Skinfaxi - 01.08.2011, Side 22
22 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Birna Steingrímsdóttir
göngugarpur:
Hefur gengið á
hátt í 200 fjöll
á þessu ári
„Ég setti mér það markmið 5. júní að ég skyldi
ganga á eitt fjall á dag í þessa 103 daga sem
verkefnið stæði formlega yfir. Ég var reyndar
eina viku í Slóvakíu í sumar og þar gekk ég á
fjöll en ég tel þau ekki með. Ég gekk stund-
um á 3–4 fjöll á dag vítt og breitt. Ég labba
mikið með Útivist og þá sérstaklega alla
sunnudaga. Svo geng ég á fjöll í nágrenni
Reykjavíkur og á Suðvesturlandi,“ sagði Birna
Steingrímsdóttir, 57 ára gömul, í samtali við
Skinfaxa. Birna sagði að þessi hreyfing gerði
sér mjög gott og henni finnist lífsnauðsyn-
legt að fara út og ganga eitthvað á hverjum
degi.
„Ég fer líka í láglendisgöngur eins og t.d. í
Elliðaárdalnum eða í kringum Vífilstaði,“ sagði
Birna sem tók einnig þátt í verkefninu í fyrra
og sigraði þá reyndar, þegar hún gekk á 66
fjöll.
Aðspurð hvort hún hefði verið mikið í
íþróttum áður sagði Birna að hún hefði á
yngri árum verið mikið í handbolta á Húsa-
vík. Hún hefði alla tíð hreyft sig mikið og þá
aðallega með því að ganga en á fullorðins-
árum hefði hún ekki stundað neinar keppnis-
íþróttir.
„Maður sér það bara á göngunum að fólki,
sem hreyfir sig, fer fjölgandi. Á göngum mín-
um hjá Útivist eru alltaf fleiri að bætast við.
Mér finnst þetta lofsvert framtak hjá UMFÍ
og mjög hvetjandi. Fólk í kringum mig hefur
verið að taka þátt í verkefninu og vinnufélag-
ar mínir voru sérstaklega duglegir í fyrra en
voru eitthvað færri núna í sumar. Það er enginn
eins geðveikur og ég,“ sagði Birna og hlær.
Birna sagði að hún væri eins og gefur að
skilja í mjög góðu formi og hleypur upp
Esjuna eins og ekkert sé. Hún segist fara
Esjuna á 42 mínútum og það finnst henni
bara gott.
„Hreyfingin er ekki síður holl andlega en
eftir stressaðan og erfiðan dag er ofsalega
gott að fara út. Ég nýt mín einnig þó að ég
sé ein á ferð, það er gott að vera einn með
sjálfum sér,“ segir Birna. Hún sagði að fjöllin,
sem hún hefði gengið á til þessa á árinu, væru
að nálgast 200.
„Það er ofsalega gefandi og hollt að hreyfa
sig svona og ég stefni að því að halda áfram
á þessari braut,“ sagði Birna Steingrímsdóttir.
LEIGJUM ÚT OG ÞJÓNUSTUM VATNSSALERNI
á íþróttamót og hverskyns mannam ót
Borgarflöt 15 :: 550 Sauðárkrókur
Sími: 891 9181 :: Fax: 453 5778
Netfang: okgam@simnet.is
NÝ
PR
EN
T
Birna í góðu veðri í einni af gönguferðum sínum.
Á myndinni sjást Smjörhnúkar og Tröllakirkja.