Skinfaxi - 01.08.2011, Blaðsíða 14
14 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
14. Unglingalandsmóti UMFÍ var slitið með
pompi og prakt á Vilhjálmsvelli á Egilsstöð-
um sunnudagskvöldið 31. júlí sl. að við-
stöddu miklu fjölmenni. Talið er að um
fimm þúsund áhorfendur hafi verið við
mótslokin en umgjörðin um þau var
einstaklega góð. Það er mál manna að
mótið hafi tekist mjög vel og hafi verið
mótshöldurum til mikils sóma og ekki
skemmdi veðrið fyrir sem lék við kepp-
Allir lögðust á eitt til að Unglingalandsmót-
ið á Egilsstöðum gengi vel. Starfsfólk Lands-
bankans á Egilsstöðum vann í sjálfboða-
vinnu í upplýsingamiðstöðinni í grunn-
skólanum. Þar var geysilega mikið að gera
en þangað mættu allir þeir sem skráðu sig
til þátttöku í mótinu og fengu afhent
keppnisgögn þar.
„Við fréttum af því í fyrra að Landsbank-
inn í Borgarnesi hefði rétt hjálparhönd við
að taka á móti gestum á Unglingalands-
mótinu. Það gekk svona ljómandi vel fyrir
sig þannig að við snerum okkur beint til
Um 200 krakkar, 10 ára og yngri, tóku þátt
í Litlu-Vilhjálmsleikunum sem haldnir voru
á Unglingalandsmótinu á Egilsstöðum.
Krakkarnir tóku þátt í ýmsum þrautum sem
lagðar voru fyrir þau og skemmtu sér vel.
Það voru synir Vilhjálms Einarssonar sem
sáu um keppnina en þarna fékk yngsta
kynslóðin tækifæri til að láta ljós sitt skína.
Í Tjarnargarðinum var jafnframt dagskrá
fyrir þau yngstu. Þar var leiktækjum komið
fyrir og allt iðaði af lífi frá morgni til kvölds.
Helga Guðrún Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ:
Stolt fyrir hönd okkar allra með mótið
endur og mótsgesti nánast alla mótsdag-
ana. Keppendur á mótinu voru um 1300
talsins. Með gestum er talið að um tíu þús-
und manns hafi sótt Unglingalandsmótið
að þessu sinni. Árangur á mótinu var góður
í mörgum greinum en sjö unglingalands-
mótsmet voru sett í frjálsum íþróttum.
Næsta Unglingalandsmót verður haldið á
Selfossi 2012 í umsjón Héraðssambands-
ins Skarphéðins.
„Þegar upp er staðið erum við rosalega
sátt og þetta var stórkostlegt mót í heild
sinni. Hvar sem maður hefur komið er mikil
gleði og hamingja vegna þess hvernig til
tókst. Mér er efst í huga þessi mikla sjálf-
boðavinna sem lögð var að mörkum við
þetta mót en það er ótrúlegt að sex
hundruð manns séu tilbúnir að leggja á
sig ómælda vinnu. Það ríkir sérstakur andi
á mótinu en allir geta verið með, óháð
því hvort þeir séu afreksmenn í íþróttum.
Mótið er þannig uppsett að allir eiga að
finna eitthvað við sitt hæfi. Við getum því
farið mjög sátt frá mótinu en reynt var í
hvívetna að mæta öllum aldursflokkum,“
sagði Helga Guðrún Guðjónsdóttir, for-
maður UMFÍ, í mótslok.
Helga Guðrún sagði að þessi mót væru
búin að festa sig rækilega í sessi. Þátttakan
á þessu móti undirstrikar það en umræða
síðustu vikurnar fyrir mótið um dýrt elds-
neytisverð var talið að myndi koma niður
á aðsókn. Það varð ekki reyndin sem sýnir
að fjölskyldan lítur ekki á mótið sem val-
kost heldur er það það sett í forgang að
fara á mótið með börnum sínum.
„Við erum búin að ná þeim markmiðum
sem við settum okkur, að bjóða fjölskyld-
unni upp á viðburð um verslunarmanna-
helgina þar sem hún getur átt samveru-
stund án þess að nota vímuefni. Ég er farin
að hlakka til næsta móts og ég er stolt
fyrir hönd okkar allra vegna mótsins
hér á Egilsstöðum,“ sagði Helga Guðrún
Guðjónsdóttir, formaður UMFÍ.
Um 200 krakkar tóku þátt
í Litlu-Vilhjálmsleikunum
Starfsmenn Landsbankans lögðu lið
útibússtjórans á Egilsstöðum og óskuðum
eftir því að Landsbankinn kæmi og hjálpaði
okkur við að taka móti gestum. Því var
tekið fagnandi og við spurð hvað við þyrft-
um marga. Það varð úr að hingað komu
fjórir starfsmenn bankans og voru með
okkur fram eftir kvöldi skráningardaginn.
Það er frábært að fá svona hjálp og sýnir
svo að ekki verður um villst að fólk hér á
Egilsstöðum er reiðubúið til að leggja góðu
máli lið þegar þess er óskað,“ sagði Elín
Rán Björnsdóttir, formaður Ungmenna-
og íþróttasambands Austurlands.
Krakkarnir skemmtu
sér hið besta á Litlu-
Vilhjálmsleikunum
sem haldnir voru á
Vilhjálmsvelli í tengsl-
um við Unglinga-
landsmótið sá Egils-
stöðum.
Starfsfólk Landsbankans við
störf í upplýsingamiðstöðinni.