Morgunblaðið - 20.10.2009, Qupperneq 13
Fréttir 13VIÐSKIPTI | ATVINNULÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 2009
FRÉTTASKÝRING
Eftir Bjarna Ólafsson
bjarni@mbl.is
LAGALEGA umhverfið í kringum
uppgjör á þrotabúi gamla Lands-
bankans gerir það að verkum að
mikil gengisáætta hvílir á ríkinu
vegna Icesave-samningsins við
Breta og Hollendinga. Þessi áhætta
gerir það að verkum að mjög mikil
óvissa er um hve þungar byrðarnar
verða sem falla munu á ríkið þegar
að því kemur að greiða til baka lánin
frá Bretum og Hollendingum. Getur
áhættan hlaupið á hundruðum millj-
arða króna burtséð frá því hvort
eignir gamla Landsbankans duga
fyrir forgangskröfum eða ekki.
Ástæðan er einföld. Kröfu Trygg-
ingasjóðs innistæðueigenda á hend-
ur gamla Landsbankanum var lýst
þann 22. apríl síðastliðinn og hljóðar
hún upp á 670 milljarða króna, enda
var það jafngildi lána Hollendinga
og Breta miðað við gengi krónunnar
þann dag. Samkvæmt íslenskum
lögum eru kröfur bundnar við þá
fjárhæð – í krónum – sem lýst var í
búið á kröfulýsingardegi.
Skuldir sjóðsins við Hollendinga
og Breta eru hins vegar í evrum og
pundum og sama á við um stóran
hluta eigna gamla Landsbankans.
Þýðir þetta að veikist krónan
frekar þá mun virði eigna þrotabús-
ins hækka í krónum talið. Gæti veik-
ing krónunnar jafnvel gert það að
verkum að allar forgangskröfur fáist
greiddar og að eitthvað fáist greitt
upp í almennar kröfur.
Hundruð milljarða í húfi
Þessi þróun mun hins vegar ekki
bæta stöðu tryggingasjóðsins, því
hann mun aldrei fá meira út úr
þrotabúinu en sem nemur þeim 670
milljörðum íslenskra króna sem
hann lýsti í búið þann 22. apríl.
Skuldir sjóðsins við bresk og hol-
lensk stjórnvöld eru, eins og áður
segir, í erlendri mynt og munu því
hækka með lækkandi gengi krón-
unnar. Frá 22. apríl hefur gengi
krónunnar lækkað og er andvirði
höfuðstóls skuldar sjóðsins í krónum
talið nú um 720 milljarðar og eru
áfallnir vextir þar ekki taldir með.
Sé gert ráð fyrir því að allar for-
gangskröfur fáist greiddar með
eignum gamla Landsbankans mun
ríkið þurfa að bera vaxtakostnaðinn.
Höfuðstóll upp á 720 milljarða og
óbreytt gengi þýðir að eftir fimm ár
verður nettóskuld tryggingasjóðsins
um 270 milljarðar, 380 milljarðar
eftir sjö ár og 500 milljarðar eftir níu
ár.
Dæmið verður enn svartara sé
gert ráð fyrir frekari veikingu krón-
unnar. Veikist krónan um 25 prósent
gagnvart evru og pundi verður
nettóskuld íslenska ríkisins 500
milljarðar eftir fimm ár og 780 millj-
arðar eftir níu ár.
Af ofanskrifuðu má ljóst vera að
við núverandi aðstæður ber íslenska
ríkið mikla gengisáhættu. Almennir
kröfuhafar hafa hins vegar af því
hag að gengi krónunnar veikist á
meðan þrotabú gamla Landsbank-
ans er gert upp. Þeir hafa einnig af
því hag að uppgjörsferlið dragist á
langinn. Því lengri tíma sem upp-
gjörið tekur því meiri verður ávöxt-
unin á eignum þrotabúsins og end-
urheimtur kröfuhafa sömuleiðis.
Hagsmunir ríkisins og almennra
kröfuhafa eru því andstæðir að
þessu leyti.
Gríðarleg gengisáhætta
Morgunblaðið/Kristinn
Samið Nýtt samkomulag um lausn Icesave-deilunnar var kynnt um helgina.
Í HNOTSKURN
»Eignir tryggingasjóðsins,þ.e. krafa hans á gamla
Landsbankann, eru í íslensk-
um krónum, en skuldir hans í
evrum og pundum.
»Veikist gengi krónunnar ánæstu árum breikkar því
bilið milli eigna og skulda.
»Almennir kröfuhafarLandsbankans hafa hins
vegar hag af veikara gengi.
Veikist krónan meira á næstu árum
eykst kostnaður vegna Icesave mikið
Almennir kröfuhafar gamla
Landsbankans hafa af því hag að
gengi krónunnar veikist og upp-
gjör bankans dragist á langinn.
HAGAR hf. hafa lokið endur-
fjármögnun félagsins í samstarfi
við Nýja Landsbankann og Nýja
Kaupþing banka. Hagar hafa nú
greitt að fullu skuldabréfaflokk fé-
lagsins, sem var á gjalddaga 19.
október 2009, upphaflega að fjár-
hæð 7 milljarða króna.
Í tilkynningu frá fyrirtækinu seg-
ir að Hagar séu eina fyrirtækið sem
greitt hafi upp að fullu skulda-
bréfaflokk, sem skráður var í
Kauphöll Íslands, eftir hrun ís-
lenska bankakerfisins.
Ekki er um að ræða endur-
fjármögnun móðurfélags Haga,
1998 ehf., en það félag skuldar Nýja
Kaupþingi um þrjátíu milljarða
króna. 1998 ehf. á 95,7 prósent hlut
í Högum en félagið er dótturfélag
Gaums sem er í eigu Jóns Ásgeirs
Jóhannessonar og fjölskyldu.
Greiða upp skuldabréf
Bónus Meðal eigna Haga er Bónus-
verslanakeðjan.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/S
A
L
47
69
6
10
.0
9
SAMTÖK ATVINNULÍFSINS EFNA TIL OPINS FUNDAR
MIÐVIKUDAGINN 21. OKTÓBER
Á HÓTEL LOFTLEIÐUM KL. 8:00-10:00
STÖÐUGLEIKASÁTTMÁLINN
Félagsmenn SA eru eindregið hvattir til að mæta og taka þátt
í umræðum um stöðugleikasáttmála aðila vinnumarkaðarins,
sveitarfélaga og ríkisstjórnarinnar.
DAGSKRÁ 8:00 Morgunkaffi og skráning
8:30 FRAMSÖGUR:
Vilmundur Jósefsson, formaður SA
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA
UMRÆÐUR OG FYRIRSPURNIR
10:00 Fundi lýkur
NAUÐSYNLEGT ER AÐ SKRÁ ÞÁTTTÖKU Á VEF SA WWW.SA.IS