Morgunblaðið - 24.08.2009, Blaðsíða 12
Þrýst á stjórn Skota?
BRESKA stjórnin hefur vísað alger-
lega á bug fullyrðingum sonar
Muammars Kaddafis Líbýuleiðtoga,
Seif al-Islams, um að hún hafi beitt
skosku heimastjórnina þrýstingi til
að hún leysti úr haldi Líbýumanninn
Abdulbaset al-Megrahi sem dæmd-
ur var fyrir aðild að Lockerbie-
tilræðinu 1988.
Dagblaðið Guardian bendir á að í
bréfi frá Gordon Brown forsætisráð-
herra til Gaddafis sé rifjað upp að
leiðtogarnir hafi hist í tengslum við
G-8 fund á Ítalíu fyrir hálfum öðrum
mánuði. Brown hafi þá sagt að ef
Skotar létu manninn lausan væri
rétt að efna ekki til „mikils fagn-
aðar“ í Líbýu við komu mannsins
vegna þess að það myndi koma illa
við aðstandendur fórnarlamba Loc-
kerbie-tilræðisins. Áður hefur
Brown sagt að lítillega hafi verið
minnst á fangann en hann virðist
þegar vera byrjaður að setja Gad-
dafi skilyrði fyrir sex vikum.
Blaðið vitnar einnig í leynilegt
bréf frá aðstoðarutanríkisráðherr-
anum Ivan Lewis til skoska dóms-
málaráðherrans. Þar segir að ekki
sé nein lagaleg ástæða til að halda
fanganum. „Ég vona að með þetta í
huga teljir þú þér fært að verða við
beiðni Líbýumanna.“
Megrahi var fagnað sem hetju í
Líbýu og hefur það vakið hörð við-
brögð í Bandaríkjunum þar sem
flest fórnarlamba hans voru banda-
rísk. Seif al-Islam sagði m.a. að
Bretar hefðu með lausn Megrahis
viljað tryggja sér olíuviðskipti.
kjon@mbl.is
Brown vildi þókn-
ast Líbýumönnum
12 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2009
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
SAGAN af ráninu á skipinu Arctic
Sea, sem er í eigu rússneskra aðila,
er farin að minna meira á spennu-
sögu en veruleikann. Rússneskt
blað, Novaja Gazeta, heldur því nú
fram að ísraelska leyniþjónustan,
Mossad, hafi staðið á bak við ránið á
Eystrasalti. Ástæðan sé að skipið
hafi flutt með leynd stýriflaugar og
loftvarnaflaugar til Írans. Vefsíða
Prövdu tók undir og sagði að „ríki
með tengsl við Úkraínu“ hefði komið
í veg fyrir að vopnin kæmust á leið-
arenda.
Dímítrí Rogozín, sendiherra
Rússlands hjá Atlantshafsbandalag-
inu, vísar þessum fregnum á bug og
segir að um „fáránlegt rugl“ sé að
ræða. Talsmenn ísraelskra stjórn-
valda segja einnig að ekki sé neitt
hæft í þessum frásögnum.
Skipið er nú á leið til Novorossísk
við Svartahaf. Hinir meintu ræn-
ingjar, átta menn af ýmsu þjóðerni
og nokkrir úr áhöfninni, munu vera í
hinu alræmda Lefortovo-fangelsi
gamla KGB í Moskvu þar sem yf-
irheyrslur standa yfir. Hafa átt-
menningarnir þegar verið ákærðir
fyrir mannrán og sjórán, að sögn
The Jerusalem Post.
Vopnin falin í leynirými
Arctic Sea fór frá Finnlandi 23.
júlí, að sögn með timburfarm áleiðis
til Alsírs. Daginn eftir, þegar skipið
var í grennd við sænsku eyjuna Got-
land, komust átta vopnaðir menn,
sem sögðust vera umhverfisvernd-
arsinnar, um borð. Þeir skipuðu
áhöfninni að sigla um Ermarsund og
suður með Evrópu og Afríku. Eftir
umfangsmikla leit fundu rússnesk
herskip Arctic Sea loks 17. ágúst ná-
lægt Grænhöfðaeyjum við strönd
Vestur-Afríku. Ræningjarnir voru
handteknir og fluttir til Rússlands
ásamt áhöfn skipsins.
Novaja Gazeta segir að Arctic Sea
hafi í raun verið á leið til Írans með
stýriflaugar af gerðinni X-55. Flaug-
arnar draga allt að 3.000 km og geta
borið kjarnorkusprengjur. Einnig
séu um borð loftvarnaflaugar af
gerðinni S300. Vopnin hafi verið fal-
in í leynilegu rými.
Spennusagan þróast
Í HNOTSKURN
»Ísraelar segja að frásagnirblaðanna séu bara „venjuleg-
ar samsæriskenningar“ en sér-
fræðingar benda á að Ísraelar
hafi oft rænt skipum sem flytja
vopn til óvinaríkja þeirra.
»Shlomo Brom, fyrrverandihershöfðingi í Ísrael, segir að
ránið hafi misheppnast og sé því
varla fjöður í hatt Mossad.
Ísarelar sagðir hafa rænt Arctic Sea sem hafi átt að flytja
Írönum með leynd rússneskar stýri- og loftvarnaflaugar
Flutningaskip Arctic Sea var hlaðið
timbri, það er smíðað í Finnlandi en
nú í rússneskri eigu.
UM 10 þúsund manns verða flutt á brott frá Agios Stef-
anos, einu af úthverfum Aþenu, en skógareldar hafa nú
logað stjórnlaust norðaustan við borgina frá því á
föstudag. Margir neita að yfirgefa hús sín og reyna að
slökkva logana með trjágreinum og garðslöngum. Ekki
er vitað til að nokkur hafi farist, en hundruð húsa hafa
brunnið og um 12.000 hektarar af landi eru nú orðin að
sótugri eyðimörk. Mikið var um trjálundi á svæðinu.
Sterkir vindar gera um 600 slökkviliðsmönnum erfitt
um vik, en þyrlum og flugvélum er beitt gegn eldunum.
Reuters
Barist í örvæntingu við kjarrelda í Grikklandi
Logarnir ógna úthverfum Aþenu
UM 20.000
manns voru við-
stödd útför Kim
Dae-jungs, fyrr-
verandi forseta
Suður-Kóreu, um
helgina. Sendi-
menn Kim Jong-
ils, leiðtoga
Norður-Kóreu,
fluttu forseta S-
Kóreu, Lee Myung-bak, kveðju
kommúnistaleiðtogans þar sem
hann mun hafa sagt frá hug-
myndum sínum um leiðir til að auka
samstarf ríkjanna tveggja. Sam-
skiptin hafa verið stirð frá því að
Lee tók við embætti og hafa norð-
anmenn kallað hann „svikara“.
kjon@mbl.is
Er loksins þíða í
pípunum á Kór-
euskaganum?
Kim Jong-il
BANDARÍSKI herinn hyggst að
sögn The New York Times af-
henda Alþjóða Rauða krossinum
lista með nöfnum herskárra ísl-
amista sem sitja í leynilegum fang-
elsum Bandaríkjamanna í Írak og
Afganistan.
Bandaríska varnarmálaráðu-
neytið hefur fram til þessa sagt að
það kynni að torvelda baráttuna
gegn hryðjuverkum ef nöfnin yrðu
gefin upp. Myndu upplýsingar um
nöfn fanganna geta veitt öðrum
herskáum íslamistum sem leika
lausum hala mikilvægar upplýs-
ingar.
kjon@mbl.is
Segja frá nöfnum
íslamista í haldi
ABDULLAH
Abdullah, for-
setaefni í kosn-
ingunum í Afgan-
istan sl. fimmtu-
dag, sakar stjórn
Hamids Karzai
forseta um stór-
fellt kosninga-
svindl en segist
samt ekki munu
hvetja til mótmæla. Hann ætli hins
vegar að leita réttar síns.
„Ég mun reyna að hafa stjórn á til-
finningunum og forðast allt sem get-
ur valdið ofbeldisverkum,“ sagði Ab-
dullah í viðtali við breska blaðið
Financial Times.
Þegar bráðabirgðatölur yrðu birt-
ar á næstu dögum kæmi í ljós hvort
embættismönnum Karzais hefði tek-
ist að tryggja forsetanum sigur með
svikum. „Nær útilokað“ væri að for-
setinn hefði hreppt hreinan meiri-
hluta strax í fyrri umferðinni.
Abdullah sagði að embættismenn
stjórnvalda hefðu hindrað fulltrúa
sína í að fara á kjörstaði, einnig hefði
verið stungið fölsuðum atkvæðaseðl-
um í kjörkassa. Hann taldi að í suð-
urhéruðunum hefði kjörsókn verið 5-
10%. Ef tölur sýndu að hún hefði
verið mun meiri væri það merki um
tilraun til kosningasvindls.
kjon@mbl.is
Abdullah
segir svik
vera í tafli
Hvetur til stillingar
Abdullah Abdullah
Hlíðasmára 14
sími 588 2122
www.eltak.is
Eltak sérhæfir sig
í sölu og þjónustu
á vogum
Bjóðum mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
líðas ára 14
Sí i 588 2122
.eltak.is
ÖÐRU hverju koma upp vandamál
á íþróttamótum vegna þess að efa-
semdir vakna um raunverulegt kyn
keppenda, nú síðast er deilt um kyn
Casters Semenya, sem vann 800 m
hlaup kvenna á heimsmeistara-
mótinu í Berlín.
Breski blaðamaðurinn Dominic
Lawson rifjar upp í Times að þegar
hin tékkneska Jarmila Kratochvi-
lova setti lífseigt heimsmet sitt í
800 m hlaupi 1983 hafi sumir líka
efast um að hún væri kona. Lawson
leggur til að framvegis verði engin
aðgreining, kynin keppi hlið við
hlið á íþróttamótum. Sá besti eða sú
besta, eigi að vinna, það sé hið full-
komna jafnrétti. kjon@mbl.is
Reuters
Jafnrétti? Tatjana Lebedeva frá
Rússlandi í langstökki í Berlín.
Kynin keppi
innbyrðis