Skinfaxi - 01.08.2011, Qupperneq 10
10 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
1. Landsmót UMFÍ 50+
Fjallaskokkið þreytt
á Landsmótinu
Fjallaskokkið 2011, sem fer fram árlega,
var einn af dagskrárliðum Landsmóts
UMFÍ 50+. Hlaupið var frá Grund í Vestur-
hópi yfir Vatnsnesfjallið og endað ofan í
Kirkjuhvammi á Hvammstanga. Vega-
lengdin er um 12 km. Gangan/skokkið/
hlaupið er keppni þar sem það gildir að
verða fyrstur yfir fjallið en að sjálfsögðu
getur hver og einn farið að eftir sínu höfði,
keppt við aðra, sjálfan sig eða farið leiðina
án þess að vera keppa yfirleitt. Aðalatriðið
er að vera með og hafa ánægju af þessu.
Í hlaupinu kom Reimar Marteinsson fyrstur
í mark á 1:15,40 klst. Annar var Trausti Valdi-
marsson á 1:16,15 klst. og Ari Hermann
Oddsson kom þriðji í mark á 1:23,17 klst.
Fyrst kvenna í mark kom Sigrún Barkar-
dóttir en alls tóku 30 manns þátt í hlaupinu. Frá vinstri: Trausti Valdimars-
son, Reimar Marteinsson og
Ari Hermann Oddsson.
Pönnukökubaksturinn
vekur alltaf athygli
Pönnukökubakstur og
kökuskreyting fór fram
í Grunnskólanum á
Hvammstanga en
þessar greinar hafa
ávallt vakið mikla
athygli á Landsmótum
í gegnum tíðina. Svo var einnig að þessu
sinni og fjöldi manns fylgdist af áhuga
með glæsilegum tilþrifum við baksturinn.
Að sögn Jónínu Sigurðardóttur, greina-
stjóra í starfsíþróttum, hafa dómarar til
hliðsjónar í einkunnagjöf frágang við upp-
skrift, fagmennsku, útlit og bragð, svo að
eitthvað sé nefnt. Keppendur í pönnuköku-
bakstrinum voru sjö, þar af einn karlmaður.
Jóna Halldóra
Tryggvadóttir
frá Hvamms-
tanga á kafi í
keppni í pönnu-
kökubakstri.
„Þetta mót er frábært til að örva þá sem
virkilega þurfa á hreyfingu að halda því að
viðhaldið verður mikilvægara með árun-
um,“ sagði Trausti Valdimarsson, lyflæknir
og meltingarsérfræðingur á Akranesi, sem
tók þátt í öllum hlaupa- og sundgreinum,
að undanskildu fjórsundi, á Landsmóti
UMFÍ 50+ á Hvammstanga. Trausti tók enn-
fremur þátt í fjallaskokkinu og lauk síðan
keppni með þríþrautinni á lokadegi
mótsins.
Þegar Trausti var spurður hvort hann
væri ofvirkur svaraði hann því til að
eiginkonan héldi það. „Hún er samt sátt
því að hún segir að ég fái þarna mína
Trausti Valdimarsson, læknir af Akranesi, tók þátt í Landsmóti UMFÍ 50+:
Þeir sem halda í æskublómann þurfa
síður á læknum að halda
útrás. Ég reyni að hreyfa mig eitthvað á
hverjum degi, synda, hjóla og hlaupa, en
það er gott að hafa fjölbreytnina sem
mesta. Þetta er allt skemmtilegt og hollt
og þess vegna er maður í þessu. Fyrir utan
það heldur maður betur í heilsuna og
kynnist fólki eins og á mótinu hér á
Hvammstanga,“ sagði Trausti.
Trausti sagði ennfremur að þeir sem
hreyfa sig og halda í æskublómann þurfi
síður á læknunum að halda.
Trausti Valdimarsson
hreyfir sig eitthvað á
hverjum degi með því
að hlaupa, synda eða
hjóla.
Hilmar Hjartarson USVH og
Markús Ívarsson HSK tóku þátt
Fjallaskokkinu á Landsmótinu.