Morgunblaðið - 02.10.2009, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 02.10.2009, Qupperneq 39
Minningar 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. OKTÓBER 2009 Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl Gisting AKUREYRI Sumarhús (130 fm) til leigu við Akureyri. TILBOÐ Á LEIGU - Sun - Fim., 2 baðherb., rúm fyrir 11 manns, glæsilegt útsýni yfir Akureyri. www.orlofshus.is eða Leó, sími 897 5300. Hljóðfæri Til sölu Yamaha trompet, sópran saxafónn og banjó. Uppl. í síma 438-6791 eftir kl. 19.00. Dúndurtilboð Kassagítarar: 1/4 stærð kr. 10.900 pakkinn með poka, strengjasetti og stilliflautu. 1/2 stærð kr. 7.900. Full stærð kr. 12.900. 3/4 kr. 10.900. 4/4 kr. 12.900. Rafmagnsgítarpakkar frá kr. 39.900. Hljómborð frá kr. 8.900. Trommusett kr. 79.900 með öllu. Gítarinn, Stórhöfða 27, sími 552 2125. www.gitarinn.is Sumarhús Sumarhús - orlofshús Erum að framleiða stórglæsileg og vönduð sumarhús í ýmsum stærðum. Áratuga reynsla. Höfum til sýnis á staðnum fullbúin hús og einnig á hinum ýmsu byggingarstigum. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, símar 892 3742 og 483 3693, netfang: www.tresmidjan.is Falleg og vönduð sumarhús frá Stoðverk ehf. í Ölfusi Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup- enda. Símar: 660 8732, 660 8730, 892 8661, 483 5009. stodverk@simnet.is Tómstundir Öflugir fjarstýrðir rafmagns- og bensínbílar í miklu úrvali. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 587 0600. www.tomstundahusid.is. Óska eftir KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum gull til að smíða úr. Spörum gjaldeyri. Heiðarleg viðskipti. Aðeins í verslun okkar Laugavegi 61. Jón og Óskar, jonogoskar.is - s. 552-4910. KAUPI GULL ! Ég, Magnús Steinþórsson gull- smíðameistari, kaupi gull, gull- peninga og gullskartgripi af fólki og veiti ég góð ráð. Kaupi allt gull, nýlegt, gamalt og illa farið. Leitið til fagmanns. Upplýsingar á demantar.is, í síma 699 8000 eða komið í Pósthússtræti 13. Verið velkomin. Ýmislegt Velúrgallar Innigallar Bómullar- og velúrgallar fyrir konur á öllum aldri. Stærðir S - XXXL Sími 568 5170 Vandaðar og þægilegar herra- mokkasíur úr leðri og með skinnfóðri Litur: Svart. Stærðir: 41-46. Verð: 14.700.- Sportlegir og vandaðir herraskór úr mjúku leðri og með skinnfóðri Litur: Brúnt. Stærðir: 41-46. Verð: 17.550.- Vandaðir herraskór úr mjúku leðri og með skinnfóðri. Henta vel breiðum fæti og hárri rist. Litir: Svart og brúnt. Stærðir: 40-45. Verð: 14.700.- Misty skór, Laugavegi 178, sími: 551 2070, opið: mán.- fös. 10 - 18, lau. 10 -14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. TILBOÐ Dömu- og herraskór úr leðri. Verð kr. 2.500. Misty skór, Laugavegi 178, sími: 551 2070, opið: mán.- fös. 10 - 18, lau. 10 -14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. Teg. 7273 - léttfylltur og mjög flottur í BC-skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,-, Teg. 6579 - mjúkur og æðislegur í CDE-skálum á kr. 3.950,- buxur í stíl á kr. 1.950,- Misty, Laugavegi 178, sími 551 3366. Opið mán.-fös. 10-18, laugard. 10 - 14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is Haust í Skarthúsinu Alpahúfur, sjöl, legghlífar og vettlingar . Ný sending. Póstsendum. Skarthúsið, Laugavegi 44. Sími 562 2466. Bátar Skemmtibátur, gott dekkpláss Í bátnum er nýtt AIS-tæki, ný talstöð ásamt dýptarmæli og radar. 40 hest- afla vél með nýjum startara, altana- tor og m.fl. Uppl. í síma 894 3117. Bílar www.Seldubilinn.is Seldu bílinn strax. Fáðu greitt strax. Losnaðu við alla fyrirhöfnina. Engin skuldbinding. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 KRINGLUBÓN ekið inn stóri- litli turn. Opið mán.-fös. 8-18, lau. 10-18. S. 534 2455 GÆÐABÓN Hafnarfirði bílakj. Firðinum (undir verslunarm.) Opið mán.-fös. 8-18. S. 555 3766 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái og leðurhreinsun Hjólbarðar Nagladekk til sölu Til sölu lítið slitin nagladekk 245/70R16 á felgum undan Nissan terrano. Felgurnar eru flottar og dekkin fín. Uppl. í síma 866 1345 eða oli_stueland@hotmail.com Húsviðhald Tökum að okkur að leggja PVC dúk á þök og bílskúra. Þjónum lands- byggðinni einnig. Erum líka í viðgerðum. Uppl. í síma 659-3598. Hreinsa þakrennur Hreinsa þakrennur fyrir veturinn o.fl. Upplýsingar í síma 847 8704. ✝ ÍslandsvinurinnBeatrice „Bambi“ Wolberg Bixon and- aðist í heimabæ sínum New Haven í Con- necticut í Bandaríkj- unum 24.9. sl. Útför hennar fór fram frá Robert E. Shure Funeral Home í New Haven 29. sept. sl. Bambi var fædd 5. mars 1938 í Brooklyn, New York. Foreldrar hennar voru báðir gyðingar, móðir hennar af rússnesku bergi brotin en David Bixon, faðir hennar, pólskur. Bambi stundaði nám við Abra- ham Lincoln High School í Brook- hennar er David Phillip Bixon. Bambi kom fyrst til Íslands árið 1989 og tók strax miklu ástfóstri við land og þjóð og eignaðist hér mik- inn fjölda vina. Hún tók sumarnám- skeið í íslensku fyrir erlenda stúd- enta við Stofnun Sigurðar Nordal, gerðist mikill velunnari þeirrar stofnunar, svo og guðfræðideildar Háskóla Íslands og Landsbókasafns – Háskólabókasafns. Hefur hún gefið þessum stofn- unum mikinn fjölda vandaðra fræðibóka, sem eru líklega ekki undir þúsund talsins. Hún keypti sér íbúð í Reykjavík árið 1992 og dvaldist eftir það hér á landi á hverju sumri, ekki skemur en tvo mánuði í senn og kom jafnandi fær- andi hendi, með mikinn fjölda bóka til Háskólabókasafnins. Hún var og virk í samfélagi gyðinga hér á landi. Minningarathöfn um Bambi Bix- on verður haldin í kapellu Háskóla Íslands kl. 15 í dag. Fyrir mér var það hin síðari árin eins og hluti af sumarkomunni að sækja Íslandsvininn mikla Bambi Bixon út á Keflavíkurflugvöll. Og gleði hennar leyndi sér aldrei er hún var lent. Hún andaði djúpt að sér ís- lenska loftinu sem hún elskaði og lét með látbragði og orðum í ljósi mikla ánægju sína yfir að vera komin „heim“. Hér átti hún heima og hér átti hún líka mikinn fjölda vina sem allir áttu henni margt að þakka. Hún hafði mikla ánægju af því að bjóða vinum sínum heim í íbúðina fallegu á Birki- melnum þaðan sem útsýnið vestur yfir Snæfellsnesið var svo fallegt og íslenska kvöldsólin heillaði hana. Er ég tók við kennslustólnum í gamlatestamentisfræðum af próf. Þóri Kr. Þórðarsyni (1924-1995) má næstum segja að Bambi hafi fylgt með í kaupbæti. Hún var náinn vin- ur Þóris og þó að ekki höfðu þau þekkst í mörg ár, mat hún hann afar mikils og áhuginn á gyðinglegum fræðum var meðal þess sem samein- aði þau. Og ekki leið á löngu þar til Bambi sýndi mér svipaða vinsemd, vildi allt fyrir mig gera og varð brátt eins og ein úr fjölskyldunni. Bambi var afar fróð og víðlesin kona. „Frá því að ég lærði að lesa hef ég verið bókaormur,“ sagði Bambi eitt sinn við mig. Hún hafði líka mikinn áhuga á óperum og gegnum verk Wagners vaknaði áhugi hennar á Eddu og öðrum ís- lenskum fornsögum. Hún las allt sem hún komst yfir og draumur hennar um að komast til Íslands og kynnast landi og þjóð gerði snemma vart við sig. Hún gladdist mjög er hún komst í kynni við íslenskan hagfræðinema, Jónas Bjarnason, í New Haven. Hann varð heimagangur hjá henni ytra og greiddi síðan götu hennar til Íslands. Bambi tók strax að leita uppi gyð- inga hér á landi og lagði sitt af mörkum til að efla samfélag þeirra. Henni fannst verulega vanta á bóka- kostinn í gyðinglegum fræðum á söfnum hér og tók fljótlega að bæta úr því. Líklega eru fræðibækur sem hún hefur gefið guðfræðideild og Háskólabókasafni nú um eitt þúsund talsins. Stofnun Sigurðar Nordal naut og góðs af gjafmildi hennar. En fyrst og fremst var Bambi mikill vinur vina sinna hér á landi. Hún var heilluð af íslenskir sögu, las allt sem hún komst yfir, og sjálf vann hún að því að rita sögu gyðinga á Íslandi. Það var einstaklega ánægjulegt að taka hana í ökuferðir út á land. Við kölluðum þessar ferðir okkar í gamni „Driving miss Daisy“ eftir kvikmynd sem við héldum bæði upp á. Hún var áhugasöm um samstarf kristni og gyðingdóms. Sjálf sótti hún reglulega enskar messur í Hall- grímskirkju og kom á hverju sumri, mörg undanfarin ár, með mér í Strandarkirkju. En hún var heil í sinni gyðinglegu trú en frjálsleg í trúarefnum. Fylgdi t.d. ekki „kos- her“-matarreglum og því var engum vandkvæðum bundið að bjóða henni í mat. Hún veiktist alvarlega síðastliðinn vetur, en tók þeim veikindum með æðruleysi, sagðist hafa lifað góðu lífi. En bætti við að erfiðast ætti hún með að sætta sig við að koma ekki framar til Íslands. Guð blessi minningu hinnar mik- ilhæfu konu, Bambí Bixon. Gunnlaugur A. Jónsson. Beatrice Wolberg Bixon lyn og lauk prófi það- an 1955. BA-prófi í hagfræði lauk hún frá Roanoke College, Sa- lem VA 1959. Hún tók að auki fjölmörg nám- skeið við ýmsa há- skóla, þ.á m. Harvard University Summer School og mikinn fjölda námskeiða í ýmsum greinum gyð- inglegra fræða, þ.á m. í hebresku og ritskýringu. Hún bjó um sex mánaða skeið í Ísrael árið 1964. David, manni sín- um, sem látinn er fyrir fáeinum ár- um, giftist hún 1970 og eignuðust þau einn son, Jeremy. Sonarsonur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.