Morgunblaðið - 24.08.2009, Blaðsíða 11
Fréttir 11VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2009
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
ÁGREININGUR skilanefndar
Kaupþings og bresk-íranska
kaupsýslumannsins Roberts
Tchenguiz vegna sölu á verslana-
keðjunni Somerfield verður leyst-
ur fyrir breskum dómstólum,
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins.
Ágreiningurinn snýst um 140
milljónir punda, eða tæplega þrjá-
tíu milljarða króna, sem Tchengu-
iz tók til hliðar vegna sölunnar á
Somerfield. Um er að ræða fjár-
muni sem áttu að renna til Osca-
tello Investments Ltd. á Jómfrúr-
eyjum, móðurfélags samstæðu í
eigu Tchenguiz, og þaðan til
Kaupþings. Tchenguiz tilkynnti
skilanefndinni í október á síðasta
ári að hann myndi ekki ráðstafa
söluhagnaðinum af Somerfield til
Oscatello heldur til þriggja ann-
arra félaga í sinni eigu. Í fram-
haldi gekk skilanefndin að veðum
og gerði fyrirætlanir Tchenguiz
að engu. Dómsmálið snýst því um
meintan rétt hans til að taka fjár-
muni undan veðum.
Skilanefnd Kaupþings telur sig
hafa mjög sterkt mál í höndunum,
en helsta málsástæða Tchenguiz í
málinu er munnlegt loforð frá
Hreiðari Má Sigurðssyni, fyrrver-
andi forstjóra Kaupþings.
Tchenguiz heldur því fram að
Hreiðar Már hafi fundað með sér
á veitingastað í Lundúnum, fyrir
hrun bankans, og samþykkt að
fjármunir af sölunni á Somerfield
rynnu ekki til Kaupþings. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins eru miklar efasemdir um
hvort Hreiðar hafi getað skuld-
bundið bankann með munnlegu
loforði þar sem meginreglan í
bankaviðskiptum séu skriflegir
samningar. Einnig verður sönn-
unarstaðan mjög erfið í slíku máli
þar sem engin skrifleg gögn eru
til um fundinn. Auk þess vekur
það upp grunsemdir að Tchengu-
iz kom fram með skýringar um
fundinn eftir á, löngu eftir að
skilanefndin hélt fram rétti sínum
í málinu, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins. Ekki náðist í
Hreiðar Má í gær.
Skilanefnd Kaupþings tók sem
kunnugt er Oscatello yfir í maí á
þessu ári. Yfirtakan var sprottin
af 643 milljóna punda útistand-
andi skuld á yfirdráttarsamningi
sem Oscatello fékk hjá Kaupþingi,
um er að ræða 136 milljarða
króna. Sú skuld er enn ógreidd.
Loforð Hreiðars Más er vörn Tchenguiz
Hreiðar Már
Sigurðsson
Robert
Tchenguiz
Sigurður G. Guð-
jónsson telur að
fólk sem er með
húsnæðislán eigi
aðeins að greiða
lánin til baka eft-
ir þeirri áætlun
sem upphaflega
var gengið útfrá
þegar lánasamn-
ingur var und-
irritaður. Þetta
kom fram í kvöldfréttum Stöðvar 2
í gær.
Sigurður segir 36. grein samn-
ingalaga tryggja lántakendur fyrir
forsendubresti. Því eigi fólk aðeins
að haga afborgunum sínum eftir
upphaflegum áætlunum og láta síð-
an bankann um að sækja rétt sinn á
frekari greiðslum fyrir dómstólum.
Dómstólar dæmi síðan um málið að
lokum.
Greiðið aðeins
samkvæmt upp-
haflegri áætlun
Sigurður G.
Guðjónsson
Framleiðsla á
bifreiðum í Bret-
landi er nú að
glæðast á nýjan
leik eftir nær al-
gjört hrun und-
anfarið ár. Þrátt
fyrir aukningu
var framleiðslan
í júlí tæplega 18
prósent minni
miðað sama mánuð fyrir ári. Í júlí
voru framleiddir 107.635 bílar sam-
anborið við 91.718 bíla mánuðinn á
undan. Þá var samdráttur miðað
við júnímánuð árið á undan. Rík-
isstjórn Bretlands hefur reynt að
örva efnahagslíf landsins með ýms-
um aðgerðum, meðal annars með
því að auðvelda fólki að eignast
nýja bíla með því að setja gamla
upp í, að því fram kemur á vefsvæði
breska ríkisútvarpsins BBC. Alist-
air Darling, fjármálaráðherra Bret-
lands, segir aðgerðirnar skila ár-
angri.
Bílasala eykst í
Bretlandi
Alistair Darling
Efnahagur
heimsins er far-
inn að sýna aug-
ljós batamerki,
þó enn sé langt í
land með að ein-
stök lönd nái að
rétta úr kútnum.
Þetta sagði Ben
Bernanke, seðla-
bankastjóri
Bandaríkjanna, í fyrirlestri í Wash-
ington DC.
Kenneth Rogoff, prófessor við
Harvard og fyrrverandi aðal-
hagfræðingur Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, segir í viðtali við Bloom-
berg að allir séu sammála um að
augljós merki um, að kreppan sé á
undanhaldi, séu sjáanleg. Hins veg-
ar geti atvinnuleysi víða haldið
áfram að aukast, áður en þróunin
snýst við á nýjan leik.
Segir batamerkin
farin að sjást betur
Ben Bernanke
La
us
n:
Lo
ka
ri
tg
er
ð
Komdu við í næsta útibúi, við
tökum vel á móti þér um land allt.
ÁFRAM ÍSLAND
Gangi ykkurvel
á EM í Finnlandi
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
3
8
5
6
1
N
B
I
h
f.
(L
a
n
d
s
b
a
n
k
in
n
),
k
t.
4
7
10
0
8
-2
0
8
0
.
Stelpurnar okkar hefja keppni á EM í Finnlandi í dag. Árangur þeirra og dugnaður er okkur
öllum mikil hvatning. Landsbankinn er stoltur bakhjarl íslenska kvennalandsliðsins og óskar
stelpunum góðs gengis á mótinu.
Viðskiptavinir Landsbankans geta sótt glæsilegt veggspjald
af íslenska kvennalandsliðinu í næsta útibúi bankans.