Morgunblaðið - 24.08.2009, Síða 26
TÍMARNIR eru breyttir frá því
að upprunalega myndin um ránið á
neðanjarðarlestinni Pelham 1 2 3 var
gerð árið 1974. Hörmungarnar sem
riðu yfir New York og bandarískt
þjóðfélag 11.9. 2001, með sínum til-
finningalegu, efnahagslegu og póli-
tísku eftirmálum, voru langt utan
sjóndeildarhringsins og sjálf var
borgin í niðurlægingu, sjúskuð og
varasöm. Sá rammi hentaði inni-
haldinu mun betur. 2009 árgerð The
Taking of Pelham 123, er eftir fyrr-
um auglýsingagerðarmanninum
Tony Scott, en allar hans myndir
bera þess órækan vott. Hraðar, stíl-
færðar og yfirborðskenndar; æsileg-
astur og ofbeldisfullur efnisþráður
hentar honum vel.
Vinnudagurinn hjá Garber
(Washington), umferðarstjóra hjá
neðanjarðarlestakerfi New York-
borgar, virðist ætla að verða ósköp
hefðbundinn þegar ósköpin ríða yfir.
Fjórir glæpamenn undir stjórn Ryd-
ers (Travolta), sem er jafn snjall
skipuleggjari og hann er miskunn-
arlaust illmenni, ræna einum lest-
arvagnanna. Um borð eru 18 farþeg-
ar sem gengið tekur í gíslingu og
krefjast 10 milljóna dala í lausnarfé
og það innan klukkustundar. Ræn-
ingjarnir eru vel búnir vopnum og
tæknibúnaði og með úthugsaða
áætlun þó svo það vefjist fyrir Gar-
ber og lögreglunni hvernig þeir
hyggjast sleppa að lokum, króaðir af
í iðrum jarðar.
Myndin er á löngum köflum þrá-
skák á milli Garbers, sem þekkir
hvern krók og kima flókins neð-
anjarðarkerfisins eins og fingurna á
sér, og hins slægvitra og vægð-
arlausa Ryders sem hefur hugsað
fyrir öllum smáatriðum, að hann
heldur. Þetta er forvitnileg keppni í
kænskubrögðum en fyrirsjáanleg.
Scott er í essinu sínu og ber mikið
á hans gamalkunnu vörumerkjum,
hávaðasamri hljóðrás og hröðum
klippingum, sem henta vel til að
skapa ringulreiðina sem skyndilega
myndast í stórborginni. Á hinn bóg-
inn eru tökurnar af ofsaakstri lög-
reglu á bílum og mótorhjólum eins-
leitar þó kryddaðar séu með
krassandi árekstrum og uppnámi.
Þröngt rýmið í lestarvagninum og
myrkum rangölum nýtist betur. Þar
ríkir Ryder eins og blóði drifinn ein-
ræðisherra, heilinn á bak við stórr-
ánið sem hann ætlar sér ekki aðeins
að auðgast á, heldur ná sér niðri á
borgaryfirvöldum vegna gamalla
einkamála.
Travolta er ýktur og harðskeyttur
sem fyrrum kauphallarmangari sem
hefur forframast bak við rimlana,
hatursfullur með húðflúr á hálsi.
Washington er algjör andstæða
hans, hægur og yfirvegaður sem
Garber, opinberi starfsmaðurinn
sem verður allt í einu að skipta um
ham, úr umferðarstjóra í lykilmann
við lausn flókinnar glæpafléttu þar
sem fjöldi mannslífa eru í húfi.
Washington er óvenju hversdags-
legur í útliti en túlkar vel mann sem
stendur skyndilega frammi fyrir
örðugum vanda.
Aukahlutverk eru mörg en rislítil
að undanskildum leiðum og pirr-
uðum borgarstjóranum, sem Gan-
dolfini túlkar með sóma og Turturro
er sleipur sem yfirmaður lög-
reglurannsóknarinnar.
Brian Helgeland hefur bætt
nokkrum aukafléttum og tengingum
Líflegasta lestarferð
Laugarásbíó, Smárabíó, Regn-
boginn, Borgarbíó, Akureyri
Leikstjóri: Tony Scott. Aðalleikarar:
Denzel Washington, John Travolta, John
Turturro og James Gandolfini. 105 mín.
Bandaríkin. 2009.
The Taking of Pelham 123
b b b n n
SEBJÖRN
VALDIMARSSON
KVIKMYNDIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 2009
BYGGÐ Á METSÖLU BÓK STIEG LARSSON
35.000 manns í aðsókn!
Frá Tony Scott, leikstjóra
Deja Vu og Man on Fire
kemur magnaður
spennutryllir.
Denzel Washington
upplifir sína verstu
martröð þegar hann þarf
að takast á við John
Travolta höfuðpaur
glæpamannanna.
Stórbrotin mynd
um óvenjulega sögu!
Einstök kvikmyndaperla sem engin má missa af!
HASAR
OG TÆK
NIBRELL
UR
SEM ALD
REI HAF
A SÉST Á
ÐUR
VINSÆLASTA MYNDIN
Á íSLANDI Í DAG
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5%
endurgreitt
í Háskólabíó
750 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - ALLA DAGA Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef
Sími 551 9000 Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBOGANU
M 750kr.
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓ OG REGNBOGANUMSÝND Í SMÁRABÍÓ, BORGARBÍÓ OG REGNBOGANUM
SÝND Í REGNBOGANUMSÝND Í SMÁRABÍÓ, HÁSKÓLABÍÓ, BORGARBÍÓ OG REGNBOGANUM
SÝND Í SMÁRABÍÓ
Inglorious Basterds kl. 10 (Mastercard-Fors.) B.i.16 ára
The Taking of Pelham 123 kl. 8 - 10:10 B.i.16 ára
G.I. Joe: The Rise of Cobra kl. 5:45 - 8 B.i.12 ára
Karlar sem hata konur kl. 5:20 B.i.16 ára
Inglorious Bastards kl. 8 (Forsýning) B.i.16 á. G.I. Joe kl. 5:30 B.i.12 ára
Time Travelers w... kl.5:30-8-10:30 B.i.12 á. Funny Games kl. 10 B.i.18 ára
Stelpurnar okkar kl. 6 - 8 LEYFÐ Karlar sem hata konur kl. 6 - 9 B.i.16 ára
The Time Traveler´s Wife kl. 5:30 - 8 - 10:30 750kr. B.i.12 ára Crossing Over kl. 5:30 750kr. B.i.16 ára
Taking of Pelham kl. 5:30 - 8 - 10:30 750kr. B.i.16 ára Karlar sem hata konur kl. 7 - 10 750kr. B.i.16 ára
My Sister‘s Keeper kl. 8 - 10:20 750kr. B.i.12 ára
Eftir Ingveldi Geirsdóttur
ingveldur@mbl.is
„ÞAÐ eru mörg tækifæri í því falin
að starfa við útvarpsleikhús, ég tel
það góðan vettvang fyrir ungt leik-
húsfólk til að þróa og þroska sína
vinnu. Það að Útvarpsleikhús Rík-
isútvarpsins sé tilbúið að opna dyrn-
ar fyrir unga leikstjóra og ung leik-
skáld er mjög jákvætt skref fyrir
okkur sem erum að feta okkar fyrstu
skref á leiklistarbrautinni,“ segir
Símon Birgisson leikskáld og leik-
stjóri sem er nú að leggja lokahönd á
sitt fyrsta útvarpsleikrit. Nefnist
það Guð blessi Ísland og verður flutt
í Ríkisútvarpinu 27. september.
„Verkið fjallar um kreppuna á Ís-
landi og nota ég stíl heimildarleik-
hússins sem nálgun á það viðfangs-
efni. Það gerist í ímynduðum bæ á
Íslandi og nota ég ekki leikara í
verkið heldur viðtöl við venjulegt
fólk; Geir Jón lögregluvarðstjóri,
Bragi fornbókasali, Vésteinn Gauti
Hauksson sparnaðarráðgjafi, Vignir
Rafn leikari, Kjartan Ragnarsson
leikstjóri og Lilja Árnadóttir á Þjóð-
minjasafninu koma öll fram sem þau
sjálf í verkinu en tilheyra jafnframt
þessum bæ þar sem glæpur var
framinn. Það veit samt enginn hverj-
ir glæpamennirnir eru eða hver
glæpurinn var. Ellý Ármannsdóttir
er síðan sögumaður.“
Guð blessi Ísland var upphaflega
útskriftarverkefni Símons úr Fræði
og framkvæmd við Listaháskóla Ís-
lands. Þá var það flutt á sviði í Borg-
arleikhúsinu. „Mig langaði að sjá
hvernig væri að flytja útvarpsleikrit
í leikhússal og bjóða fólki að koma
saman og hlusta á leikrit,“ segir
Símon sem hefur dvalið í Þýskalandi
við nám í leiklistarfræðum. „Í því
námi hefur verið lögð mikil áhersla á
útvarpsleikhús og það kom mér á
óvart að sjá hvað það er mikill áhugi
þar hjá ungu leikhúsfólki á formi út-
varpsleikhússins.“
Setur upp Söruh Kane
Síðar í vetur mun Símon leikstýra
öðru verki hjá Útvarpsleikhúsi
RÚV. „Þetta er nýtt verk eftir
Ragnar Ísleif Bragason sem heitir
Blessuð sé minning næturinnar. Við-
ar Eggertsson útvarpsleikhússtjóri
bauð mér að leikstýra þessu verki og
þótti mér það mjög spennandi verk-
efni enda um ljóðrænt og krefjandi
verk að ræða. Ég og Ragnar vorum
saman í bekk í Listaháskólanum og
gaman að við sameinum nú krafta
okkar í þessu. Til liðs við okkur feng-
um við ungt tónskáld, Önnu Þor-
valdsdóttur, sem nemur tónsmíðar í
Bandaríkjunum. Hún mun semja
tónlist fyrir verkið og verður með í
vinnsluferlinu.“
Símon er að hefja mastersnám í
leiklistarfræðum við háskólann í
Giessen í Þýskalandi auk þess sem
hann og Þorleifur Arnarsson, sem er
einnig búsettur í Þýskalandi, eru að
vinna að því að setja upp 4.48 Psyc-
hosis eftir Söruh Kane í Karlsruhe.
„Það er nóg af tækifærum að hafa ef
maður hefur nóg af hugmyndum.“
Mörg tækifæri
í útvarpsleikhúsinu
Morgunblaðið/Eggert
Leiklestur Símon Birgisson leikstýrir Ellý Ármans sem fer með hlutverk
sögumanns í Guð blessi Ísland.
Útvarpsleikrit eftir Símon Birgisson flutt á RÚV í sept-
ember Fjallar um kreppuna í ímynduðum íslenskum bæ