Morgunblaðið - 24.08.2009, Síða 21
til himnaríkis er, en ég veit að þú
nýtur þín í hverju einasta skrefi og
er viss um að einhvers staðar á
leiðinni finnurðu þér fallega laut
og leggst niður með hálmstrá í
munni og nýtur lífsins. Eflaust
munu margir taka vel á móti þér
eftir þann göngutúr.
Við munum ávallt eiga þessar
góðu minningar og fleiri til þess að
hlýja okkur við.
Hvíldu í friði.
Sigurður Vignir og Guðni Þór.
Lát Gísla Albertssonar kom
okkur hjónunum ekki á óvart því
að hann var búinn að vera lengi
mikið veikur, en samt snerti dán-
arfregnin okkur djúpt eins og jafn-
an vill verða þegar um nákominn
vin eða ættingja er að ræða, og
Gísli var bróðir konu minnar og
mágur minn.
Gísli varð fljótt liðtækur við bú-
skaparstörfin á og hafði hann yndi
af þeim og vann að þeim með
áhuga og kappi meðan honum
gafst tækifæri til. Sem dæmi um
búskaparáhugann má nefna að ef
reiða átti heim hey af engjunum
var hann gjarnan búinn að sækja
hestana fram á dal svo snemma
morguns að heyskaparfólkið var
ekki komið á fætur. Og þar sem
Gísli fékk orð fyrir að vera af-
burða fjárglöggur hafði hann
flesta þá kosti til að bera sem
prýða mega fyrirmyndarbónda.
En örlögin ætluðu honum annað
hlutverk eins og brátt verður að
vikið. Meðan hann stundaði nám í
Héraðsskólanum á Reykjanesi
veiktist hann af berklum og fór á
Vífilsstaðahælið vorið 1954. Þegar
hann tók að hressast lá leiðin að
Reykjalundi til að safna kröftum
fyrir lífsbaráttuna. Hann ákvað að
hefja iðnnám á Reykjalundi og
seinna lærði hann húsasmíði. Það
reyndist farsæl ákvörðun fyrir
framtíð Gísla sem starfaði lengst
af sem húsasmíðameistari.
Nokkru eftir að Gísli útskrif-
aðist frá Reykjalundi vann hann
um hríð við eina Sogsvirkjunina.
Þá varð hann fyrir því slysi að pa-
tróna sprakk í höndum hans með
þeim afleiðingum að hann missti
tvo fingur hægri handar. Var þetta
mikið áfall og bagalegt fyrir smið
og raunar hvern sem var. En Gísli
var harður af sér og jafnaði sig
furðufljótt af þessum áverka. Kom
þar og til hjálpar að hann var örv-
hentur og gat hann er tímar liðu
rekið nagla með hægri hendi jafnt
sem þeirri vinstri.
Margt hefur verið honum Gísla
mótdrægt. En á hinn bóginn hefur
hann líka hlotið höpp og lifað um
alllangt skeið hamingjuríku lífi.
Þannig lék lánið við Gísla þegar
hann keypti miða í happdrætti
SÍBS er hann var í Iðnskólanum á
Reykjalundi því að þá vann hann
tveggja herbergja blokkaríbúð við
Kleppsveg þar sem þau Villa
bjuggu fyrstu búskaparárin. En
mesta gæfa Gísla var að eignast
ágætan lífsförunaut, Vilborgu G.
Víglundsdóttur, sem bjó honum
hlýlegt heimili, ól honum fimm góð
börn og studdi hann dyggilega í
lífsbaráttunni.
Nú síðustu ár reyndi mikið á
fjölskylduna í hinum langvarandi
veikindum Gísla. Naut hann þá vel
frábærrar umhyggju eiginkonunn-
ar og barna þeirra. En ekki skal
heldur gleyma Arndísi, elstu dótt-
ur Gísla sem hann átti með Sig-
rúnu Oddsteinsdóttur fyrir hjóna-
band sitt. Arndís sýndi föður
sínum fórnfúsa umönnun og var
gott að njóta nærveru hennar því
að hún var sjúkraliði.
Gísli var drengur góður eins og
sagt var um suma fornmenn. Hann
var meðalmaður á hæð og bjartur
yfirlitum. Hann var sérlega skap-
góður og vinsæll maður enda
hvers manns hugljúfi sem honum
kynntust. Við hjónin varðveitum
minningar okkar um Gísla Alberts-
son og sendum ekkjunni, börnum
og ástvinum þeirra innilegar sam-
úðarkveðjur.
Torfi Guðbrandsson
og Aðalbjörg Albertsdóttir.
Minningar 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2009
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
English Springer Spaniel
til sölu, aðeins 3 rakkar (hundar) eftir.
Tilbúnir til afhendingar. Verð 110.000
kr. Gunnar, sími 660 1050.
Garðar
GRÓÐURMOLD
Úrvals gróðurmold, hellusandur og
göngustígaefni afgr. á bíla og kerrur.
Kambur ehf., Geirlandi v/Suðurlands-
braut, sími 892 0111 / 554 3922,
kamburehf@simnet.is
Gisting
Sumarhús til leigu miðsvæðis á
Akureyri. Þrjú svefnherbergi (78 fm).
Rúm fyrir sjö. Verönd og heitur pottur.
Glæsilegt útsýni yfir Pollinn. Frítt net-
samband. Uppl. á www.saeluhus.is
eða í síma 618-2800.
Hljóðfæri
Dúndurtilboð
Kassagítarar: 1/4 stærð kr.
10.900 pakkinn með poka,
strengjasetti og stilliflautu. 1/2
stærð kr. 7.900. Full stærð kr.
12.900. 3/4 kr. 10.900. 4/4 kr.
12.900. Rafmagnsgítarpakkar frá
kr. 34.900. Hljómborð frá kr.
8.900. Trommusett kr.69.900
með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125.
www.gitarinn.is
Húsnæði í boði
Til leigu er tveggja herbergja
íbúð með sérinngangi og garði í
Borgarhverfi í Grafarvogi.
Upplýsingar í síma 899 7012.
Húsnæði óskast
Sumarhús
Sumarhúsalóðir í Kjósinni
Til sölu eignarlóðir Möðruvöllum 1
(Norðurnes) í Kjós. Upplýsingar í
símum 561 6521 og 892 1938.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum til sölu.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Microsoft kerfisstjóranám
Windows Server 2008 Administrator
nám hefst 14.9. Verð kr. 229.000 fyrir
341 st. nám. Upplýs. og skráning á
www.raf.is og í síma 863 2186.
Rafiðnaðarskólinn.
Til sölu
www.verslun.is
Pöntunarsími: 5351300
7500.-+vsk
Flugnabanar
VERSLUNARTÆKNI
Margar stærðir
verð frá:
Íslenskur útifáni
Stór 100x150 cm. 3.950 kr.
Krambúðin, Skólavörðustíg 42,
Strax Laugarvatni, Strax Mývatni,
Strax Seyðisfirði, Strax Flúðum,
Úrval Selfossi, Úrval Egils-
stöðum, Hyrnan Borgarnesi,
Strax Búðardal.
Hús fyrir yngsta fólkið
Mjög smekkleg 2,5 fm barnahús,
sannkölluð garðaprýði.
Gott verð.
JABOHÚS, Ármúla 36, Rvk.
sími 581 4070, www.jabohus.is
Óska eftir
KAUPUM GULL
Kaupum gull til að smíða úr. Spörum
gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins
í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og
Óskar - jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL !
Ég, Magnús Steinþórsson gull-
smíðameistari, kaupi gull, gull-
peninga og gullskartgripi af fólki
og veiti ég góð ráð. Kaupi allt
gull, nýlegt, gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns.
Upplýsingar á demantar.is, í síma
699 8000 eða komið í
Pósthússtræti 13. Verið velkomin.
Þjónusta
MÓÐUHREINSUN GLERJA
Er komin móða eða raki á milli
glerja? Móðuhreinsun ÓÞ.
Sími 897-9809.
Ýmislegt
Teg. 5209 - glæsilegur og haldgóður
í CDE-skálum á kr. 3.950,- háar buxur
í stíl á kr. 1.950,-
Teg. 9176 - SPANGARLAUS í DE-
skálum á kr. 3.950,- mjög vænar og
góðar buxur fást við á kr. 2.650,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán.-fös. 10-18,
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
SKÓR FYRIR SKÓLASKVÍSUR!
Sérlega mjúkir og þægilegir skór úr
leðri fyrir unga fætur.
Stærðir: 36 - 40.
Verð: 12.450.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Mjúkar þægilegar
herramokkasíur úr leðri.
Litur: svart. Stærðir: 41 - 46.
Verð: 11.950.-
Vandaðir herraskór úr leðri
með góðum sóla. Vel breiðir og
þægilegir. Litur: svart.
Stærðir: 40 - 47.
Verð: 12.450.-
Sportlegir herraskór úr leðri
Litur: svart. Stærðir. 41 -48.
Verð: 10.985.-
Misty skór, Laugavegi 178,
sími 551 2070,
opið: mán. - fös. 10 - 18.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Vélar & tæki
Vélaleiga og hellulagnir
Traktorsgrafa, minigrafa og vörubíll.
Hellulagnir, drenlagnir og jarðvegs-
skipti. Margra ára reynsla og vönduð
vinnubrögð. Mr vélar, símar 698 1710
og 616 1170.
Bátar
Strandveiðimenn
Fiskiker gerðir 300, 350, 450
og 460. Línubalar 70 og 80 l.
Allt íslensk framleiðsla í hæsta
gæðaflokki.
www. borgarplast.is
Völuteig 31,
Mosfellsbæ,
s: 561 2211.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
KRINGLUBÓN ekið inn stóri-
litli turn. Opið mán.-fös. 8-18,
lau. 10-18. S. 534 2455
GÆÐABÓN Hafnarfirði bílakj.
Firðinum (undir verslunarm.)
Opið mán.-fös. 8-18. S. 555 3766
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, mössun, teflon, blettun,
bryngljái, djúphreinsun.
Bón og þvottur, Vatnagörðum 16,
sími 445 9090
Bón & þvottur. Gerir meira en að þvo
og bóna bílinn þinn, djúphreinsa og
nánast hvað sem þú biður um. Við
lagfærum bíla fyrir skoðun og skilum
þeim nýskoðuðum heim til þín. Fram-
kvæmum einnig smærri viðgerðir.
Bjóðum einnig fyrirtækjum upp á
nætur- eða helgarþjónustu - ódýr og
góð þjónusta. www.bonogtvottur.is
sími 445-9090, gsm 615-4090.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Snorri Bjarnason
BMW 116i ´07.
Bifhjólakennsla.
8921451/5574975. Visa/Euro.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '08.
8924449/5572940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
8637493/5572493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '08.
6960042/5666442.
Húsviðhald
Skipti um rennur og bárujárn
á þökum, einnig smávægilegar
múrviðgerðir og ýmislegt fl.
Þjónum landsbyggðinni einnig.
Upplýsingar í síma 659-3598.
Varahlutir
www.netpartar.is
PARTASALA ...NOTAÐIR VARAHLUTIR Í NÝLEGA BÍLA
486 4499
486 4477
Smáauglýsingar augl@mbl.is
Farðu inn á mbl.is/smaaugl