Skinfaxi - 01.08.2011, Qupperneq 3
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 3
„Andinn mikli setti mig hér niður ... til
að sjá vel um jörðina og til að við gerum
hvert öðru ekkert illt.“
Þannig mælti ungur frumbyggi í Ameríku
fyrir árhundruðum. Þessi orð unga frum-
byggjans mættu margir taka sér til fyrir-
myndar í þeim heimi sem við lifum nú í. Það
er vert að staldra aðeins við þessi orð því að
þau eiga fullt erindi til okkar í dag og ef til
vill eiga þau enn frekar við í dag en þá.
Dagur íslenskrar náttúru var 16. septem-
ber sl. og var hans minnst með margvíslegum
hætti. Ungmennafélag Íslands er einn af þeim
aðilum sem lögðu hönd á plóg í tilefni dags-
ins. Farið var í átak með útvarpsstöðinni Bylgj-
unni þar sem heyra mátti allan daginn áróð-
ur sem hafði það að markmiði að vekja
umhverfisvitund þjóðarinnar frá því smáa til
hins stóra undir slagorðinu „Hreint land,
fagurt land“. Þetta framtak hreyfingarinnar
kemur til vegna þess að umhverfismál eru
og hafa verið hreyfingunni hugleikin. Allt frá
uppgræðslu lands, heftun foks, skógrækt,
hreinsun stranda, árbakka og nærumhverfis
hefur ungmennafélagshreyfingin tekið til
hendinni.
En betur má ef duga skal. Við sem þjóð
þurfum að taka saman höndum og breyta
hugarfari okkar því að við erum á góðri leið
með að verða umhverfissóðar. Það er ömur-
legt að segja þetta og enn verra að þurfa að
viðurkenna það. Við þurfum ekki annað en
að líta í kringum okkur. Hvarvetna getur að
líta rusl sem á heima í ruslafötum en ekki á
gangstéttum, göngustígum, á skólalóðum,
íbúðarlóðum, meðfram þjóðvegum, á girð-
ingum, í gjótum í hrauninu, í kvikmynda-
sölum, útihátíðum, íþróttamótum svo að
eitthvað sé upptalið. Við þurfum hugarfars-
breytingu. Við skulum sameinast um að
hugsa og framkvæma í þeim anda að „eitt
rusl á dag kemur skapinu í lag“. Einsetjum
okkur að þegar við göngum fram á óþarfa
rusl, hvort heldur er innan eða utan dyra, þá
tökum það upp og setjum í næsta rusladall.
Því að við megum ekki, þegar við hugsum
um hvernig við getum komið einhverju stór-
kostlegu til leiðar, líta fram hjá því smáa sem
við getum gert dag hvern og sem í áranna
rás verður að einhverju stórkostlegu sem við
sjáum oft alls ekki fyrir. Munum að hver lang-
ferð hefst á litlu skrefi. Markmiðið á alltaf að
vera hreint land, fagurt land.
Allt sem þarf til er jákvætt viðhorf
„Andinn setti mig líka niður til að við ger-
um hvert öðru ekkert illt.“ Það er enginn full-
kominn en hverjum og einum er hollt að
hugsa um aðra en bara sjálfan sig.
Umræðan í íslenskum fjölmiðlum undan-
farin misseri hefur verið full af neikvæðum
fréttum af mönnum og málefnum og svo
sannarlega er ekki alltaf tekið mið af því
gamalkunna að aðgát skal höfð í nærveru
sálar. Þessi skaðlega umfjöllun hefur áhrif út
um allt þjóðfélagið sem aftur veldur því að
vanlíðan fólks eykst. Við þurfum hugarfars-
breytingu hvað þetta varðar, alveg eins og
varðandi umhverfisvitundina. Hleypa meiri
birtu og yl inn í lífið og tilveruna og spyrja
okkur: „Hvað get ég gert til að bæta mann-
lífið,“ en ekki: „Hvað geta allir hinir gert fyrir
mig.“ Enn og aftur er það samheldnin sem
skiptir máli, ekki sundrungin.
„Gerðu allt það góða sem þú getur, með
öllum þeim ráðum sem þú hefur tök á, alls
staðar þar sem þú getur komið því við og
gagnvart öllu því fólki er þú getur nærð til,
eins lengi og þú framast getur.“
(John Wesley, 1703–1791.)
Með óskum um að komandi vetur verði
okkur öllum góður.
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ:
Björn B. Jónsson gerður
að heiðursfélaga UMFÍ
Björn B. Jónsson var gerður heiðursfélagi
Ungmennafélags Íslands á nýliðnu 47.
sambandsþingi hreyfingarinnar. Heiðurs-
félaganafnbót UMFÍ er æðsta viðurkenn-
ing sem hreyfingin veitir.
Björn, sem er búfræðingur, garðyrkju-
fræðingur og skógarverkfræðingur að
mennt, hefur alla tíð verið áhugasamur
um ungmennafélagsmál en hann gekk í
Ungmennafélag Biskupstungna 14 ára
gamall. Hann varð síðar formaður félags-
ins og og einnig formaður Héraðssam-
bandsins Skarphéðins um tíma. Árið 1995
var Björn kjörinn í stjórn UMFÍ og tók að
sér starf varaformanns. Því starfi gegndi
hann í sex ár eða þar til hann var kjörinn
formaður hreyfingarinnar 2001 og gegndi
starfinu til ársins 2007.
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir,
formaður UMFÍ,
ásamt Birni B. Jóns-
syni, nýkjörnum
heiðursfélaga,
á 47. sambands-
þingi UMFÍ.
Frjálsíþróttaskóli UMFÍ var haldinn í fjórða
sinn í sumar en skólinn er ætlaður ung-
mennum á aldrinum 11–18 ára. Ungmenn-
in koma saman á hádegi á mánudegi og
skólanum lýkur síðan á hádegi á föstudegi
í sömu viku. Eins og endranær var lögð
áhersla á kennslu í frjálsum íþróttum en auk
þess var farið í sund, óvissuferðir og leiki
ýmiss konar og kvöldvökur voru haldnar.
Frjálsíþróttaskóli UMFÍ:
Hlökkum til næsta sumars
Í sumar fór skólinn fram á Egilsstöðum,
Selfossi, Borgarnesi og á Sauðárkróki.
„Aðsóknin að skólanum í sumar var góð
og áhuginn mikill hjá þátttakendum. Við
erum mjög ánægð með hvernig þetta verk-
efnið gengur og við hlökkum til næsta
sumars þegar skólinn verður starfrætur í
fimmta sinn,“ sagði Sigurður Guðmunds-
son, landsfulltrúi hjá UMFÍ.