Saga - 2000, Page 329
RITFREGNIR
327
Þór Whitehead: BRETARNIR KOMA. Vaka-Helgafell.
Reykjavík 1999. 334 bls. Myndir og skrár.
Bretarnir koma er fjórða bindi verks Þórs Whiteheads, ísland í síðari heims-
styrjöld, þær þrjár, sem á undan komu nefnast Ófriður í aðsigi, Strið fyrir
ströndum og Milli vonar og ótta og gefa titlamir hugmynd um innihaldið.
Til þess að geta notið lesturs Bretarnir koma til fulls er nauðsynlegt að vera
kunnugur efni fyrri bókanna þriggja, enda er um samfellt verk að ræða og
forsagan lítið rifjuð upp. Að loknum lestri þessarar bókar ber hæst ótrú-
lega vandaða og yfirgripsmikila heimildaöflun og vandaða heimilda-
notkun. Heimildirnar taka hvergi völdin af höfundi, eins og oft vill
brenna við þegar úr gnægð er að moða. Einnig vekur aðdáun hvemig Þór
tekst að samræma óaðfinnanleg sagnfræðileg vinnubrögð og læsilega,
dramatíska og á köflum spennandi frásögn, en slíkt er oft erfitt, einkum
þegar lesanda em úrslitin kunn.
Eftir að aðdragandinn hefur verið rakirm í fyrri bókum er nú komið að
lykilatburðinum á íslandi í síðari heimsstyrjöldinni, hemáminu sjálfu.
Bókin hefst aðfaranótt 10. maí 1940 og spannar nokkrar fyrstu vikur
hemáms Breta. Um er að ræða samfellda frásögn af atburðum þessara
vikna í landinu og umhverfis það, en í lokin er gerð grein fyrir svokölluð-
um „svörtum listum" yfir meinta óvini bandamanna, sem vikið verður
að síðar.
Auk þess að segja sögu eins merkasta viðburðar íslandssögunnar á
heildstæðan hátt, varpar Þór ljósi á marga þætti, sem hafa verið óljósir
með þvf að tengja saman ótrúlega fjölbreyttar heimildir.
Lýsingin á þessum fyrstu hemámsvikum er einstaklega lifandi, einkum
fyrstu dægmnum þegar lesanda finnst sem sögumaður hafi verið við-
staddur og fjalli um atburðina sem sjónarvottur. Hann hafi beðið tíðinda
heima hjá breska ræðismanninum aðfaramótt hemámsins, tekið þátt í
handtöku Gerlachs ræðismanns Þjóðverja, hlustað á sfmtöl og samtöl fs-
lenskra ráðamanna, farið um bæinn með blaðamönnum, verið um borð í
herskipum Breta og gengið með sendiherra þeirra á fund íslenskra stjóm-
valda.
Óvissan og óttínn um örlög íslands, sem ríkt hafði frá innrás Þjóðverja
í Danmörku og Noreg 9. apríl 1940, eru áþreifanleg. Þótt flestum létti
þegar loksins varð Ijóst að það yrðu Bretar, en ekki Þjóðverjar, sem urðu
fyrri tíl, var óvissunni ekki eytt. Þór tekst vel að koma tíl skila slælegu
ástandi breska hemámsliðsins. Bæði liðinu sjálfu og sumum íslend-
ingum, þótt óherfróðir væm, varð von bráðar ljóst hve vanmáttugt það
væri legðu Þjóðverjar tíl atlögu. Ekki hefur áður verið gerð glögg grein
fyrir því hve lélegur búnaður hemámsliðsins var og hve fálmkenndar
vom tílraunimar tíl þess að koma upp vömum jafnt í Reykjavík sem útí á