Skinfaxi - 01.08.2011, Page 12
12 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Forsvarsmenn Unglingalandsmótsins á
Egilsstöðum voru mjög ánægðir með hve
allt gekk vel á mótinu. Allt gekk samkvæmt
óskum, mótið sjálft og veðrið lék við kepp-
endur og gesti. Glæsilegu og vel heppn-
uðu Unglingalandsmóti lauk með tilkomu-
mikilli flugeldasýningu á Vilhjálmsvelli.
„Ég er mjög ánægður með hvað allt
tókst vel. Margar hendur komu að þessu
móti og allir eiga miklar þakkir skilið. Við
áttum alltaf von á því að við fengjum gott
veður og það gekk eftir,“ sagði Björn
Ármann Ólafsson, formaður unglinga-
landsmótsnefndar.
Björn Ármann sagðist vera mjög ánægð-
ur með þátttökuna en skráningar fóru upp
í 1240. Sagði hann að á svæðinu hefðu
gestir verið nærri 10.000. Fólkið naut þess
að vera saman í góðu veðri á Egilsstöðum.
„Það kom mér í sjálfu sér ekkert á óvart.
Allt var vel skipulagt og gott fólk sem kom
að undirbúningnum. Mótið gekk vel fyrir
sig og hér sveif ungmennafélagsandinn
yfir vötnum. Þetta var bara skemmtilegt
og gaman,“ sagði Björn Ármann Ólafsson,
formaður unglingalandsmótsnefndar á
Egilsstöðum.
UNGMENNAFÉLAGSANDINN
SVEIF YFIR VÖTNUM
14. Unglingalandsmót UMFÍ