrustofurnar í
Stykkishólmi og Bolungarvík.
sisi@mbl.is
Örninn Konungur íslenskra fugla svífur tignarlega um loftin.
Morgunblaðið/Golli
Alls komust 36
arnarungar á legg
Hafa ekki verið fleiri í manna minnum
KORNASÚLUNGUR (Suillus granulatus)
fannst í Miðhálsskógi í Öxnadal fyrr í mánuð-
inum, að því er greint er frá á vefsíðu Náttúru-
fræðistofnunar Íslands.
Sveppurinn er svonefndur pípusveppur og
finnst víða Evrópu þar sem hann vex í frjóum
jarðvegi með furu. Sveppurinn þykir „prýði-
legur“ matsveppur, að því er segir á vefsvæði
Náttúrufræðistofnunar.
Guðríður Gyða Eyjólfsdóttir, sveppasérfræð-
ingur Náttúrufræðistofnunar, fann sveppinn í
matsveppaleiðangri 17. ágúst sl. „Þetta er fyrsti
sveppurinn sem finnst af þessari tegund, þannig
að mögulegt sé að sanna það með eintaki. Það er
ekki ólíklegt að þessi tegund vaxi víðar með furu
en hann hefur ekki greinst, eða sést, fyrr en
nú.“
Á vefsvæði Náttúrufræðistofnunar kemur
fram að kornasúlungs sé getið í ferðadagbók
Mortens Lange, dansks sveppafræðings, sem
rannsakaði fungu Suðurlands fyrir réttum 50 ár-
um og fann eitt aldin þeirrar tegundar í gamla
barrskógarreitnum við Rauðavatn í Reykjavík 1.
september 1959. En þar sem því var ekki safnað,
eins og áður segir, þá er ekki unnt að staðfesta
fund tegundarinnar hérlendis. magnush@mbl.is
Kornasúlungur fannst í Öxnadal