Skinfaxi - 01.08.2011, Blaðsíða 19
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 19
Keflavík íþrótta- og ungmennafélag bauð
félagsmönnum sínum og öllum áhuga-
sömum í gönguferð á Keili 4. júlí í sumar.
Tilefni ferðarinnar var að fara með póst-
kassa með gestabók upp á tind fjallsins og
fékk göngufólk tækifæri til að skrifa nöfn
sín í gestabókina. Þess má geta að 20 gesta-
bókum var komið fyrir á fjöllum víðs vegar
um landið í tengslum við verkefnið Fjöl-
skyldan á fjallið sem UMFÍ stendur fyrir.
Gönguferðin á Keili var farin undir leiðsögn
Rannveigar Garðarsdóttur. Góð þátttaka
var í göngunni en ekið var í samfloti að
Höskuldarvöllum og þaðan var gengið
á fjallið sem er um 378 metra hátt. Tók
ferðin um þrjár klukkustundir.
Fjöllin Gíslholtsfjall í Holtum
og Bjarnarfell í Ölfusi eru
meðal þeirra fjalla sem valin
voru í verkefnið Fjölskyldan
á fjallið í ár hjá HSK en hér-
aðssambandið hefur tilnefnt
ný fjöll á hverju ári í þetta
verkefni allt frá upphafi verkefnisins árið
2002. Sunnlendingar voru hvattir til að
ganga á fjöllin og taka þátt í verkefninu
með því að skrifa nafn sitt og símanúmer í
gestabækur sem staðsettar höfðu verið
uppi á fjöllunum. Í HSK-göngu á Bjarnar-
fell í sumar fór Guðni Guðmundsson á
Þverlæk með eftirfarandi vísu:
Á fjöllin rölti svona eitt og eitt
upp á Bjarnarfellið skunda.
Að fjallgöngum oft hef hugann leitt
og hvet sem flesta til að stunda.
HSV stóð fyrir fjallagönguleiknum
Fjallapassinn í sumar. Markmið Fjalla-
passans var að hvetja einstaklinga
og fjölskyldur til að nýta sér þær leiðir
til heilsueflingar sem felast í náttúrunni í
kringum okkur. Með þátttöku í skemmti-
legum leik gat hver og einn fundið fjall við
sitt hæfi til að klífa og eflt um leið líkam-
legt og andlegt þrek sitt svo ekki sé talað
um þá mikilvægu samverustund sem fjöl-
skyldur og vinir gátu átt með þátttökunni.
Í stuttu máli gekk leikurinn út á það að
Frá göngu Kefla-
víkur á Keili. Einar
Haraldsson, for-
maður Keflavíkur,
heldur á fána
félagsins.
Gönguferð á Keili
Skarphéðinsmenn tilnefndu Gíslholtsfjall og Bjarnarfell
Best er að ganga á Gíslholtsfjall skammt
frá bæjarhlaðinu í Gíslholti en bærinn stend-
ur við fjallið. Best er að leggja bílnum innan
Þátttakendur í
HSK-göngu á
Bjarnarfell.
túngirðingar, vegna hættu á lakkskemmd-
um (hross) og ganga þaðan á fjallið.
Til að komast að Gíslholtsfjalli er farið
upp Landveg nr. 26 frá Landvegamótum
og svo inn á Hagaveg nr. 286, rétt áður en
komið er að Laugalandi. Svo er beygt inn
á Heiðarveg nr. 284 við Gíslholtsvatn.
Einnig er hægt að fara inn á Heiðarveg nr.
284 af þjóðvegi 1, rétt austan við Þjórsár-
brú.
Til að komast að Bjarnarfelli er ekið eftir
þjóðvegi 1 milli Hveragerðis og Selfoss og
beygt upp Hvammsveg nr. 374. Stoppað
við garðyrkjubýlið Nátthaga eða farið að
sumarhúsabyggð sem er merkt Gljúfur-
bústaðir. Þar er bílum lagt og gengið upp
með Æðargili upp á Bjarnarfell. Byrjunar-
hæð er í um 80 m yfir sjó og lengd göng-
unnar er um 6 km.
Fjallgönguleikur hjá HSV
klífa ákveðin fjöll og stimpla í passa með
stimplum sem var að finna á fjöllunum.
Því næst var passanum skilað inn og voru
nöfn heppinna göngugarpa dregin út að
leik loknum. Þær gönguleiðir sem voru í
Fjallapassanum í ár voru Naustahvilft,
náman í Syðridal, Miðfell, Kaldbakur, Þjófa-
skar og Sauratindar. Áttu þátttakendur að
fara að minnsta kosti 4 af þessum 6 göngu-
leiðum áður en þeir skiluðu passanum sín-
um inn. Rúmlega 70 einstaklingar skiluðu
inn pössum og má gera ráð fyrir því, miðað
við útprentaða fjallapassa, að mun fleiri
hafi gengið en tókst að ljúka við allar fjórar
göngurnar. Ef bara er tekið mið af þeim
sem skiluðu inn pössum eru það vel á
fjórða hundrað fjallgöngur sem farnar
voru fyrir tilstuðlan leiksins.
F
M
BS