Skinfaxi - 01.08.2011, Blaðsíða 4
4 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Sex einstaklingar voru kosnir í stjórn.
Nýir í aðalstjórn eru Stefán Skafti Steinólfs-
son, Ungmennafélaginu Skipaskaga, Hauk-
ur Valtýsson, Ungmennafélagi Akureyrar,
Jón Pálsson, Ungmennasambandi Kjalar-
nesþings, og Bolli Gunnarsson, Héraðs-
sambandinu Skarphéðni. Björg Jakobs-
dóttir og Eyrún Harpa Hlynsdóttir voru
endurkjörnar. Í varastjórn komu inn ný þau
47. Sambandsþing
Ungmennafélags Íslands
var haldið í Menningar-
húsinu Hofi á Akureyri
dagana 15.–16. októ-
ber sl. Samtals áttu
135 fulltrúar rétt til setu á þinginu, frá 18
héraðssamböndum og 10 félögum með
beina aðild.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður
UMFÍ, setti þingið. Ólafur Ragnar Gríms-
son, forseti Íslands, flutti ávarp við þing-
setninguna. Einnig fluttu ávörp Ólafur
Rafnsson, forseti Íþrótta- og Ólympíusam-
bands Íslands, Eiríkur Björgvinsson, bæjar-
stjóri á Akureyri, og Mogens Kirkeby,
forseti ISCA. Þingið var starfsamt og mál-
efnalegt og sjaldan hafa jafnmargar til-
lögur verið á samþykktar ásambandsþingi.
Helga Guðrún Guðjóns-
dóttir endurkjörin for-
maður UMFÍ
„Á þessari stundu er mér efst í huga þakk-
læti, gleði, tilhlökkun, eftirvænting og
vinna. Ég er mjög ánægð með þá góðu
umræðu sem fram fór á þessu þingi. Fólk
hefur skipst á skoðunum en náð lendingu
og við förum sátt af þinginu. Ég er þakk-
lát fyrir það að hreyfingin treystir mér fyrir
því að vera áfram í þessu starfi. Ég hef
ekki farið dult með það að mér finnst þessi
hreyfing frábær og skipta samfélag okkar
miklu máli. Hún er ein af grunnstoðunum
og það á að leggja rækt við hana og gera
henni hátt undir höfði. Til þess þarf hún
fjármagn og skilning stjórnvalda og ann-
arra sem við getum leitað til,“ sagði Helga
Guðrún Guðjónsdóttir í viðtali skömmu
eftir endurkjörið.
Hún sagðist hlakka til næstu tveggja
ára en margar tillögur, sem samþykktar
voru á þinginu, munu marka starfið næstu
tvö árin. Mikil vinna liggur í að fylgja þeim
öllum eftir þannig að vel takist til og skila
þeim árangri sem þingið hefur kallað eftir.
„Ég vona að okkur takist þetta allt saman
og lít björtum augum á framhaldið. Ég
sagði það í ávarpi mínu á þinginu að fram-
tíð hreyfingarinnar væri björt og framtíð-
arsýnin væri skýr. Við höfum mikinn með-
byr í samfélaginu, okkur er treyst og það
er leitað til okkar til að vera í forystu í ýms-
um málum. Framtíðin er að vinna áfram
með þessi göfugu markmið, Ræktun lýðs
og lands, og byggja á ungmennafélags-
andanum og gildum hans. Það er ekki
annað hægt en að vera bjartsýn,“ sagði
Helga Guðrún Guðjónsdóttir.
47. sambandsþing Ungmennafélags
Íslands var haldið á Akureyri
Baldur Daníelsson, Héraðssambandi Þing-
eyinga, Matthildur Ásmundardóttir, Ung-
mennasambandinu Úlfljóti, og Anna María
Elíasdóttir, Ungmennasambandi Vestur-
Húnvetninga. Einar Kristján Jónsson, Ung-
mennafélaginu Vesturhlíð, var endurkjör-
inn í varastjórn. Á öðrum stjórnarfundi
skipti stjórnin með sér verkum. Haukur er
varaformaður, Jón gjaldkeri og Eyrún ritari.
HSV fékk hvatningar-
verðlaun UMFÍ 2011
Á sambandsþinginu var tilkynnt hvaða
héraðssamband hefði hlotið hvatningar-
verðlaun UMFÍ 2011. Verðlaunin féllu í
skaut Héraðssambandi Vestfirðinga, HSV,
fyrir nýjungar í starfi og öflugt samstarf
við sveitarfélagið.
Stefán Bogi matmaður
þingsins
Áralöng hefð er fyrir því á sambandsþing-
um UMFÍ að velja matmann þingsins. Það
var austfirðingurinn Stefán Bogi Sveins-
son sem naut þess heiðurs að vera valinn
matmaður þingsins. Stefán Bogi var full-
trúi Ungmenna- og íþróttasambands
Austurlands á þinginu. Hann tók við viður-
kenningunni sem er forkunnarfagur og
glæsilegur útskorinn askur.
Jón Páll Hreinsson,
formaður HSV, tek-
ur við hvatningar-
verðlaunum UMFÍ
úr hendi Helgu
Guðrúnar Guðjóns-
dóttur, formanns
UMFÍ.
Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, for-
maður UMFÍ, setur
47. sambandsþing
UMFÍ.
Stefán Bogi Sveinsson, UÍA, var valinn mat-
maður þingsins.