Morgunblaðið - 02.10.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri,
bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
HAFÖRN er nú til meðferðar í hús-
dýragarðinum í Laugardal, en hann
fannst skaddaður á væng í Bjarnar-
höfn á Snæfellsnesi í fyrradag. Örn-
inn var grútarblautur og grann-
holda þegar hann fannst, en virðist
ætla að jafna sig, skv. upplýsingum
úr húsdýragarðinum. Örninn verð-
ur ekki til sýnis þar, a.m.k. ekki
fyrst um sinn.
Heimafólk í Bjarnarhöfn hand-
samaði fuglinn á miðvikudag, kom
honum í hús og gaf honum að éta.
Náttúrustofa Vesturlands í Stykkis-
hólmi lét sækja fuglinn sem fluttur
var til aðhlynningar á Dýraspít-
alann í Víðidal og síðan í Húsdýra-
garðinn í Reykjavík, þar sem hann
verður í umsjá starfsmanna og
Kristins Hauks Skarphéðinssonar,
arnarsérfræðings Náttúru-
fræðistofnunar. Örninn er fimm
ára gamall kvenfugl, sem merktur
var sem ungi á Mýrum sumarið
2004.
Skoðun dýralæknis leiddi í ljós
vökvafylltan hnúð við axlarlið.
Hann var tæmdur og svæðið sótt-
hreinsað. Í kjölfarið fer örninn á
nokkurra daga sýklalyfjakúr.
Holdafar össunnar er fremur bág-
borið og verður þess vegna lögð
áhersla á að fá hana til að nærast
vel, segir á nsv.is aij@mbl.is
Ljósmynd/NSV
Grútarblautur og
grannholda örn
undir læknishendi
Í GÆRKVÖLDI var kveikt bleikt ljós sem mun
lýsa upp 1919-hótelið í Pósthússtræti í október-
mánuði. Hótelið verður lýst bæði að innan og ut-
an til að vekja athygli á brjóstakrabbameini. Af
því tilefni komu saman Guðrún Agnarsdóttir,
forstjóri Krabbameinsfélagsins, Hanna Birna
Kristjánsdóttir borgarstjóri, Sif Jakobs, sem í ár
hannaði bleiku slaufuna, og Sigríður Snæbjörns-
dóttir, formaður Krabbameinsfélagsins.
1919-hótelið lýst bleiku ljósi til að vekja athygli á brjóstakrabbameini
Morgunblaðið/Kristinn
Húsið baðað bleikum bjarma
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
TVÖFÖLDUN Suðurlandsvegar er efst á lista
Vegagerðarinnar í sambandi við átak með að-
komu lífeyrissjóðanna að fjármögnun opinberra
verkefna, en ljóst er að engar framkvæmdir í
þessa veru hefjast á árinu.
Í stöðuleikasáttmálanum eru tiltekin fimm
vegaverkefni sem skoða á sérstaklega, þ.e. tvö-
földun Suðurlandsvegar, tvöföldun Vestur-
landsvegar á Kjalarnesi, Vaðlaheiðargöng,
Sundabraut og tvöföldun Hvalfjarðaganga.
Hreinn Haraldsson vegamálastjóri segir að
unnið hafi verið að því að reikna út kostnað og
hvar þessi verkefni standa í
undirbúningi varðandi skipu-
lag, umhverfismál og fleira.
Arðsemisútreikningar séu á
lokastigi en arðsemin sé
grunnur að aðkomu lífeyris-
sjóðanna. Komi þeir að fjár-
mögnuninni sé skilyrði að
taka upp veggjöld á viðkom-
andi framkvæmd og eftir sé
að finna flöt á þeim.
Hreinn segir að Suðurlandsvegurinn sé
fremstur á blaði. Undirbúningur Vaðlaheiðar-
ganga sé líka langt á veg kominn, en vænt-
anlega liggi málið skýrar fyrir í næstu viku.
Engar framkvæmdir á árinu
með aðkomu lífeyrissjóðanna
Tvöföldun Suðurlandsvegar efst á lista vegaframkvæmda og svo Vaðlaheiðargöng
Í HNOTSKURN
» Arnar Sigurmundsson, formaðurLandssamtaka lífeyrissjóða, segir að
verkefni með aðkomu lífeyrissjóðanna
megi ekki auka skuldir ríkissjóðs og verði
að vera sjálfbær, en þau hefjist ekki í ár.
» Hann segir að í sambandi við sam-göngumiðstöð í Vatnsmýrinni sé til
dæmis gert ráð fyrir gjaldtöku hjá not-
endum og hún borgi stofn- og rekstr-
arkostnað.
Hreinn Haraldsson
FRIÐRIK Soph-
usson mun form-
lega lýsa yfir
verklokum á
framkvæmda-
svæðinu við
Kárahnjúka í
dag. Það verður
síðasta verk hans
sem forstjóri
Landsvirkjunar,
því hann átti sinn
síðasta vinnudag í gær og sat þá
einnig sinn síðasta stjórnarfund í
Samorku. Friðrik hefur stýrt
Landsvirkjun í rúmlega tíu ár, en
áður var hann fjármálaráðherra og
varaformaður Sjálfstæðisflokksins
1991-1998. Á níunda áratugnum
var hann varaformaður flokksins
1981 til 1989 og iðnaðarráðherra
um skeið. Hann sat á Alþingi í tutt-
ugu ár, frá 1978 til 1998.
Lýsir yfir verklokum
og lætur af störfum
Friðrik
Sophusson
JÓHANNES
Kristjánsson,
betur þekktur
sem Jóhannes
eftirherma, er
væntanlegur
heim í dag frá
Gautaborg þar
sem hann gekkst
undir hjarta-
ígræðslu.
Jóhannes fékk
alvarlegt hjartaáfall í byrjun júní.
Til að halda hjarta hans gangandi
var flogið með hann til Gautaborg-
ar þar sem grædd var í hann hjarta-
pumpa. Hann dvaldist að mestu á
sjúkrahúsi í sumar og í lok ágúst
var hann fluttur með nokkurra
klukkustunda fyrirvara aftur til
Gautaborgar þar sem nýtt hjarta
var grætt í hann.
Jóhannes á heimleið
Jóhannes
Kristjánsson
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
VINNUMÁLASTOFNUN greiddi í gærmorgun rúm-
lega 1,6 milljarða króna í atvinnuleysisbætur til 14.600
einstaklinga. Heildargreiðslur fyrir ágústmánuð voru
tæpir 2,2 milljarðar og var þá greitt til 15.788 ein-
staklinga. Frá áramótum hefur Vinnumálastofnun
greitt 17,9 milljarða í atvinnuleysisbætur. Að óbreyttu
er talið að fé Atvinnuleysistryggingasjóðs verði upp
urið næsta vor.
Sú nýbreytni hefur verið tekin upp hjá Vinnumála-
stofnun að bjóða upp á rafrænan aðgang að greiðslu-
seðlum. Flestir umsækjenda geta séð greiðsluseðlana
með því að fara inn í rafrænu umsóknina sína, en þeir
sem eiga ekki rafræna umsókn geta nálgast seðlana á
www.tryggur.is. Tilgangurinn með þessari framkvæmd
er að auðvelda aðgang umsækjenda að seðlunum og
jafnframt að ná fram hagræðingu og sparnaði.
Vinnumálastofnun bárust þrjár fjöldauppsagnir um
áramótin og voru þær allar frá fyrirtækjum sem verið
hafa í fréttunum, þ.e. Árvakri, Jarðborunum og Sæ-
ferðum, sem reka Breiðafjarðarferjuna Baldur. Alls
var hátt í 80 manns sagt upp í þessum fjölda-
uppsögnum.
Bætur fyrir september voru talsvert lægri en í ágúst
Þrjár tilkynningar um fjöldauppsagnir bárust VMST
Morgunblaðið/Ómar
Ástand Atvinnuleysið er mest í byggingageiranum.
19,7 milljarðar greiddir
í atvinnuleysisbætur í árFRAMLÖG ríkisins til sjúkraflutn-inga verða skorin niður á næsta ári
um 53,5 milljónir króna en rekstr-
argjöld vegna þessarar þjónustu
eru áætluð 771 milljón króna á
árinu 2010. Þetta kemur fram í
fjárlagafrumvarpi ársins 2010.
Tekið er fram að um sé að ræða
lækkun fjárframlaga til þjónustu-
samninga um sjúkraflutninga
vegna áforma ríkisstjórnarinnar
um samdrátt í útgjöldum.
Framlög til sjúkra-
flutninga skorin nið-
ur um 53,5 milljónir
KARLMAÐUR á þrítugsaldri hefur
verið úrskurðaður í áframhaldandi
gæsluvarðhald til 28. október. Hann
var handtekinn fyrrihluta sept-
ember ásamt þremur öðrum í
tengslum við rannsókn lögreglunnar
á innflutningi á um fjórum kílóum af
amfetamíni frá Danmörku. Lögð var
fram krafa um áframhaldandi
gæsluvarðhald yfir þeim öllum en
héraðsdómur féllst ekki á hana.
Áfram í gæslu-
varðhaldi til 28. okt.