Skinfaxi - 01.08.2011, Blaðsíða 25
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 25
Lið Tindastóls/Hvatar sigraði í 2. deild karla
í knattspyrnu og vann sér þar með réttinn
til að leika í 1. deild á næsta tímabili. Hött-
ur frá Egilsstöðum, sem lenti í öðru sæti,
fer einnig upp í 1. deild. Í lokaumferðinni
sigraði Tindastóll lið Völsungs, 4:2, og varð
í efsta sæti með 42 stig, en Höttur hlaut 41
stig. Árangur Tindastóls/Hvatar er frábær,
liðið fór illa af stað en hrökk heldur betur í
gang og stóð að lokum uppi sem sigur-
vegari í deildinni.
Tindastóll leikur í 1. deild næsta sumar:
Ævintýrið heldur bara áfram
Halldór Jón Sigurðsson, sem stýrði liðinu
upp í 1. deild, skrifaði á dögunum undir nýj-
an samning. Sú breyting verður að liðið
mun keppa undir merkjum Tindastóls en
samstarfinu við Hvöt hefur verið slitið.
„Ég var svo sem ekki með neinar vænting-
ar þegar ég tók við liðinu en fljótlega, þeg-
ar leið á tímabilið, sá ég að það var raun-
hæfur möguleiki. Við stefndum að því að
vinna alla leiki og uppskeran var góð.
Næsta tímabil verður töluvert erfiðara en
það síðasta en ævintýrið heldur bara áfram.
Það bíður okkar erfitt verkefni og við verð-
um að vera fljótir að aðlagast nýrri og sterk-
ari deild. Við munum nota undirbúnings-
tímabilið vel til að leika gegn liðum sem
eru sterkari en við, aðlagast þar með meiri
hraða og verða betri,“ sagði Halldór Jón
Sigurðsson eftir undirskrift á nýjum samn-
ingi á blaðamannafundi sem haldinn var í
tónlistarhúsinu Hörpu í Reykjavík. Halldór
Jón sagðist hafa fulla trú á liði sínu og að
það mundi standa sig vel í 1. deildinni.
Þegar Halldór Jón var spurður hvort þeir
myndu styrkja liðið fyrir átökin í 1. deild
svaraði hann því til að staðan yrði skoðuð.
„Við missum tvo reynslubolta og eðli-
lega þyrftum við að fá reynslubolta í stað-
inn. En við byrjum á því að gefa þessum
strákum séns og sjáum hvernig þeir standa
sig,“ sagði Halldór Jón.
Halldór Jón sagðist hafa mikinn áhuga
á þjálfun og hafa töluverðan metnað á því
sviði. Eins og hann kemst sjálfur að orði,
hann hefur mikinn áhuga og mikla ástríðu
og ætlar sér að þjálfa áfram. Hann segist
vera glaður og spenntur yfir að fá þetta
tækifæri með liðið í 1. deild.
„Við spilum undir merkjum Tindastóls
næsta sumar og erum stoltir af. Það er
gríðarlega mikil stemning á Króknum, hún
var góð á liðnu sumri og ég hef trú á því
að hún verði enn meiri á sumri komanda.
Bærinn styður vel við bakið á okkur,“ sagði
Halldór Jón í spjallinu við Skinfaxa.
Leikmenn Tinda-
stóls/Hvatar fagna
sigrinum í 2. deild
og sæti í 1. deild á
næsta tímabili.
Selfyssingar tryggðu sér sæti í efstu deild
karla á nýjan leik eftir öruggan 1:3 sigur á
ÍR í næstsíðustu umferð 1. deildar. Þetta er
mikið afrek hjá Selfyssingum en eftir fallið
úr efsta deild í fyrra missti liðið tíu leik-
menn í kjölfarið. Einhugur var hjá stjórn,
leikmönnum og þeim er starfa í kringum
liðið um að gefa í og koma liðinu í efstu
deild á nýjan leik. Það markmið náðist og
vel það því liðið endaði með 47 stig, 11
stigum á undan Haukum sem voru í 3.
sæti. Það voru Skagamenn sem báru sigur
úr býtum í 1. deildinni með 51 stig.
Karla- og kvennalið Selfoss tryggðu sér sæti í efstu deild
Kvennalið Selfyssinga var enginn eftir-
bátur karlanna en stelpurnar tryggðu sér
sæti í efstu deild kvenna í fyrsta sinn í sögu
félagsins eftir frækilegan 6:1 sigur á Kefl-
víkingum á heimavelli sínum á Selfossi.
Eftir að hafa tapað fyrri leik liðanna um
laust sæti í efstu deild 2:3 áttu flestir von
á hörkuleik á Selfossvelli. Selfoss-stúlkur
voru ekki á því að gefa eftir og unnu glæst-
an sigur og sæti í deild á meðal þeirra
bestu. FH-stúlkur fylgja Selfyssingum upp
í efstu deild, en þær urðu jafnframt Íslands-
meistarar í 1. deild.
Það eru spennandi tímar fram undan
hjá Selfyssingum í knattspyrnunni. Gott
uppbyggingarstarf er að skila þessum
frábæra árangri og getur bæjarfélagið
verið stolt að því að eiga karla- og kvenna-
lið í efstu deild. Markviss uppbygging
íþróttamannvirkja hefur líka skilað sínu.
Á Selfossi er nú nýr gervigrasvöllur sem
tekinn var í notkun fyrir um fimm árum
og nýr aðalvöllur sem er að verða einn
besti grasvöllur landsins. Áhorfendastúka
með sætum fyrir 750 manns var tekin í
notkun 2010.
Mynd til vinstri:
Selfoss-strákar toll-
era Loga ólafsson
þjálfara sinn.
Til hægri: Selfoss-
stelpur fagna sæti í
Pepsi deildinni.
KNATTSPYRNA: