Morgunblaðið - 24.08.2009, Page 24
24 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2009
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@mbl.is
Í ÓLAFSDAL stendur yfir mynd-
listarsýningin Dalir – Hólar –
Handverk. Þar sýna ellefu lista-
menn og náttúra og menning svæð-
isins er uppspretta verka þeirra.
Skólahús gamla Landbúnaðarskól-
ans í Ólafsdal og umhverfi hans er
útgangspunktur sýningarinnar.
Hildur Bjarnadóttir myndlistar-
kona er ein þeirra listamanna sem
eiga verk á sýningunni en hún
hafði einnig umsjón með skipulagi
sýningarinnar ásamt Þóru Sigurð-
ardóttur.
Endurnýjuð spunavél
Verk Hildar snýst um spuna-
vélina í Ólafsdal sem hafði verið
ónotuð í rúmlega 50 ár. „Ég hafði
aldrei séð svona spunavél áður en
ég gægðist inn um gluggana í
Ólafsdal fyrir um þremur árum og
sá glitta í hana,“ segir Hildur sem
á hús í Hvolsdal í Saurbæjar-
hreppi. Hún flutti vélina til Reykja-
víkur og kom henni í nothæft form.
„Ég kunni ekkert á svona vél en
hafði upp á Guðmundi Rögnvalds-
syni sem spann á vélina þegar
hann bjó í Ólafsdal. Hann kenndi
mér á spunavélina og ég spann síð-
an á henni garn, litaði það úr njóla
úr Dölunum og prjónaði föðurland
úr garninu,“ segir Hildur.
Sótt í gamla hefð
Spunavélin er á sýningunni í
skólahúsi gamla Landbúnaðarskól-
ans í Ólafsdal ásamt föðurlandinu
sem Hildur prjónaði. Hildur sýnir
einnig grunnteikningu af spunavél-
inni. „Í Landbúnaðarskólanum í
Ólafsdal var á sínum tíma sífellt
verið að reyna að betrumbæta
gömul áhöld og nemendur teiknuðu
ákaflega fallegar grunnteikningar
af áhöldum, tækjum og tólum. Með
teikningunni er ég að sækja í þessa
gömlu hefð skólans,“ segir Hildur.
Á sýningunni sýnir hún líka ljós-
myndir af spunavélinni, allt ferlið
frá því hún flutti hana úr kjall-
aranum í Ólafsdal, hvernig hún
spann á hana garn og kom henni
fyrir aftur í húsinu í Ólafsdal í not-
hæfu formi.
Innblástur frá staðnum
Listamennirnir sem sýna í Ólafs-
dal hafa fengið innblástur frá
staðnum. Sem dæmi má nefna að
Hannes Lárusson sýnir þar áhöld
sem unnin eru úr tré og járni. Sól-
veig Aðalsteinsdóttir er með teikn-
ingar af túnum í Dölunum, en hluti
af náminu í Landbúnaðarskólanum
fólst í því að teikna upp tún og
kortleggja þau. Guðjón Ketilsson
gerir teikningar sem byggjast á
gömlum uppdráttum brautryðjenda
í iðnsögu fyrri alda, eins og Torfa
Bjarnasonar og Leonardo da Vinci.
Og Hlynur Helgason rekur útmörk
landareignarinnar og tekur skipu-
lega ljósmyndir af sjónarhorninu að
bænum og frá bænum frá jaðri
ræktarlandsins með tíu gráða milli-
bili.
Spunavél og föðurland
Gamli skólinn Sýningin er í skólahúsi gamla landbúnaðarskólans í Ólafsdal.
Byggðasafn Meðal gripa eru spunavélar.
Hildur Bjarnadóttir er í hópi ellefu listamanna sem sýna í Ólafsdal
Gömul spunavél er þar í stóru hlutverki Listamaðurinn sækir í gamla hefð
Spunavél Á sýningunni eru gömul áhöld og vélar.
Á SÝNINGUNNI Mæður í að-
alsafni Borgarbókasafnsins við
Tryggvagötu 15 eru ljós-
myndir eftir konur frá Reykja-
vík, Hull í Bretlandi, Freetown
í Sierra Leone og Szczecin í
Póllandi. Myndirnar sýna túlk-
un kvenna frá þessum borgum
á hugtakinu móðir. Markmiðið
með verkefninu Wilberforce
Women er að færa konur af
ólíkum uppruna nær hver annarri með hjálp ljós-
myndunar. Sýningin er farandsýning og ferðast
hún á milli borganna fjögurra. Bókasafnið mun
einnig vekja athygli á tengdum bókum. Sýningin
stendur til 6. september.
Ljósmyndun
Alþjóðleg ljós-
myndasýning
Mæður í myndum.
SJÖTTA alþjóðlega hátíð
Tangófélagsins og Kramhúss-
ins, TANGO on ICEland, verð-
ur 26.-30. ágúst. Hátíðin fer
fram í Kramhúsinu, Iðnó, Nor-
ræna húsinu, á Kjarvals-
stöðum, í Þjóðleikhúskjall-
aranum og Bláa lóninu. Það
verður stanslaus dans og tón-
list í fimm daga og nætur.
Kennarar, dansarar og
tónlistarmenn eru frá Svíþjóð, Íslandi og Dan-
mörku. Boðið verður upp á tangótónleika, mi-
longa-kvöld, lifandi tónlist og tangósýningar.
Einnig verða tangónámskeið fyrir byrjendur og
lengra komna og námskeið um tónlist.
Tangó
Heitur tangó dans-
aður á Ís(landi)
Heitur tangó.
SVIÐSLISTAVERKIÐ Móð-
urmál/Föðurland eftir Katrínu
Dagmar Beck er liður í
artFart-hátíðinni og verður
önnur sýning í Batteríinu í
kvöld kl. 21. Þetta er loka-
verkefni Katrínar Dagmarar
sem útskrifast af samtíma-
dansbraut leiklistardeildar
Listaháskóla Íslands í haust.
Það er jafnframt frumraun
hennar eftir að hún útskrif-
aðist frá Salzburg Experimental Academy of
Dance, þar sem hún stundaði nám sl. vetur. Það
kostar ekkert inn á sýninguna en sætafjöldi er
takmarkaður.
Sviðslist
Samdi dans um
móðurmálið
Lokaverkefnið.
MEXÍKÓSKI listmálarinn Frida
Kahlo lifði stormasömu lífi, hún
var ástkona Leons Trotskíj og Jo-
sephine Baker og eiginkona Die-
gos Rivera. Nú ríflega hálfri öld
eftir andlát listakonunnar er kom-
in upp deila um týnd skjöl sem
hafa komið í leitirnar.
Ný bók væntanleg
Samkvæmt breska dagblaðinu
Guardian hefur fundist safn
skjala, þar á meðal dagbókarbrot
og bréf, sem birt verða í nýrri bók
um listakonuna. Princeton Archi-
tectural Press gefur bókina út, í
henni verða olíumyndir eftir Kahlo
ásamt köflum úr dagbókum og
sendibréfum.
Nýja skjalasafnið er sagt inni-
halda lýsingar á mikilli ástríðu,
ólgandi heift og stórkostlegri
kímnigáfu. Það eru hins vegar
ekki allir sannfærðir um að Kahlo
sé höfundur þessa efnis og hafa
margir sérfræðingar dregið í efa
að svo sé.
Skjalasafnið umdeilda er í eigu
mexíkóskra hjóna sem reka forn-
gripaverslun, en þau keyptu það
af lögfræðingi sem fékk það hjá
manni sem sór og sárt við lagði að
hann hafi fengið það hjá Kahlo
sjálfri.
Stormasamt einkalíf
Sérfræðingur í verkum Kahlo
segir við Guardian að nýja bókin
sé full af efni sem hafi verið búið
til með það fyrir augum að höfða
til fólks sem hefur áhuga á
stormasömu einkalífi Fridu Kahlo.
Eigandi skjalasafnsins, Carlos No-
yola, sem rekur forngripaverslun í
San Miguel de Allende í Mexíkó
ásamt konu sinni Letixiu Fern-
ández, er sannfærður um að
skjalasafnið sé ófalsað. Í safninu
munu vera um 1.200 skjöl og segir
Noyola að þau hjónin hafi látið
rannsaka skjölin og munu bæði
efnafræðingar og rithandarsér-
fræðingar hafa komið þar við sögu
sem og ættingjar listakonunnar.
Samkvæmt bókaútgefandanum
ber öllum saman um að þarna sé
ófalsað safn á ferðinni. Bókin
kemur út í nóvember og segir
talsmaður útgáfunnar að það sé
undarlegt að þeir Kahlo-sérfræð-
ingar sem hafa tjáð sig um safnið
og efist um uppruna þess hafi ekki
lagt það á sig að skoða skjölin.
Ástríða Frida Kahlo var ástríðufull.
Dagbækur
Fridu
Kahlo
Sérfræðingar telja
að skjölin séu fölsuð
Sýningin fer fram á fjórum stöðum: í húsi gamla Landbúnaðarskólans í
Ólafsdal, í Byggðasafni Dalamanna á Laugum í Sælingsdal og í Bátasafni
Breiðafjarðar, Reykhólum. Sýningin er opin alla daga frá kl. 14-18, til 30.
ágúst.
Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni eru: Aðalsteinn Valdimars-
son, Guðjón Ketilsson, Guðjón Kristinsson, Hafliði Aðalsteinsson, Hannes
Lárusson, Hildur Bjarnadóttir, Hlynur Helgason, Rúnar Karlsson, Sólveig
Aðalsteinsdóttir, Unnar Örn og Þóra Sigurðardóttir.
Sýnt á fjórum stöðum
Travolta er ýktur og
harðskeyttur sem
fyrrum kauphallarmangari
sem hefur forframast á
bakvið rimlana 26
»