Morgunblaðið - 24.08.2009, Síða 32
Tófan Hún lítur sakleysislega út en
veldur sauðfjárbændum búsifjum.
„ÞESSI dýr eru eins og hundar, þau
eru svo stór og öflug,“ segir Birgir
Hauksson, refaskytta í Valagerði í
Skagafirði. Birgir og félagi hans,
Baldvin Sveinsson á Tjörn á Skaga,
unnu í sumar þrjú greni dýrbíta í
Staðarfjöllum og Þverfjalli, af-
réttum Skagfirðinga og Húnvetn-
inga. Þeir náðu öllum dýrunum, 29
talsins.
Af ummerkjum við grenin að
dæma hefur tófan ekki verið að-
gerðarlaus í sumar. Mikill aðburður
af lambshræjum var við öll grenin
og áætlar Birgir að leifarnar hafi
verið af um það bil sjötíu lömbum.
Snorri H. Jóhannesson, formaður
Félags atvinnuveiðimanna, hefur
áhyggjur af þróun mála. Framlög
til eyðingar tófu hafi dregist saman
og það hljóti að leiða til þess að
henni fjölgi. | 8
Veiðimenn fundu leifar af
70 lömbum við tófugreni
MÁNUDAGUR 24. ÁGÚST 236. DAGUR ÁRSINS 2009
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Erlendir fjárfestar í Högum
Eigendur Haga stefna að því að fá
breska fagfjárfesta á sviði smá-
söluverslunar til liðs við sig. Stefnt
er að því að gera Haga að skuldlausu
félagi innan tveggja ára og endur-
fjármagna það síðan að nýju. Félag-
ið er sagt standa vel. »4
Ölvun og gleði í miðbæ
Þrátt fyrir mikinn mannfjölda fór
Menningarnótt vel fram að mati lög-
reglu. Mikil ölvun var þó á meðal
ungmenna og barna í bænum. For-
eldrar þurftu að sækja börn sín í
sumum tilfellum. »6
Í mál við valda menn
Fyrrverandi tryggingatakar hjá
Samvinnutryggingum vilja höfða
mál gegn þeim sem sýsluðu með
eignir Samvinnutrygginga og síðan
fjárfestingafélagsins Giftar. Sig-
urður G. Guðjónsson hrl. er með
málið í skoðun fyrir hönd skjólstæð-
inga sinna. Þar sem ekkert sé eftir í
félaginu Gift þá sé vert að skoða per-
sónulega ábyrgð. »2
Smábílar á hálendinu
Erlendir ferðamenn sem leigt
hafa bíla hjá bílaleigum hér á landi
hika ekki við að fara á smábílum upp
á hálendi. „Með ólíkindum,“ segir
framkvæmdastjóri Hertz. »2
Erlent fjármagn í hótel
Situs, systurfélag Portusar, sem
reisir tónlistar- og ráðstefnuhús við
Reykjavíkurhöfn, hyggst leita að
áhugasömum erlendum fjárfestum
til að bera kostnaðinn vegna bygg-
ingar og reksturs hótels í nágrenni
við húsið. »4
SKOÐANIR»
Staksteinar: Ofmetnaður
Forystugrein: Út úr kortinu
Pistill: Mikilvægasta uppfinningin
Ljósvaki: Hinn rétti Wallander
UMRÆÐAN»
Sýkti sílamávurinn síldina okkar?
Notum orkuna í eigin þágu
Nokkur atriði sem kanna verður
til þrautar
Heitast 14 °C | Kaldast 7 °C
Hvasst við N- og A-
ströndina fram að há-
degi, síðan norðvest-
antil. Snýst í SA-átt
eftir hádegi, dregur úr vindi. » 10
Ellefu listamenn
sýna í landbúnaðar-
skóla í Ólafsdal.
Hildur Bjarnadóttir
notar spunavél sem
útgangspunkt. »24
MYNDLIST»
Myndlist í
Dölunum
FEGURл
Ingibjörg er meðal 15
efstu keppenda. »27
Sæbjörn Valdimars-
son skrifar kvik-
myndadóm um nýja
hasarmynd sem
Tony Scott leik-
stýrir. »26
KVIKMYNDIR»
Endurgerð
hasarmynd
FLUGAN»
Flugan flaug á tónleika
Hjálma í Austurbæ. »25
MYNDLIST»
Deilt er um dagbókar-
brot Fridu Kahlo. »24
Menning
VEÐUR»
1. Neituðu að senda Gæsluþyrluna
2. Gamalt Kaupþingsmyndskeið...
3. Málningu úðað yfir bíl Björgólfs
4. Bráðkvaddur á Herðubreið
»MEST LESIÐ Á mbl.is
Gleði Sigurður Ragnar Eyjólfsson brá á leik á æfingu landsliðsins í gær þar sem hann hermdi eftir apa og landsliðskonurnar kunnu vel að meta tilþrifin.
Eftir Víði Sigurðsson og
Kjartan Þorbjörnsson í Tampere
„VIÐ teljum að það þurfi lágmark 4 stig til að
komast áfram úr riðlinum, en ef við náum 6
stigum erum við pottþétt með að komast áfram.
Auðvitað stefnum við að því að vinna alla okkar
leiki og förum í hvern leik fyrir sig með það að
markmiði,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson,
landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, þegar
Morgunblaðið ræddi við hann um leikinn mikil-
væga gegn Frökkum í úrslitakeppni EM í dag.
„Það er mikilvægt að byrja mótið vel. Þetta
verður afar erfiður leikur, liðin eru áþekk að
styrkleika að mínu mati, en ef við förum vel af
stað, eru okkur allir vegir færir. Ef okkur geng-
ur illa, fáum við ekki mörg tækifæri til að bæta
fyrir það,“ sagði Sigurður.
Hann sá franska liðið steinliggja gegn Japan
á heimavelli, 0:4, í byrjun ágúst en kvaðst ekki
hafa séð neitt úr sigurleik Frakka gegn Skotum,
4:0, hinn 12. ágúst.
„Ég fór á leikinn gegn Japan og við báðum
um spólu úr Skotlandsleiknum en fengum hana
ekki. Japan er með frábært lið, og það vantaði
nokkrar í franska liðið, þær sem spila með
Montpellier og þær tvær sem leika í Bandaríkj-
unum. Það er því ekki alveg að marka þessi úr-
slit. Ég ræddi aðeins við franska þjálfarann sem
var nýbúinn að vera með þær í þungum æfing-
um og ströngum æfingabúðum. Þeirra keppnis-
tímabil er að byrja en landsliðið er búið að vera
töluvert saman í sumar og hefur æft vel. Ég veit
bara að þetta verður mjög erfiður leikur.“ Sig-
urður sagði að þó hann hefði aflað sér mikilla
upplýsinga um franska liðið og þekkti vel til
þess eftir að hafa mætt því tvisvar á undan-
förnum tveimur árum, væri eftir sem áður mik-
ilvægast að huga að sínu liði.
„Já, við höfum undirbúið okkur á þann hátt að
einbeita okkur sem mest að okkar eigin leik og
höldum áfram að spila eins og við höfum gert á
þessu ári. Við höfum leikið sjö leiki í ár gegn
mjög sterkum liðum og vonandi nýtist það okk-
ur þegar á hólminn er komið. Það hefur líka
styrkt okkar lið að margir okkar leikmanna
gerðust atvinnumenn snemma á þessu ári, og
það eru því allar forsendur til að gera ráð fyrir
að við getum spilað betur núna en við gerðum
gegn Frakklandi fyrir ári,“ sagði Sigurður
Ragnar. | Íþróttir
Mikilvægt að byrja vel
Morgunblaðið/Golli
KREPPAN hefur nú ratað inn í Út-
varpsleikhúsið. Leikrit Símonar
Birgissonar, Guð blessi Ísland, verð-
ur á dagskránni 27. september nk.
„Verkið fjallar um kreppuna á Ís-
landi og nota ég stíl heimildarleik-
hússins sem nálgun á það viðfangs-
efni,“ segir Símon.
Verkið gerist í ímynduðum bæ og
notar Símon ekki leikara heldur við-
töl við venjulegt fólk. | 26
Viðtöl við þá
venjulegu