Morgunblaðið - 20.10.2009, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 20.10.2009, Qupperneq 36
ÞRIÐJUDAGUR 20. OKTÓBER 293. DAGUR ÁRSINS 2009 »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 295 ÁSKRIFT 3390 HELGARÁSKRIFT 2070 PDF Á MBL.IS 1950 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana FÓLK Í FRÉTTUM» Heimild: Seðlabanki Íslands DOLLARI STERLINGSPUND KANADADOLLARI DÖNSK KRÓNA NORSK KRÓNA SÆNSK KRÓNA SVISSN. FRANKI JAPANSKT JEN SDR EVRA MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG 123,22 200,79 119,19 24,714 22,021 17,697 121,54 1,3578 196,35 184 Gengisskráning 19. október 2009 123,51 201,28 119,54 24,786 22,086 17,749 121,88 1,3618 196,94 184,51 236,2349 MiðKaup Sala 123,8 201,77 119,89 24,858 22,151 17,801 122,22 1,3658 197,53 185,02 Heitast 6°C | Kaldast -5°C Norðaustan 10-15 metrar á sekúndu suðaustan til og rigning. » 10 Bækur frá Steinunni Sigurðardóttur, Oddnýju Eiri Æv- arsdóttur og Huld- ari Breiðfjörð eru á meðal titla. »27 BÓKMENNTIR» Bjartur klár í slaginn ÍÞRÓTTIR» S.L.Á.T.U.R. stóð fyrir jaðaríþróttakeppni. »33 Pedro Almodóvar veldur ekki von- brigðum og snarar út stórgóðri mynd með Penélope Cruz í aðalhlutverki. »30 KVIKMYNDIR» Frábær Almodóvar TÓNLIST» JFM klikkaði ekki á Airwaves. »28 AF LISTUM» Kvenfyrirlitning í dægurmenningu. »31 Menning VEÐUR» 1. Fyrsta dauðsfallið hér 2. Travolta á Íslandi 3. Lést í slysi í Árnessýslu 4. Kvittað fyrir Icesave Íslenska krónan styrktist um 0,2% »MEST LESIÐ Á mbl.is  Sigurður Þ. Ragnarsson veð- urfréttamaður, einnig þekktur sem Siggi storm- ur, hefur und- irritað samning við SkjáEinn um að lesa veðurfréttir í fréttatím- anum klukkan 18.50 virka daga. Sigurður mætti í fyrsta veð- urfréttatímann í sameiginlegum fréttatíma mbl.is og Skjás Eins í gær og áætlað er að hann muni sjá um veðurfregnirnar þar héðan af. VEÐUR Siggi stormur með veður- fréttir á Skjá Einum  Breiðholtsdagar standa núna yfir með marg- víslegum uppá- komum. Það verð- ur t.d. fjör í heita pottinum í Breið- holtslaug þessa vikuna. Sigmundur Ernir Rún- arsson alþingismaður mætir þar upp úr 7.30 og spjallar við gesti. Hvort það verður um pólitík eða ljóðlist kemur í ljós. Á morgun mætir Gunnlaugur Júlíusson lang- hlaupari í pottinn. Á fimmtudag mætir þangað Ragnhildur B. Guð- jónsdóttir, varaformaður hverf- isráðs, og á föstudag Matthías Halldórsson landlæknir. VIÐBURÐIR Sigmundur Ernir mætir í pottinn í Breiðholtslaug  Á föstudaginn kemur munu Sig- tryggur Bald- ursson og kátir kappar hans í slag- verkshópnum Parabóla leika í Kulturhuset í Stokkhólmi. Einnig kemur Mammút fram og eru tónleikarnir hluti af nor- rænni menningarviku. Ásamt Sig- tryggi eru þeir Steingrímur Guð- mundsson og Guðmundur Vignir Karlsson, Kippi Kaninus, í hópnum. Leika þeir á svokallaðar endur- varpsparabólur sem eru í raun hlífar fyrir örbylgjudiska. TÓNLIST Parabólurnar glymja í Stokkhólmi á föstudag HÚN virtist nokkuð hugsi, hnátan sem horfði á vinkonur sínar í snúsnú við Landakotsskóla í gær. Auga myndavélarinnar er glúrið og sér vin- konurnar þar sem þær speglast í hlið bílsins sem lagt er utan skólalóðarinnar. Vel bónuð renni- reiðin kemur myndinni vel til skila. STÚLKUR SPEGLAST Í RENNIREIÐ Morgunblaðið/Golli „MJÖG mörgum í skólanum finnst flott að ég hafi verið að leika í Hamrinum og nokkrir krakkar hafa beðið mig um eiginhand- aráritum. Það er bara mjög gaman að vera svona hálf-frægur,“ segir Magnús Aron Sigurðsson, ell- efu ára strákur í Seljahverfi, en hann leikur skyggna strákinn Jón í spennuþættinum Hamrinum í sjón- varpinu. Það var faðir Magnúsar, Sigurður Páll Sigurðsson, myndlistarmaður og kennari, sem „sagði honum“ að hann væri á leið í leikprufu. „Þegar ég kom í prufuna talaði ég við Garúnu sem er aðstoðarleikstjór- inn. Ég þurfti að þykjast vera sof- andi. Svo átti ég að ímynda mér að ég væri í skógi. Svo fór hún að tala hratt og þegar hún klappaði átti ég að vakna og anda geðveikt hratt. Svo átti ég að hlaupa niður og kalla: Mamma! Það var nú ekki meira en þetta í prufunni,“ segir Magnús, sem þegar er búinn að ákveða að fara í leiklistarnám þegar hann verður eldri. | 28 Gaman að vera hálf-frægur Magnús Aron Sigurðsson Eftir Guðna Einarsson gudni@mbl.is HUNDRAÐ Íslendingum verður boðið til Kanaríeyja til að létta af þeim vetrardrunganum. Í gærkvöldi lenti hér hópur hundrað „sendiherra“ frá Kanaríeyjum. Þeir eru þátttak- endur í kynningarherferð sem heitir „Enginn vetrardrungi“ (Operación No Winter Blues). Erindið er að kynna Íslendingum Kanaríeyjar og kosti þeirra. Yolanda Perdomo, fram- kvæmdastjóri ferðamálaráðs Kan- aríeyja, sagði að auglýst hefði verið eftir áhugasömu 18-35 ára gömlu fólki til að taka þátt í óvissuferð. Á fyrstu vikunni skráðu sig tíu þúsund manns. Úr hópi þeirra voru valdir 2.000 sem uppfylltu öll skilyrði. Þeir mættu í viðtal og voru 100 valdir til að fara í ævintýraferð og kynna sér Kanaríeyjar í eina viku. Það var ekki fyrr en þátttakendurnir mættu á flugvöllinn í gær að þeir fengu að vita hvert förinni var heitið. Perdomo sagði að Kanaríeyjar hefðu löngum verið kallaðar „heppnu eyjarnar“ vegna hins góða loftslags sem þar ríkir, ekki síst á vetrum. „Við viljum deila heppni okkar með ykk- ur,“ sagði Perdomo. Hún sagði að ekkert slægi betur á vetrardrungann sem þjáir marga á norðurslóðum en að fara í sólina á Kanaríeyjum. En hvers vegna völdu þau Ísland? „Ef horft er á landakort sést að langt norðan við Kanaríeyjar er eld- fjallaeyjan Ísland. Við eigum svo margt sameiginlegt, annað en lofts- lagið. Við lengst í suðri og þið lengst í norðri,“ sagði Perdomo. Boð til Kanaríeyja  100 Íslendingum verður boðið frítt til Kanaríeyja  100 manna hópur frá Kanaríeyjum kom í gær til að kynna landið Sendinefnd Hópurinn vissi ekki fyrr en á flugvellinum hvert leiðin lá. Í HNOTSKURN »100 íbúar Kanaríeyjaverða hér í viku til að kynna Kanaríeyjar. »100 Íslendingum verðurboðið frítt til Kanaríeyja að kynna sér vatnaíþróttir, heilsudekur, náttúruskoðun og fjölskylduferðir. Áhuga- samir komi í Austurstræti 7 á fimmtudag og föstudag, kl. 11- 21, og skrái sig. »Annað kvöld verður „NoWinter Blues“-fögnuður í Listasafni Reykjavíkur og boðið upp á veitingar og tón- list frá Kanaríeyjum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.