Morgunblaðið - 02.10.2009, Qupperneq 21
Fréttir 21ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2009
DANSKI varn-
armálaráðherr-
ann, Søren Gade,
íhugar nú af-
sögn. Ástæðan er
að bókin „Jæger
- i krig med eli-
ten“, sem fjallar
um störf sér-
sveita Dana í
Afganistan, var
þýdd á arabísku af yfirmanni í
hernum. Gade segist hafa verið
svikinn með þessum gjörningi sem
er talinn veita uppreisnarmönnum í
Afganistan góða innsýn í störf
sveitanna. jmv@mbl.is
Sérsveitin ber-
skjölduð eftir
þýðingu bókar
Søren Gade
FANGAR hafa stundum flúið með
því að hnýta saman lök og láta sig
síga út um glugga eða þeir hafa
grafið göng. En fangi í New York
datt nýlega niður á betri hugmynd.
Hann spurði vörð hvar útgangurinn
væri – og flýtti sér út.
Fanginn, Ronald Tackman, var
virðulega klæddur, í jakkafötum og
með bindi af því að hann átti að
koma fyrir dómara vegna nokkurra
búðarrána, að sögn New York Post.
Vörður spurði hann: „Hvað ert þú
að gera hér, lögmaður?“
Tackman svaraði umsvifalaust:
„Hvernig kemst ég út?“ og var vís-
að á réttu dyrnar. Hann heimsótti
81 árs gamla móður sína á Manhatt-
an, skipti þar um föt og lét sig
hverfa. Tackman er þekktur fyrir
færni sína í að dulbúast. Hann setti
einu sinni upp plastnef til að villa
um fyrir lögreglunni. kjon@mbl.is
„Hvað ert þú að
gera hér?“
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
HONUM tókst það í þriðju tilraun.
Allt frá því Guido Westerwelle var
valinn leiðtogi Frjálsra demókrata
(FDP) fyrir átta árum hefur hann
haft eitt markmið: Að koma flokkn-
um aftur í stjórn.
Hinn „eilífi Westerwelle“ eins og
hann var uppnefndur vegna mikils
og misheppnaðs fjölmiðlapots í ára-
raðir er nú kominn í startholurnar
og tilbúinn í stjórn með Angelu
Merkel. Sú var tíðin að Westerwelle
fór í heimsókn í Big Brother raun-
veruleikaþáttinn til að safna at-
kvæðum með vitleysisgangi. Þá
ferðaðist hann einnig um Þýskaland
með „Guidomobil“ eða Guido-
bílnum til að vekja athygli á flokkn-
um.
Nýr Westerwelle tekinn við
Westerwelle segist hafa lært af
fortíðinni. Tími trúðsins sé liðinn og
alvarlegri Westerwelle tekinn við.
Ekki eru þó allir sammála um hvort
framkoma Westerwelle sé honum
með öllu eðlileg: „Jafnvel þegar
Guido virðist afslappaður sést að
hann er að þykjast vera afslapp-
aður,“ segir háttsettur flokksmaður
Jafnaðarmannaflokksins.
Fylgismenn Westerwelle fögnuðu
honum ákaft á kosninganótt þegar
ljóst var að 11 ára veru í stjórn-
arandstöðu var lokið. Frjálsir demó-
kratar hlutu mesta fylgi í sögu
flokksins eða tæp 15%, sem er
helmingsaukning frá kosningunum
2005.
Holdgervingur nýfrjálshyggju
Westerwelle lofar þeim góðu lífi
sem leggja hart að sér og stunda
heiðarlega vinnu. „Sá sem vinnur,
verður að hafa meira en sá sem ekki
vinnur,“ var slagorð hans fyrir sjö
árum og einnig nú. Í margra augum
er Guido Westerwelle ofstækisfullur
talsmaður mikilla afkasta og hold-
gervingur nýfrjálshyggjunnar þó
hann hafi í nýliðinni kosningabar-
áttu reynt að færa sig nær miðjunni.
Áður fyrr var hægt að skipa kjós-
endum Frjálsra demókrata í ákveð-
inn hóp (vel stæðir karlmenn). Nið-
urstöður nýafstaðinna kosninga
sýna hinsvegar að stuðningshóp-
urinn er nánast þverskurður af
þjóðfélaginu. Stærsti hópurinn er
eftir sem áður sjálfstæðir atvinnu-
rekendur.
Það gæti orðið erfitt fyrir Wes-
terwelle að halda í vinsældirnar eft-
ir að sest er í ríkisstjórn og taka
verður erfiðar ákvarðanir. Bæverski
forsætisráðherrann, Horst Seeho-
fer, sem er jafnframt leiðtogi CSU,
systurflokks Kristilegra demókrata
Angelu Merkel, hefur gefið í skyn
að hann hyggist ekki hlífa FDP.
Þýskaland verði áfram að vera land
þar sem félagsleg gildi séu í háveg-
um höfð.
Guido er kominn í mark
Reuters
Hamingja Guido Westerwelle ásamt kærastanum sínum á kosninganótt.
Trúðurinn og framagosinn Guido Westerwelle þykir orðinn öllu
ábyrgari í framkomu Langri setu FPD í stjórnarandstöðu er nú lokið
RISAVAXNAR skrúðgöngur her-
manna og skriðdreka fóru í gær um
höfuðborg Kína, Peking.
Forseti Kína, Hu Jintao, og aðrir
helstu ráðamenn landsins voru við-
staddir þegar kínverski fáninn var
dreginn að húni á Tiananmen-torgi
þar sem byltingarleiðtoginn Mao
Zedong lýsti yfir stofnun alþýðu-
lýðveldisins 1. október 1949.
ALÞÝÐULÝÐVELDIÐ SEXTUGT
Reuters
Stjórnarmyndunarviðræður Kristi-
legra demókrata og Frjálsra demó-
krata hefjast á mánudag. Mjög er
rætt um að Guido Westerwelle
verði utanríkisráðherra en grín
hefur verið gert að slæmri ensku-
kunnáttu hans í því samhengi.
Hefð hefur myndast fyrir því að
varakanslari Þýskalands sé utan-
ríkisráðherra en Westerwelle hefur
einnig verið orðaður við viðskipta-
og fjármálaráðuneytin.Tæki Wes-
terwelle við utanríkisráðuneytinu
fetaði hann m.a. í fótspor flokks-
bróður síns og fyrirmyndar, Hans
Dietrichs Genschers.
Verður Westerwelle næsti utanríkisráðherra?
Bókabasar
Höfum fengið fjölda notaðra bóka. Bókabasar verður í húsnæði
Basarsins, nytjamarkaðar okkar, Grensásvegi 7, 2. hæð
föstudaginn 2. október kl. 12-17 og laugardaginn 3. október kl. 11-14.
Nytjamarkaður
Basarinn – nytjamarkaður Kristniboðssambandsins verður
í vetur opinn mánudaga til föstudaga kl. 12-17 og fyrsta laugardag
í mánuði kl. 11-14. Bækur, myndbönd, tónlistardiskar, búsáhöld,
skrautmunir, fatnaður og allt mögulegt til heimilisins.
Móttaka á sama stað og tíma. Sími 533 4900.
Frímerki – hendum ekki verðmætum!
Við tökum við frímerkjum, helst á umslögunum sjálfum,
og frímerkjasöfnum. Sjálfboðaliði kemur frímerkjunum í verð.
Hjálpið okkur að hjálpa öðrum. Safnið og sendið
til Kristniboðssambandsins, Grensásvegi 7, 108 Reykjavík.
Hungursneyð
Hungursneyð er víða í Austur-Afríku. Við höfum tekið að okkur
að hjálpa því fólki í Pókothéraði í Keníu sem verst er statt.
Söfnunarreikningurinn er nr. 117-26-9000 í Landsbankanum,
kt. 550269-4149.
Kristniboðssambandið
– í trú, von og kærleika
Samband íslenskra kristniboðsfélaga
Grensásvegi 7, 2. hæð
Sími 533 4900
www. sik.is