Skinfaxi - 01.08.2011, Qupperneq 18
18 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Stefnir í tólf þúsund
skráningar á þessu ári
„Það var gaman að sjá hve margir tóku þátt
í almenningsíþróttaverkefninu í sumar og
nýttu sér skráningarkerfið á ganga.is til að
halda utan um hreyfingu sína í Hættu að
hanga! Komdu að hjóla, synda eða ganga. Í
fyrra skráðu sig um 12 þúsund einstaklin-
gar í gestabækur í verkefninu Fjölskyldan á
fjallið og ég held að það stefni
í svipaðan fjölda í ár. Það kemur endanlega
í ljós síðar í haust hver fjöldinn er þegar við
tökum gestabækurnar saman,“ sagði Sig-
urður Guðmundsson, landsfulltrúi UMFÍ,
í samtali við Skinfaxa um verkefnin sem
standa almenningi til boða.
Sigurður sagði ennfremur greinilegt að
Göngum um Ísland
Í byrjun sumars kom út bókin Göngum um
Ísland. Bókin er alls 128 blaðsíður og þar
er að finna útlistun á 300 stuttum göngu-
leiðum víðs vegar um landið og lýsingu á
þeim 24 fjöllum sem sambandsaðilar UMFÍ
tilnefndu í verkefninu Fjölskyldan á fjallið.
Í bókinni er einnig að finna ýmsan fróðleik,
t.d. um hvað þurfi að hafa í huga þegar
lagt er af stað í gönguferð. Bókinni var
dreift á allar N1-stöðvar sem og á sund-
staði, upplýsingamiðstöðvar og víðar.
ganga.is
Vefsíðan www.ganga.is hefur frá upphafi
fallið vel í kramið meðal landsmanna en
síðan er aldrei vinsælli en yfir sumartím-
ann. Vefsíðan hefur að geyma fjöldann
allan af gönguleiðum um allt land sem og
fréttir og ýmsa fróðleiksmola sem tengjast
hreyfingu. Á vefsíðunni er þátttakendum
gert kleift að halda utan um og fylgjast
grannt með þeirri hreyfingu sem þeir hafa
stundað og margir nýta sér þennan valkost
allan ársins hring.
Fjölskyldan á fjallið
Fjölskyldan á fjallið hefur slegið í gegn hjá
UMFÍ. Gríðarlegur fjöldi fólks hefur tekið
þátt í verkefninu frá vori og fram á haust.
Tuttugu sambandsaðilar hafa tilnefnt fjöll
í verkefnið og skipulagt göngur á þau.
Árlega skrá um 12.000 manns nöfn sín í
gestabækur sem komið hefur verið fyrir
á tindum þessara tilgreindu fjalla. Flest
fjallanna eru auðveld uppgöngu og því
kjörin fyrir fjölskylduna að ganga á. Mark-
miðið með verkefninu er að fá fjölskyldur
í léttar fjallgönguferðir og stuðla þannig
að aukinni samveru, útivist og um leið
líkamsrækt innan fjölskyldunnar.
Góð þátttaka í
almenningsíþrótta-
verkefnum
sumarsins
fjallgöngur séu mjög vinsælar og margir
gangi á fjöll nú um stundir. Dæmi eru um
einstakling sem hafi skráð að hann hafi
gengið á yfir 100 fjöll. Margir hafi líka
gengið á 30–40 sem væri líka frábær
árangur.
Sigurður sagði æ fleiri nýta sér efni sem
væri að finna á ganga.is en þar er greint frá
fjölmörgum gönguleiðum um allt land.
Einnig má finna þar fróðleik um ýmislegt
sem þarf að hafa í huga áður en lagt er af
stað í gönguferð.
Verkefnið Komdu að hjóla, synda eða
ganga var haldið í annað sinn í sumar og
sagði Sigurður að það yrði með óbreyttu
sniði á næsta ári. Verkefnið stóð formlega
yfir til 15. september en áfram er hægt að
skrá hreyfingu inn á ganga.is.
Ungmennasamband Borg-
arfjarðar, UMSB, stóð fyrir
fjórum göngum í sumar.
Fyrsta gangan var farin á
Strút en í framhaldi af henni
voru skipulagðar þrjár kvöld-
göngur sem tileinkaðar voru
skógum á svæðinu. Þann 14. júlí var gengið
um Fannahlíð undir leiðsögn Björns Þór-
oddssonar. Þann 21. júlí var gengið um
Skorradal undir leiðsögn Friðriks Aspe-
lund og Birgis Haukssonar og þann 28. júlí
var gengið um skógarreitinn á Lundi í
Lundarreykjadal auk skógarreits við gamla
félagsheimili Ungmennafélagsins Dag-
renningar undir leiðsögn Jóns Gíslasonar.
Fjórar göngur á vegum UMSB í sumar