Skinfaxi - 01.08.2011, Síða 11
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 11
Um þrjú hundruð keppendur þreyttu
keppni í fjórtán keppnisgreinum á fyrsta
Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið var á
Hvammstanga dagana 24.–26. júní sl.
Framkvæmdaaðilar mótsins voru mjög
ánægðir með hvernig til tókst og líta
björtum augum til framtíðar hvað þetta
mót áhrærir.
„Ég er í heildina mjög ánægð með mótið
og þá alveg sérstaklega með hvað kepp-
endur voru sáttir. Það kom mér ekki á óvart
því að þetta er þakklátt fólk. Við renndum
„Mér fannst þetta fyrsta mót takast ljóm-
andi vel og við vorum öll mjög ánægð
þegar upp var staðið. Þeir sem heimsóttu
okkur þessa helgi virtust kátir og við vor-
um að sama skapi ánægð með gestina.
Vissulega var þetta í fyrsta skipti sem mót
af þessu tagi er haldið og kannski hefði
maður vonast eftir að fá heldur fleiri gesti
en þetta var samt fín byrjun. Þeir sem
komu voru ánægðir og það skiptir miklu
máli,“ sagði Guðmundur Haukur Sigurðs-
son, formaður USVH, í samtali við Skinfaxa
en sambandið var framkvæmdaaðili að
fyrsta Landsmóti UMFÍ 50+ sem haldið
var á Hvammstanga sl. sumar.
Aðspurður um hvort eitthvað hefði
komið sérstaklega á óvart í mótshaldinu
sagði Guðmundur Haukur öðruvísi hóp
keppenda sækja þetta mót en Unglinga-
landsmót. Fólk gistir síður á tjaldsvæðum
og vill heldur gistingu í rúmum. Það mynd-
ast því öðruvísi stemning og fólk kemur
ekki endilega til að dvelja alla helgina held-
ur sigtar út greinar sem það er að keppa í.
„Það sem stendur upp úr er að við erum
ánægð og sambandið er reynsluríkara
eftir. Við komum fjárhagslega þokkalega
vel frá þessu þannig að við erum sátt. Ég
hef ekki heyrt annað en að allir séu
ánægðir, sveitarfélagið og ferðaþjónustu-
aðilar. Svæðið fékk mikla kynningu sem
við munum njóta góðs af í framtíðinni.
Þegar upp er staðið er þetta mót öllum
þeim sem komu að því til framdráttar.
Mörgum finnst það líka spennandi og
áhugavert að taka þetta mót að sér en
mun fleiri sóttu um að halda næsta mót
en það síðasta. Þetta mót er tvímælalaust
komið til að vera. Það á bara eftir að þróast
og menn að læra af reynslunni,“ sagði
Guðmundur Haukur.
Hann sagði að tími hefði verið kominn
til að halda mót fyrir þennan aldurshóp
en mjög mikil vakning er hvað varðar alls
konar hreyfingu hjá almenningi í landinu.
„Þessi mót eiga svo sannarlega framtíðina
fyrir sér. Keppnisskapið er fyrir hendi hjá
þessum aldurshópi en það skiptir heldur
ekki minna máli að taka þátt og vera með.
Heimafólk er ánægt með hvernig til tókst
og við tökum aftur að okkur svona mót
eftir nokkur ár,“ sagði Guðmundur Haukur
Sigurðsson í spjallinu við Skinfaxa.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ:
Var löngu orðið tímabært að halda
mót fyrir þennan aldursflokk
svolítið blint í sjóinn með þetta mót en
ákvörðunin um að hrinda því af stað reynd-
ist rétt þegar upp var staðið. Upplifun
keppenda var skemmtileg og þetta er mót
sem verður að halda áfram,“ sagði Helga
Guðrún Guðjónsdóttir, formaður Ung-
mennafélags Íslands, í mótslok.
Helga Guðrún sagði að það hefði komið
sér á óvart hve mikill keppnisandi hefði
ríkt á mótinu og gleði yfir fá að keppa á
þessum vettvangi. Andrúmsloftið var
afslappað en samt voru keppendur með
ákveðin markmið. Framkvæmdaaðilar og
íbúar lögðu sitt af mörkum við að gera
þetta mót einstaklega skemmtilegt og vel
heppnað.
„Að okkar mati var löngu orðið tíma-
bært að halda mót fyrir þennan aldurs-
hóp. Þetta er mót sem komið er til að vera
og vonandi stækka þau með tíð og tíma.
Ég veit að það er fullt af fólki þarna úti sem
er að æfa ýmsar íþróttir en fyrirvarinn fyrir
þetta mót var nokkuð stuttur. Við auglýs-
um næsta mót með góðum fyrirvara og
þá getur fólk notað veturinn og vorið til
undirbúnings. Ég er mjög ánægð og stolt
yfir hvernig til tókst með fyrsta mótið,“
sagði Helga Guðrún Guðjónsdóttir.
Guðmundur Haukur Sigurðsson, formaður USVH:
Mótið öllum þeim sem að því komu
til framdráttar
Húnaþing vestra
Guðmundur Haukar Sigurðsson,
formaður USVH.
Frá setningu
Landsmóts 50+ á
Hvammstanga.