Skinfaxi - 01.08.2011, Qupperneq 23
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 23
Guðbjartur Guðbjartsson hefur
gengið á 100 fjöll á þessu ári:
Nýt þess að
hreyfa mig og
kynnast góðu
fólki
Guðbjartur Guðbjartsson tók þátt í almenn-
ingsíþróttaverkefninu hjá UMFÍ í fyrsta sinn í
sumar. Guðbjartur hafði gengið áður á eigin
spýtur en var að hugsa um að ganga með
Ferðafélagi Íslands og taka þá fyrir eitt fjall á
viku. Hann gaf sér samt ekki tíma til að gera
þetta því að hann tók þátt í öðru verkefni sem
fólst í því að ganga þvert yfir landið með
Útivist, frá Reykjanestá á Langanes.
„Ég hugsaði með mér að ég skyldi gera
þetta sjálfur, á eigin forsendum, fór að labba
og tók yfir 50 fjöll í fyrra. Mér tókst hins vegar
að tvöfalda þann árangur á þessu ári, fjöllin
eru orðin alls um 100 talsins. Ég geng reynd-
ar á hverjum degi, að lágmarki hálftíma í
hvert sinn. Það eru svona um þrjú ár síðan að
ég fór byrjaði að labba að einhverju ráði. Um
leið og ég sá verkefnið Hættu að hanga!
Komdu að hjóla, synda eða ganga ákvað ég
að skrá mig inn það fyrst ég var að skrá allt
hvort eð var. Ég skrái sjálfur í Excel hverja ein-
ustu hreyfingu, allt sem ég syndi, labba eða
hjóla,“ sagði Guðbjartur Guðbjartsson í
samtali við Skinfaxa.
– Hvað kom til þess að þú fórst að
hreyfa þig svona mikið?
„Ég hafði bara gaman af hreyfingu og fjalla-
ferðum og maður er aldeilis búinn að kynn-
ast landinu á þessu labbi,“ sagði Guðbjartur.
Aðspurður hvort hann hefði verið mikið í
íþróttum á yngri árum svaraði Guðbjartur að
hann hafði aldrei stundað neinar íþróttir. „Ég
var aldrei í íþróttum. Ég byrjaði að hreyfa mig
af einhverri alvöru í enduðum apríl 2008, um
svipað leyti og ég missti konuna mína. Þetta
blundaði í mér en við vorum að dunda í öðru,
hjónin, fórum mikið í útilegur en ekki mikið í
göngur. Ég fór aftur á móti sjálfur í smala-
Sagnagarður Landgræðslunnar
Saga landgræðslu í máli og myndum.
Fróðleg og lifandi fræðsla um gróðursögu,
landeyðingu og endurheimt landgæða á Íslandi.
Upplýsingar um opnunartíma í síma 488-3000 og á land.is
Landgræðsla ríkisins
mennsku á haustin sem stóðu yfir í svona
viku og það var eina hreyfingin,“ sagði
Guðbjartur.
Guðbjarti finnst verkefnið frábært framtak
hjá UMFÍ. Hann sagði þetta ýta sér áfram og
vafalaust mörgum öðrum.
„Ég sé fyrir mér að taka þátt í þessu áfram
og bara hreyfa mig almennt. Á þessu ári er
ég búinn að ganga á 100 fjöll og þar að auki
er ég búinn að ganga á 8–9 fjöll tvisvar
þannig að ég er alltaf að ganga á nýtt fjall.
Næsta fjallið, sem ég ætla að ganga á, verður
Hekla, með Útivist. Ég hef einu sinni gengið
á Esjuna á þessu ári þannig að hún er ekki
að trufla mig. Í hvert sinn sem ég legg í hann
reyni ég að ganga á nýtt fjall. Hreyfingin hjá
mér felst aðallega í göngu en samt hjóla ég
aðeins og fer í vikuhjólaferð með Útivist alla
vega einu sinni á ári. Ég er í góðu formi, mað-
ur fer nú aðeins á slaka á þegar haustar en
ég var mjög duglegur í sumar. Ég nýt þess
að hreyfa, maður kynnist mörgu góðu fólki
og þetta er bara gaman í alla staði,“ sagði
Guðbjartur Guðbjartsson.
Að ofan: Guðbjart-
ur veður yfir á í
einni af gönguferð-
um sínu.
Til vinstri: Guð-
bjartur á Hvanna-
dalshnjúki.
Velkomin
á Selfoss
Verslunarmannahelgina
3.–5. ágúst 2012