Skinfaxi - 01.08.2011, Blaðsíða 9
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 9
VEL HEPPNAÐ 1. LANDSMÓT
UMFÍ 50+ Á HVAMMSTANGA
Fyrsta Landsmót
UMFÍ 50+ var sett
við Hvammsá á
Hvammstanga að
kvöldi 24. júní sl.
Guðbjartur
Hannesson,
velferðarráðherra,
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og land-
búnaðarráðherra, Skúli Þórðarson,
sveitarstjóri í Húnaþingi vestra, og Helga
Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ,
voru meðal þeirra sem fluttu stutt ávörp
við setninguna. Á þriðja hundrað kepp-
endur tóku þátt í mótinu sem stóð frá
föstudegi til sunnudags. Eftir setningu
mótsins fór fram keppni í búfjárdómum.
Var keppnin mjög skemmtileg og vakti
mikla kátínu á meðal áhorfenda. Svo fór
að heimamanneskjan Elín Ása Ólafsdótt-
ir hreppti fyrsta sætið, Helga Guðrún Guð-
jónsdóttir, formaður UMFÍ, varð í öðru sæti
og Guðbjartur Hannesson, velferðarráð-
herra, í þriðja sæti.
1. Landsmót UMFÍ 50+