Saga - 2000, Blaðsíða 371
RITFREGNIR
369
Eric Hobsbawm: ÖLD ÖFGANNA. SAGA HEIMSINS
1914-1991. Árni Óskarsson þýddi. Mál og menning.
Reykjavík 1999. 648 bls. Myndir.
Tuttugasta öldin, hvað er það? Við höfum að undanförnu orðið vitni að
rökræðum, jafnvel deilum, um það hvort henni hafi lokið í árslok 1999 eða
hvort hún standi til loka ársins 2000. Fyrir sagnfræðinga skipta slfk ártöl
þó í raun litlu máli nema sýnt verði fram á að þau marki söguleg tímamót,
upphafið að nýju tímabili sögunnar og þá um leið endalok annars. Það
mun þó aldrei hafa gerst á aldamótum, nema ef vera kynni er árin 1 mætt-
ust við upphaf tímatals kristinna manna.
Eric Hobsbawm er einn þeirra sagnfræðinga, sem skoðar söguna í stærri
- eða smærri - heimssögulegum tímabilum en lætur sér aldaskipti tíma-
talsfræðinga í léttu rúmi liggja. Hann ritaði á sínum tíma stórmerkt
þriggja binda verk um hina „löngu nítjándu öld", tímabilið frá upphafi
frönsku stjómarbyltingarinnar 1789 til upphafs fyrri heimsstyrjaldar árið
1914. Nú hefur hann ritað bók um hina „stuttu tuttugustu öld", tímabilið
frá 1914 til 1991.
Rök Hobsbawms fyrir þessari skiptingu em einföld. Með frönsku
stjómarbyltingunni hófst óumdeilanlega nýtt tímabil í sögunni (a.m.k. í
sögu Evrópu) og þvf lauk ekki fyrr en 1914: þróunin, sem hófst 1789 var
samfelld til 1914. Þá hófst nýtt sögulegt þróunarskeið, sem leiddi til októ-
berbyltingarinnar í Rússlandi, valdatöku nasista í Þýskalandi, síðari
heimsstyrjaldarinnar og kalda stríðsins og mótaði alla stjómmála-, efna-
hags- og menningarhugsun meginþorra mannkyns í tæpa átta áratugi.
Þessu söguskeiði, sem Hobsbawm kallar „megintímabil tuttugustu ald-
ar", lauk að hans mati með hmni Sovétríkjanna árið 1991. Þá hófst nýtt
tímabil, sem vafalaust mun ná fram á næsta árþúsund og óhjákvæmilega
marka sögu a.m.k. fyrstu aldar þess að vemlegu leyti. Sagan er þróun og
meginhlutverk sagnfræðinga er að skilja hana og skýra, miðla þekkingu á
þeim skilningi, ekki síður en staðreyndum.
Og það er einmitt þessi þróunarskilningur, ef svo má að orði kveða,
sem mótar umfjöllun Hobsbawms um sögu hinnar „stuttu tuttugustu ald-
ar" í þessari bók. Hann skiptir henni í þrjú megintímabil, „hörmunga-
skeiðið" frá 1914 til 1945, „gullöldina" frá 1945 og fram um miðjan 8. ára-
tuginn og loks „skriðuna". Þessi tímaskeið skarast óhjákvæmilega í ýms-
um efnum en Hobsbawm tekst að tengja sögu þeirra með þeim hætti að
við bókarlok hefur lesandinn fengið glögga mynd af sögulegri þróun
tímabilsins og ákveðinn skilning á henni.
Eric Hobsbawm hefur lifað mestan hluta þess tímabils, sem hann fjall-
ar um í bókinni, og sjálfur viðurkennir hann fúslega að það hafi áhrif á
24-SAGA