Skinfaxi - 01.08.2011, Page 26
26 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Þann 31. júlí 2011 lagði af stað 14 manna
hópur sem í voru 12 stelpur og einn strák-
ur á aldrinum 16–18 ára frá öllum lands-
hlutum upp í ævintýraferð á vegum Ung-
mennasamtaka Norðurlandanna. Ferð-
inni var heitið til Svíþjóðar, þaðan var hald-
ið til Álandseyja þar sem eyjarnar voru
þræddar hver af annarri og hópurinn
endaði ferðina í Helsinki áður en haldið
var heim á leið.
Hópurinn hittist allur í fyrsta skipti á
Umferðarmiðstöðinni BSÍ. Sumir úr hópnum
þekktust fyrir en aðrir höfðu aldrei hist. Farar-
stjóri ferðarinnar, Guðjón Bjarni Hálfdánar-
son, sá strax við fyrstu kynni að hópurinn
ætti eftir að ná vel saman enda allir þátttak-
endur virkir þátttakendur í héraðssambönd-
um sínum. Það er nú einu sinni þannig að
ungmennafélagar ná fljótt og auðveldlega
saman og það er forskrift fyrir því að allt sem
Ein skemmti-
legasta vika
sem Íslend-
ingar hafa
upplifað
Ungmennavika NSU:
á eftir komi verði gaman. Auk Guðjóns Bjarna
tóku þátt í ferðinni Jóhannes Páll Lárusson,
Rakel Brá Siggeirsdóttir, Eygló Hrund Guð-
mundsdóttir, Þórunn Nanna Ragnarsdóttir,
Kolbrún Lára Kjartansdóttir, Gunnhildur
Björnsdóttir, Erna Sigrún Valgeirsdóttir, Aldís
Eir Sveinsdóttir, Rannvá Björg Þorleifsdóttir,
Kolfinna Rún Gunnarsdóttir, Sigrún Jónsdótt-
ir, Margrét Lúðvígsdóttir og Sveinborg Katla
Daníelsdóttir.
Þegar komið var á Leifsstöð voru strax
myndaðir litlir hópar innan hópsins. Fóru
þeir eins og stormsveipur um fríhöfnina og
keyptu allt sem hönd á festi. Það átti ekki
einungis að nýta ferðina til að kynnast nýju
fólki heldur einnig til að versla.
Flugferðin til Svíþjóðar gekk mjög vel en
þegar flugvélin lenti byrjaði óvissan fyrir
alvöru. Á flugvellinum hittum við fararstjóra
norska hópsins sem fylgdi okkur á farfugla-
heimilið sem við gistum á, Stockholms Hostel.
Íslenski hópurinn var fyrstur á farfuglaheimil-
ið, þremur klukkutímum áður en skipulögð
dagskrá átti að hefjast. Íslensku þátttakend-
urnir voru fljótir að átta sig á því hvað ætti að
gera við þann tíma, verslanir í Stokkhólmi
voru þræddar fram á síðustu mínútu frítímans.
Upp úr 18:00 þann 31. júlí voru síðustu
þátttakendurnir að mæta á farfuglaheimilið.
Þeir komu sér þægilega fyrir og hittu fyrir
herbergisfélaga sína. Sofið var í 4–6 manna
herbergjum og þátttakendum frá mismun-
andi löndum blandað saman. Um kvöldið
var haldið af stað í almenningsgarð í Stokk-
hólmi þar sem Ungmennavikan var form-
lega sett ásamt því að farið var í leiki til þess
að brjóta ísinn á milli þátttakendanna.
Íslensku þátttakendurnir héldu sig nokkuð
til hlés í leikjunum í þetta skiptið en það átti
heldur betur eftir að breytast þegar lengra
leið á.
Mánudaginn 1. ágúst voru þátttakendur
vaktir kl. 05:30 og þeim smalað út í rútu sem
keyrði þá í ferjuna Isabella er sigldi með hóp-
inn til Mariehamn, lítils bæjar á Álandseyjum.
Um borð í ferjunni var öllum þátttakendum
skipt niður í ákveðin lið sem kepptu í ýmsum
leikjum í gegnum alla ferðina. Fyrsti leikurinn
var um borð í ferjunni en þar þurftu þátttak-
endurnir að leysa ýmsar þrautir og safna stig-
um, þrautir á borð við t.d. naglalakka ferju-
Íslensku þátttak-
endurnir þrettán
á ungmennaviku
NSU 2010.
18 ára ábyrgð á börnum
okkar eru ekki innantóm orð,
nærgætni, virðing og handleiðsla
foreldra skiptir máli