Skinfaxi - 01.08.2011, Page 6
6 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Skinfaxi 3. tbl. 2011
Ritstjóri: Jón Kristján Sigurðsson.
Ábyrgðarmaður: Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ.
Ljósmyndir: Jón Kristján Sigurðsson,
Ómar Bragi Stefánsson, Sigurður Guð-
mundsson, Guðmundur Karl Sigurdórs-
son, Eva Björk Ægisdótir, Garðar Eðvalds-
son, Mgnús Hlynur Hreiðarsson, Gunnar
Gunnarsson, Páll Friðriksson, Guðjón
Bjarni Hálfdánarson, Harpa Hlynsdóttir
o.fl.
Umbrot og hönnun: Indígó.
Prentun: Ísafoldarprentsmiðja.
Prófarkalestur: Helgi Magnússon.
Auglýsingar: Miðlun ehf. og
Gunnar Bender.
Ritnefnd:
Gunnar Gunnarsson, Kristín Hálfdánar-
dóttir og Óskar Þór Halldórsson.
Skrifstofa UMFÍ/Skinfaxa:
Þjónustumiðstöð UMFÍ,
Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Sími: 568-2929
Netfang: umfi@umfi.is
Heimasíða: www.umfi.is
Starfsmenn UMFÍ:
Sæmundur Runólfsson, framkv.stjóri,
Helgi Gunnarsson, fjármálastjóri,
Jón Kristján Sigurðsson, ritstjóri Skinfaxa
og kynningarfulltrúi,
Sigurður Guðmundsson, landsfulltrúi,
Ómar Bragi Stefánsson, landsfulltrúi,
með aðsetur á Sauðárkróki,
Guðbirna Kristín Þórðardóttir, ritari.
Stjórn UMFÍ:
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður,
Haukur Valtýsson, varaformaður,
Jón Pálsson, gjaldkeri,
Eyrún Harpa Hlynsdóttir, ritari,
Björg Jakobsdóttir, meðstjórnandi,
Bolli Gunnarsson, meðstjórnandi,
Stefán Skafti Steinólfsson, meðstjórnandi,
Baldur Daníelsson, varastjórn,
Matthildur Ásmundardóttir, varastjórn,
Anna María Elíasdóttir, varastjórn,
Einar Kristján Jónsson, varastjórn.
Forsíðumyndir:
Birna Steingrímsdóttir hefur gengið á hátt
í 200 fjöll á þessu ári. Á myndinni er Birna
við Tröllakirkju á Kolbeinsstaðafjalli í sumar.
Neðri mynd til vinstri: Frá Unglingalands-
mótinu á Egilsstöðum í sumar.
Neðri mynd til hægri: Stjörnustúlkur fagna
fyrsta Íslandsmeistaratitli félagsins í
meistaraflokki kvenna í knattspyrnu.
Viðburðaríkt sumar er að baki hjá
Ungmennafélagi Íslands. Unglinga-
landsmótið á Egilsstöðum um versl-
unarmannahelgina heppnaðist
einstaklega vel, skipulagning og
stjórn á mótinu var til fyrirmyndar
og fjöldi keppenda og gesta lagði
leið sína á mótið og naut einskærrar
veðurblíðu. Skráningar voru um
1300 talsins, en talið er að á bilinu
10–12 þúsund gestir hafi verið á
mótinu. Það krefst tíma og góðrar
skipulagningar að halda mót á borð
við Unglingalandsmót en stærð og
umgjörð þeirra er mikil. Fram-
kvæmdaaðila mótsins, UÍA, fórst
þetta verkefni vel úr hendi, upp-
skeran var frábært mót og allir
skemmtu sér hið besta. Aðstaðan
öll á Egilsstöðum til íþróttaiðkana
er einstaklega góð og keppendur
nutu góðs af henni. Mótinu var slitið
með glæsilegri flugeldasýningu.
UÍA-félagar geta borið höfuðið hátt
en öll framkvæmdin var til sóma.
Unglingalandsmótin hafa skapað
sér mikilvægan sess í hugum lands-
manna og mun svo verða um ókom-
in ár. Við getum farið að hlakka til
næsta móts sem verður haldið á
Selfossi 2012.
Fyrsta Landsmót UMFÍ 50+ var
haldið á Hvammstanga í sumar og
eru menn sammála um að vel hafi
tekist til. Það tekur alltaf tíma fyrir
mót að festa rætur en fjöldi þátttak-
enda á mótinu gefur góð fyrirheit.
Þetta mót á sannarlega framtíðina
fyrir sér enda var tími til kominn að
þessi aldursflokkur fengi vettvang
til að spreyta sig og eiga stund
saman. Framkvæmd mótsins tókst
einstaklega vel og var heimamönn-
um til sóma. Ákveðið hefur verið að
2. Landsmót UMFÍ 50 + verði haldið
í Mosfellsbæ næsta sumar.
Önnur verkefni UMFÍ gengu vel í
sumar. Frjálsíþróttaskóli UMFÍ var
haldinn í fjórða sinn og gekk eins
og áður vel. Skólinn var haldinn á
fimm stöðum víðs vegar um landið
og þátttakan var með ágætum. Ljóst
er að þetta verkefni hefur sannað
gildi sitt. Verkefnið Hættu að hanga!
Komdu að hjóla, synda eða ganga
var haldið í annað sinn og var þátt-
takan mjög góð. Mikil vakning er
meðal almennings um hreyfingu og
náðu margir þátttakendur einstök-
um árangri. Dæmi er um einstakl-
ing sem gengið hefur á um 200 fjöll
á þessu ári.
Ungmennafélög náðu frábærum
árangri í knattspyrnunni í sumar.
Ungmennafélagið Stjarnan tryggði
sér Íslandsmeistaratitilinn í kvenna-
knattspyrnu í fyrsta sinn. Tindastóll/
Hvöt sigraði í 2. deild karla og tryggði
sér sæti í 1. deild. Höttur frá Egilsstöð-
um hafnaði í öðru sæti og fylgir
Tindastóli/Hvöt upp í 1. deild. Ung-
mennafélag Selfoss endurheimti
sæti sitt í úrvalsdeild karla, en liðið
lenti í öðru sæti á eftir Skagamönn-
um. Kvennalið Selfyssinga gerði
sömuleiðis góða hluti og tryggði
sér sæti í úrvalsdeild kvenna.
Viðburðaríkt sumar og góð
þátttaka í verkefnum UMFÍ
Jón Kristján Sigurðsson – ritstjóraspjall:
Þegar lokið var ritun 100 ára sögu UMFÍ
fóru menn að huga að því að koma sögu-
legum skjölum hreyfingarinnar til Þjóð-
skjalasafns Íslands en þangað eiga þau að
fara lögum samkvæmt. Jón M. Ívarsson,
söguritari UMFÍ, afhenti stóran hluta þeirra
á Þjóðskjalasafni í september og þangað
geta áhugamenn um söguna leitað að
upplýsingum sem tengjast UMFÍ eða ein-
stökum ungmennafélögum.
Meðal merkra skjala má nefna gjörða-
bækur UMFÍ í 100 ár, skjöl fjórðungssam-
banda, lög allmargra félaga, leikritasafn,
gögn um Landsmótin og síðast en ekki síst
allar þær ársskýrslur sem ungmennafélög
hafa sent UMFÍ í gegnum tíðina en þær
skipta þúsundum. Skrá um afhendinguna
er til hjá UMFÍ. Alls voru þetta 78 kassar
sem fóru en annað eins bíður betri tíma.
Skjöl UMFÍ sett á Þjóðskjalasafnið
Frá flutningnum í Þjóðskjalasafnið. Jón M. Ívarsson og Sófus
bílstjóri með nokkra kassa á leið á safnið.