Morgunblaðið - 20.10.2009, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2009
Háskastig
almannavarnadeildar RLS
Óvissustig Samsvarar 3. stigi WHO
Ráðstafanir:
• Samráð/samstarf við mikilvæg erlend samtök og stofnanir
• Samráð/samstarf milli innlendra stofnana, samtaka,
fyrirtækja og félaga.
• Skráning upplýsinga um staði þar sem sýking hefur komið
fram.
• Athugun á birgðastöðu matar, lyfja og annarrar nauðsynjavöru.
• Athugun á boðleiðum, fjarskiptum og fleiru þess háttar.
•Æfingar, almannavarnaæfing,minni æfingar innan stofnana
og/eða hjá aðilum sem hafa sameiginleg verkefni
Hættustig Samsvarar 4. og 5. stigi WHO
Ráðstafanir:
• Ráðstafanir til að koma í veg fyrir að sýktir einstaklingar komi
til Íslands.
• Komi fólk frá sýktum svæðum til Íslands fer fyrsta læknis-
rannsókn fram í flughöfnum (Keflavík) og höfnum.
• Söfnun og úrvinnsla faraldursfræðilegra upplýsinga.
• Hugsanlega loka einhverjum höfnum/flugvöllum
• Heimasóttkví hugsanlega beitt gegn þeim sem eru einkenna-
lausir en gætu hafa smitast.
• Skip hugsanlega sett í sóttkví
• Skipulögð dreifing/taka fyrirbyggjandi inflúensulyfja meðal
áhættuhópa íhuguð.
• Athuga með heimköllun Íslendinga frá svæðum þar sem hóp-
sýkingar af völdum nýs stofns inflúensu hafa brotist út.
Neyðarstig Samsvarar 6. stigi WHO
Ráðstafanir:
• Viðbragðskerfi að fullu virkjað
• Samkomubann, lokun skóla o.fl.
• Útskrift sjúklinga af sjúkrahúsum
• Skipulögð dreifing / taka fyrirbyggjandi inflúensulyfja meðal
áhættuhópa.
Banka- og fjármálaþjónusta
Meginverkefni: Tryggja meginþjónustu fjármála-
fyrirtækja þannig að almenningur og fyrirtæki hafi
aðgang að grunnþjónustu sem er greiðslu- og uppgjörs-
kerfi og ótakmarkað aðgengi að reikningum.
Bilanir, veitur, fjarskipti og fjölmiðlar
Meginverkefni: Tryggja aðgengi almennings og við-
bragðsaðila að rafmagni, hita, neysluvatni, upplýsingum
og samskiptaleið.
Bólusetningar, hjúkrunarvörur og lyf
Meginverkefni: Tryggja öruggt birgðahald, dreifingu og
skráningu lyfja og hjúkrunarvara.
Dreifing nauðsynja
Meginverkefni: Tryggja birgðahald, dreifingu og
skráningu nauðsynja (matvara, hreinlætisvörur,
eldsneyti).
Fangelsin
Meginverkefni: Halda uppi eðlilegri starfsemi í
fangelsiskerfinu og tryggja eftir fremsta megni að
afplánun fari frammeð eðlilegum hætti.
Fræðsla, samskipti, upplýsingamiðlun
Meginverkefni: Gera fræðsluefni og miðla leiðbein-
ingum/fræðslu til almennings, faghópa og viðbragðs-
aðila á mismunandi háskastigum faraldurs.
Greining og meðferð inflúensutilfella
Meginverkefni: Skipuleggja greiningu,meðferð,
öryggisgæslu heilbrigðisstarfsmanna og skráningu
inflúensutilfella.
Heimahjúkrun
Meginverkefni: Skipuleggja hjúkrunarþjónustu fyrir
sjúklinga í heimahúsum, umönnun aldraðra og fatlaðra
í heimahúsum, skráningu á þjónustu, skipuleggja lager
heimahjúkrunar fyrir lyf og hjúkrunarvörur ásamt eftirliti
með lager og skipuleggja förgun hlífðarbúnaðar og
sóttmengaðs sorps.
Matvælaframleiðsla
Meginverkefni: Safna upplýsingum og veita upp-
lýsingar um stöðu matvælabirgða í landinu þegar
inflúensufaraldur geisar, Gerð verklagsreglna fyrir mat-
vælaframleiðendur. Matvælaframleiðendur vinni eftir
verklagsreglum og tryggi lágmarksstöðu birgða eftir því
sem aðstæður leyfa.
Meðhöndlun og varsla látinna
Meginverkefni: Framkvæmd við úrskurð látinna,merk-
ing líka, flutningur í líkhús og varðveisla þar til greftrun
hefur farið fram.
Póstþjónusta
Meginverkefni: Tryggja örugga dreifingu á pósti,
lyfjum og hjúkrunarvörum á viðbúnaðar- og hættustigi
inflúensufaraldurs.
Sálgæsla
Meginverkefni: Upplýsingagjöf og aðgengi að upplýs-
ingum um sálgæslu eftir ástvinamissi.
Sjúkraflutningar
Meginverkefni: Styrkja sjúkraflutninga í heimsfaraldri
inflúensu með öllum tiltækum ráðum og fræða sjúkra-
flutningamenn um sóttvarnir.
Skólahald
Meginverkefni: Tryggja eðlilegt skólahald þar til
ákvörðun um lokun kann að verða tekin. Skólar munu
leitast við að tryggja að nemendur haldi áfram námi sínu
heima eins og kostur er, komi til lokunar þeirra. Þótt
nemendur verði sendir heim er reiknað með að starfs-
fólk skólanna haldi áfram störfum sínum og þannig verði
starfsemi skólanna haldið gangandi að vissu marki.
Sorphirða
Meginverkefni: Að haldið verði áfram að hirða heimilis-
úrgang frá heimilum og fyrirtækjum þó til inflúensufar-
aldurs komi. Hafa úrræði til förgunar rekstrarúrgangs frá
fyrirtækjum og fyrir úrgang frá íbúum sveitarfélagsins.
Takmarkanir á ferðafrelsi
Meginverkefni: Lokun landsins og skipting eftir
landshlutum upp í sóttvarnakvíar og lokun milli sótt-
varnasvæða og samgöngubann samkvæmt ákvörðun
heilbrigðisráðherra að tillögu sóttvarnalæknis.
Þjónusta við dýr
Meginverkefni: Skipuleggja viðbrögð vegna umhirðu
og fóðrunar dýra, dreifingu fóðurs og dýralyfja og heil-
brigðisþjónustu við dýr í inflúensufaraldri.
Æðsta stjórn landsins
Meginverkefni: Hrinda sóttvarnaráðstöfunum í fram-
kvæmd, taka ákvarðanir sem varða almannahagsmuni,
til dæmis varðandi lokun landsins og efnahagslegs eðlis.
Yfirumsjón undirbúningsráðstafana og fjölmiðlasam-
skipti.
Öryggisvarsla sjúkrastofnana og
mikilvægra stofnana og bygginga
Meginverkefni: Setja fram lista yfir sjúkrastofnanir og
mikilvægar byggingar og tryggja öryggisvörslu þeirra.
1.
2.
3.
4.
5.
Enginn nýr in-
flúensustofn hefur
greinst í mönnum.
Enginn nýr inflúensu-
stofn hefur greinst
í mönnum. Stofn
inflúensuveiru geisar
í fuglum og er talinn
ógna mönnum.
Stofn inflúensuveiru
greinist í mönnum
en smitast ekki
eða í undantekn-
ingartilfellum og þá
aðeins við mjög náið
samband manna.
Litlar staðbundnar
hópsýkingar brjót-
ast út hjá mönnum
af völdum nýs
stofns inflúensu
sem virðist ekki
hafa lagað sig vel að
mönnum.
Umtalsverðar en
staðbundnar hóp-
sýkingar. Veiran
hefur aðlagast
mönnum en ekki
í þeim mæli að
umtalsverð hætta sé
á heimsfaraldri.
Heimsfaraldur.
Vaxandi og viðvar-
andi útbreiðsla smits
á meðal manna.
6.
Sk
ei
ð
m
ill
ih
ei
m
sf
ar
al
dr
a
Vi
ðv
ör
un
ar
sk
ei
ð
H
ei
m
sf
ar
al
du
r
Sóttvarnaráðstafanir
Líkur á að hingað berist alvarlegur smitsjúkdómur á
borð við heimsfaraldur inflúensu eru miklar, enda eru
ferðalög til og frá Íslandi tíð. Fyrirfram er ekki hægt
að fullyrða um hversu skæður slíkur faraldur verður
en heimsfaraldur er ávallt skæðari en árstíðabundin
inflúensa.
Áætlanir gera ráð fyrir að um 50% þjóðarinnar muni
sýkjast á 12 vikna tímabili og allt að 3% þeirra sem
sýkjast geti látist, verði ekki gripið til sértækra sótt-
varnaráðstafana.
Gert er ráð fyrir að með sóttvarnaráðstöfunummuni
25% þjóðarinnar sýkjast og dánartíðnin verða um 1%.
Áhættumat
156.426
sjúkdómstilfelli
4.693
umframdauðsföll
78.213
sjúkdómstilfelli
782
umframdauðsföll
Grípa getur þurft til samkomubanns, en í því felst að fjöldasam-
komur eru óheimilar. Gildir þá einu hvort um er að ræða fundar-
höld, skólastarf, skemmtanir á borð við dansleiki, leiksýningar
eða kirkjuathafnir á borð við messur. Það er í höndum heil-
brigðisráðherra að setja og aflétta samkomubanni, að tillögu
sóttvarnalæknis.
Þá getur ráðherra, að tillögu sótt-
varnalæknis, takmarkað ferðafrelsi
manna með því að grípa til af-
kvíunar byggðarlaga og landsins
alls. Hann getur líka einangrað
sýkta menn en það er Almanna-
varnadeild sem sér um framkvæmd
þessara ráðstafana í samvinnu
við dómsmálaráðu-
neyti og lögrglustjóra.
Verkefni
viðbragðsaðila
Hvað gerist...
... í svínaflensufaraldri?
Háskastig WHO
(Alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar)
•Sóttvarnalæknar umdæma
og svæða
• Faglegir yfirmenn
sjúkrastofnana
• Umhverfisstofnun
• Dreifingaraðilar lyfja
og hjúkrunarvara
• Matvælastofnun
•Æðsta stjórn
landsins
• Lögreglustjórar
• Samband
íslenskra
sveitarfélaga
• Slökkvilið
• Vegagerðin
• Samtök atvinnulífsins
• ASÍ og önnur samtök
launafólks
• Rauði krossinn
• Slysavarnafélagið
Landsbjörg
• Fangelsismálastofnun
• Biskupsstofa
• Yfirmenn kirkju-
garða
• Útfararþjónustur
• og fleiri
Ofangreindir aðilar
halda boðun áfram
samkvæmt fyrir-
liggjandi boðunarskrám
í eigin vörslu.
Í byrjun vikunnar höfðu 479 einstaklingar greinst
með inflúensu A(H1N1) á Íslandi. Alls hafa borist
yfir 3.660 tilkynningar um inflúensulík einkenni og í
gær var tilkynnt um dauðsfall af völdum flensunnar.
Alþjóða heilbrigðisstofnunin lýsti yfir háskastigi 6
11. júní, sem þýðir að um heimsfaraldur er að ræða
og endurspeglar það fyrst og fremst dreifingu svína-
flensunnar í öllum heimsálfum. Á Íslandi er hins-
vegar unnið eftir Hættustigi á skala
almannavarnadeildar RLS, sem ræðst af
útbreiðslunni hérlendis.
Til að gefa hugmynd um umfang þeirrar vinnu
og aðgerða sem fara í gang vegna svínaflens-
unnar er hér útdráttur úr viðbragðsáætlun fyrir
heimsfaraldur inflúensu. Áætlunina í heild sinni
má nálgast m.a. á www.influensa.is. ee@mbl.is
Viðbragðsaðilar boðaðir útHvað er „hættustig“?
Vefsíður:
www.almannavarnir.is
www.influensa.is
www.landlaeknir.is
www.who.int
www.ecdc.europa.eu
Einkenni:
Skyndilegur hiti
Hálssærindi
Vöðvaverkir
Slappleiki
Hósti
Bein- og höfuðverkur
Ógleði, uppköst/
niðurgangur
(í sumum tilfellum)
Samkvæmt háskastigaskala almannavarnakerfisins á Íslandi er „hættustig“ notað
þegar viðhafa skal viðbúnað vegna hættu. Þrjú skilgreiningastig eiga við þetta stig í
viðbragðsáætlun vegna heimsfaraldurs inflúensu:
1. Engin staðfest sýking hérlendis.
2. Litlar hópsýkingar af völdum nýs undirflokks inflúensuveirunnar brjótast út
hjá mönnum á takmörkuðu svæði en veiran virðist ekki hafa lagað sig vel að
mönnum.
3. Umtalsverðar hópsýkingar brjótast út hjá mönnum en þær eru staðbundnar.
Vísbendingar eru um að veiran aðlagist mönnum í vaxandi mæli en þó ekki
þannig að umtalsverð hætta sé á heimsfaraldri.
Þrátt fyrir að svínaflensan teljist nú til
heimsfaraldurs eruþað fyrst og fremst
aðstæður heima fyrir sem ráða því
hvaða háskastigi unnið er
eftir í íslenska almanna-
varnakerfinu.