Morgunblaðið - 20.10.2009, Blaðsíða 25
Dagbók 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2009
Sudoku
Frumstig
5 1 7
1
9 8
9
4 8
2 5 3 4 6
3 5 9
8 2 3 7
6 1 4
6 8
9 5 1
3 2
2 8 9
6 1 7
9 6
8 9 1
3 4 6 9 7
7 2 5
5
6 3 2
7 3 4 5 1
3 4 8
6 5 2
4
8 5 3
8 6
7 9 1
4 7 6 2 3 1 8 5 9
3 8 2 9 5 4 7 1 6
1 9 5 7 8 6 4 3 2
9 2 1 3 6 7 5 8 4
5 6 4 8 1 9 3 2 7
7 3 8 5 4 2 9 6 1
8 4 7 6 2 5 1 9 3
6 1 3 4 9 8 2 7 5
2 5 9 1 7 3 6 4 8
3 9 5 4 8 7 2 1 6
1 4 8 2 3 6 7 5 9
6 7 2 5 1 9 8 4 3
2 8 9 1 4 3 5 6 7
7 5 3 6 9 2 1 8 4
4 6 1 7 5 8 9 3 2
5 1 7 3 2 4 6 9 8
8 2 4 9 6 1 3 7 5
9 3 6 8 7 5 4 2 1
9 5 1 2 6 3 4 8 7
4 8 3 7 1 5 6 2 9
2 7 6 4 9 8 3 1 5
5 2 8 6 7 4 9 3 1
3 4 9 8 5 1 2 7 6
6 1 7 3 2 9 5 4 8
1 3 4 5 8 6 7 9 2
8 6 2 9 4 7 1 5 3
7 9 5 1 3 2 8 6 4
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er þriðjudagur 20. október,
293. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Jesús sagði við hann:
Far þú, trú þín hefur bjargað þér.
Jafnskjótt fékk hann sjónina og fylgdi
honum á ferðinni. (Mark. 10,52.)
Á meðan lög eru í landinu sembanna áfengisauglýsingar skil-
ur Víkverji ekkert í því af hverju
auglýsingar á bjór fá að vaða uppi í
fjölmiðlum, sérstaklega á sjónvarps-
stöðvunum. Með því að setja ör-
smátt letur um „léttöl“ í auglýs-
ingarammann, oftar en ekki neðst og
í örfáar sekúndur, virðist sem bjór-
framleiðendur og innflytjendur
sleppi með skrekkinn. Enginn tekur
eftir þessum merkingum nema þá
með stækkunargleri og það er með
ólíkindum hvernig þetta flæðir
hindrunarlaust áfram.
Bjórauglýsingunum er augljós-
lega beint að ungu fólki með ýmsum
ráðum, þegar litið er m.a. til texta-
gerðar, tónlistar, myndatöku og
leikenda í auglýsingunum. Bjór-
framleiðendur kosta einnig einstaka
dagskrárliði, eins og útsendingar frá
íþróttakappleikjum og -viðburðum.
Sé þetta gert með vilja löggjafans,
og þeirra sem eiga að framfylgja
lögunum, verður að breyta lögum
frá Alþingi þannig að feluleiknum sé
hætt. Víkverji er á því að leikregl-
urnar verði að vera einfaldar og
skýrar; annaðhvort eru áfengis-
auglýsingar bannaðar eða ekki, og
komast þarf hjá því með einhverjum
hætti í nýrri löggjöf að framleið-
endur á bjór geti skýlt sér á bakvið
léttölið ef niðurstaðan verður sú að
banna eða takmarka þessar auglýs-
ingar.
x x x
Yfir í léttara hjal. Víkverji erlangt frá því að vera hestamað-
ur en honum gafst færi á að sjá kvik-
myndina Kraftur – síðasti sprett-
urinn í Kringlubíói á dögunum. Þar
var hestinum Krafti og knapanum
Þórarni Eymundssyni fylgt eftir á
Heimsmeistaramót íslenska hests-
ins, er fram fór í Hollandi fyrir
tveimur árum. Vel gerð og mannleg
mynd hjá Árna Gunnarssyni, Stein-
grími Karlssyni og Þorvarði Björg-
úlfssyni. Víkverji felldi tár þegar
Þórarinn kvaddi Kraft að móti
loknu, hlaðinn verðlaunum eftir mót-
ið. Mynd sem lætur engan ósnortinn
og vonandi verður hún tekin til sýn-
ingar í sjónvarpi sem allra fyrst.
víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 atyrtir, 8 fim-
ur, 9 blíðuhót, 10 ílát, 11
sníkja, 13 sárum, 15 blý-
kúlu, 18 slagi, 21 glöð,
22 hanga, 23 svarar, 24
tónverkið.
Lóðrétt | 2 rykkja, 3
mæta, 4 hryggja, 5
reiðum, 6 ókjör, 7 ergi-
leg, 12 skaut, 14 dvelj-
ast, 15 ógna, 16 ljóður,
17 þrjót, 18 framendi, 19
næða, 20 sjá eftir.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 skáld, 4 fávís, 7 gömul, 8 látið, 9 les, 11 sund,
13 erta, 14 ólgan, 15 þarm, 17 nekt, 20 krá, 22 kuldi, 23
sælar, 24 innan, 25 renni.
Lóðrétt: 1 seggs, 2 álman, 3 dall, 4 fals, 5 vitur, 6 síðla,
10 elgur, 12 dóm, 13 enn, 15 þokki, 16 rolan, 18 eklan,
19 tarfi, 20 kinn, 21 ásar.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4
Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 e5 7. Rb3 Be6 8.
Dd2 Rbd7 9. f3 Be7 10. O-O-O O-O
11. g4 b5 12. g5 b4 13. gxf6 bxc3 14.
Dxc3 Rxf6 15. Hg1 Kh8 16. De1 Dc7
17. Bd3 a5 18. Kb1 Hfb8 19. Bc1 Rh5
20. Df1 a4 21. Rd2 Rf4 22. Bc4 Hc8
23. b3 Da7 24. Bxe6 fxe6 25. b4 d5 26.
a3 Db7 27. Bb2
Staðan kom upp í A-flokki Haust-
móts Taflfélags Reykjavíkur sem lauk
fyrir skömmu í húsakynnum félagsins
í Faxafeni 12. Sigurvegari mótsins,
Hjörvar Steinn Grétarsson (2320)
hafði svart gegn Lenku Ptácníkovu
(2285). 27… Bxb4! 28. axb4 Dxb4 29.
Kc1 d4! og hvítur gafst upp enda fátt
til varnar. Hjörvar fékk átta vinninga
af níu mögulegum á mótinu en Lenka
fékk 6 og hálfan vinning og lenti í
öðru sæti.
Svartur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Meistaradeildin.
Norður
♠G752
♥Á7642
♦D
♣D62
Vestur Austur
♠D86 ♠93
♥KG9 ♥D108
♦KG10876 ♦Á95432
♣10 ♣95
Suður
♠ÁK104
♥53
♦–
♣ÁKG8743
Suður spilar 6♠.
Rómverjarnir í sveit Angelini hömp-
uðu Meistarabikar Evrópu á sunnu-
daginn eftir sigur á Þjóðverjum í úr-
slitaleik. Meistaradeildin (Champions
Cup) er 12 sveita örmót með þátttöku
landsmeistara efstu þjóða á síðasta
Evrópumóti. Fyrir Íslands hönd spil-
aðu núverandi Íslandsmeistarar undir
forystu Símonar Símonarsonar.
Ísland mætti Angelini í fyrsta leik
mótsins. Ragnar Magnússon og Páll
Valdimarsson spiluðu 4♠ í NS, en hin-
um megin sögðu Lauria og Versace
slemmu, sem vannst eftir lauf út. Að-
eins útspil í hjarta fellir 6♠. Frakkinn
Pierre Zimmermann hitti á ♥9 út í öðr-
um leik. Sagnhafi drap og svínaði ♠10.
Einn niður? Nei, Zimmermann spilaði
nú ♦K! Hann var lokaður fyrir því að
sagnhafi gæti hent fjórum hjörtum nið-
ur í laufin sín.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Reyndu að koma skikki á hlutina
og skila því starfi sem þér er ætlað. Þú
öðlast það sem þú þráir fyrr en þú vænt-
ir.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Velgengni þín í starfi hefur stigið
þér svolítið til höfuðs. Kannski kemur
hún frá öðrum í fjölskyldunni. Vertu
óragur en ákveðinn.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Tvíburinn áttar sig á því hve-
nær hann skilur ekki eitthvað, sem er
lykillinn að því að skilja. Skoðaðu alla
skilmála.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú átt auðvelt með að leysa
þrautir í dag. Nú veistu að heimurinn
getur verið sanngjarn og átt því gott með
að sinna verkefnum þínum af bjartsýni.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Reyndu að sjá það jákvæða í lífinu
fremur en það neikvæða. Agi og erf-
iðleikar eiga sér sinn tíma, og hann er
ekki núna.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Nú reynir á þolinmæði þína því
ósanngjarnar ásakanir verða hafðar uppi
í þinn garð. Einhver gerir þér tilboð sem
getur haft mikil áhrif á framtíð þína.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er nauðsynlegt að halda sig á
mottunni hvað fjárútlát varðar. Allt á
sinn tíma og nú er aðalmálið að halda
fast utan um budduna.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Það er eitthvað innra með
þér sem vill gera uppreisn. Ef þú getur
ekki galdrað þá upp úr skónum með gáf-
um þínum skaltu reyna að ganga fram af
þeim.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú bókstaflega ljómar þessa
dagana og vekur eftirtekt hvar sem þú
kemur. Að vinna með tveimur mann-
eskjum sem fá frábærar hugmyndir gæti
komið þér á hæsta tind heimsins.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Galdurinn felst í því að láta
engan hafa áhrif á sig, sérstaklega ekki
þá sem þú elskar og lítur upp til. Bros og
smávegis tiltal gerir gæfumuninn.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Það er eitthvert slen í þér og
þú þarft að taka á honum stóra þínum til
þess að komast í gegnum venjulegan
dag.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þér verður umbunað að fullu fyrir
það sem þú leggur af mörkum og verður
að mestu leyti ánægður. Vertu því spar-
samur áfram.
Stjörnuspá
Þetta gerðist …
20. október 1989
Borgarleikhúsið í Reykjavík
var vígt. Það hafði verið þrett-
án ár í byggingu og var rúmir
tíu þúsund fermetrar að flat-
armáli. Í því voru þá tveir sal-
ir, annar fyrir 570 manns í
sæti, hinn 270 manns.
20. október 1999
Sjónvarpsstöðin Skjár einn
tók til starfa á ný, með áherslu
á íslenska dagskrárgerð og
fréttir. Í upphafi voru 16 ís-
lenskir þættir frumsýndir í
hverri viku.
20. október 2000
Útilistaverkið Dansleikur eftir
Þorbjörgu Pálsdóttur var af-
hjúpað við Perluna. Listakon-
an hafði gefið Reykjavíkur-
borg verkið, sem var gert árið
1970.
20. október 2006
Kvikmyndin Mýrin var frum-
sýnd. Leikstjóri var Baltasar
Kormákur en hann gerði
handrit ásamt Arnaldi Ind-
riðasyni, sem gaf út sam-
nefnda bók sex árum áður. Á
rúmum tveimur mánuðum
voru áhorfendurnir 81.850.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Ragna S.
Gunnarsdóttir er
áttræð í dag, 20.
október. Hún
verður með opið
hús í salnum í
Reiðhöllinni,
Víðidal frá kl. 17
til 19 á afmælis-
daginn. Blóm og
gjafir vinsamlegast afþökkuð en
söfnunarbaukur fyrir langveik
börn verður á staðnum.
80 ára
„Þetta verður alltaf betra með aldrinum,“ sagði
María Sigurðardóttir, leikhússtjóri Leikfélags Ak-
ureyrar (LA). Hún fagnar 55 ára afmæli í dag.
María kvaðst eiginlega vera hætt að halda upp á
afmælið sitt en ætla þó að mæta með „djúsí tertu“ í
vinnuna hjá LA. Þar er heilmikið um að vera.
„Við erum nýbúin að frumsýna Lilju og erum að
undirbúa næstu verkefni sem eru jólaleikritið
Lykillinn að jólunum og leikritið 39 þrep sem
verður frumsýnt í janúar og ég leikstýri,“ sagði
María. En eru einhver afmæli eftirminnileg?
„Ég hélt dálítið veglega upp á fertugsafmælið
og það var mjög gaman. Þá vann ég mikið í kvikmyndum og hafði ver-
ið hér fyrir norðan, í Reykjadal, og búið þar um skeið. Ég bauð helling
af fólki úr öllum áttum og hélt afmælið í félagsheimili. Það var æðis-
lega gaman. Ég þarf eiginlega ekki að halda aftur upp á afmælið,“
sagði María. En hefur hún tileinkað sér lífsspeki að lifa eftir?
„Mitt mottó hefur eiginlega verið að ég nenni ekki að æsa mig og
rífast við fólk. Ég vil hafa þetta á rólegum nótum og vera góð og vin-
gjarnleg. Það hefur gengið jafn vel og að vera með læti. Mitt mottó
það sem eftir er er að vera opin og hreinskilin.“ gudni@mbl.is
María Sigurðardóttir leikhússtjóri 55 ára í dag
Þetta batnar með aldrinum
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is