Skinfaxi - 01.08.2011, Síða 27
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 27
gesti, fá börn til að syngja og safna hlutum
tengdum ferjunni.
Þegar til Mariehamn var komið tók annar
leikur við. Þátttakendur áttu að halda af stað
í hópunum í gönguferð um bæinn, finna
helstu kennileiti bæjarins og taka myndir af
öllum hópnum þar. Það eina sem hóparnir
fengu voru myndir af kennileitunum og áttu
þeir að finna leiðina að þeim sjálf. Sumir hóp-
ar keyptu kort á meðan aðrir notuðu íbúa
bæjarins til að leiðbeina sér á rétta staði.
Upp úr þessu komu hinar skemmtilegustu
myndir og þekking á bænum Mariehamn.
Hópnum var síðan smalað upp í rútu og hald-
ið af stað til Godby þar sem dvalið var í þrjá
daga.
Í Godby fór fram Ungmennavikan fram að
mestu leyti. Þar var þátttakendum skipt upp
í nýja hópa og unnið var að hugmyndum um
hvernig hægt væri að nýta ungmennafélög-
in til að hjálpa innflytjendum að aðlagast
menningu þess lands sem þau voru komin
til ásamt því að reyna að kynna þátttakend-
ur fyrir þeim möguleikum sem ungmenna-
starf á Norðurlöndunum hefur upp á að
bjóða, t.d. Nordjobb. Hóparnir fengu eitt
verkefni og áttu að búa til leikrit í kringum
verkefni sitt sem átti síðan að sýna síðasta
dag ungmennavikunnar í götuleikhúsi NSU
í Åbo. Einnig voru gerð veggspjöld um hvert
og eitt verkefni sem átti að hengja upp í bóka-
safninu í Godby, til fræðslu fyrir aðra um það
starf sem ungmennafélögin á Norðurlönd-
unum geta boðið upp á. Þrátt fyrir mikla vinnu
þátttakenda hvað þetta varðaði var gleðinni
ekki gleymt. Boðið var upp á fjölbreytileg
námskeið fyrir þátttakendur, t.d. leiklistar-
námskeið, ljósmyndanámskeið, dansnám-
skeið, námskeið í línudansi og hipphopp.
Allir fundu eitthvað við sitt hæfi og höfðu
gaman af.
Þar sem veðrið lék við okkur í Godby var
ákveðið að fara með alla þátttakendur, sem
vildu, niður á strönd. Íslensku þátttakend-
urnir létu sig ekki vanta í þá ferð. Sumir lágu
í sólbaði á ströndinni á meðan aðrir syntu og
léku sér í sjónum. Þegar upp á farfugla-
heimili var aftur komið tók við kvölddagskrá-
in sem fól í sér alls konar leiki ásamt einu
skemmtilegasta partýi sem þátttakendurnir
höfðu upplifað. Hljómflutningsgræjum var
komið fyrir úti á bílastæði kl 23:00. Létu þátt-
takendurnir sig ekki vanta á þetta risadans-
gólf og dönsuðu fram eftir nóttu. Það þarf
ekki að taka fram að íslensku þátttakend-
urnir voru þeir síðustu til að koma sér í hátt-
inn. Partýið var það skemmtilegt að krakkar
úr nágrenninu létu sig ekki vanta á dans-
gólfið. Godby var því kvatt á skemmtilegan
hátt og eiga allir þátttakendur góðar minn-
ingar frá þessum litla sæta bæ á Álandseyjum.
Á fimmtudagsmorguninn, 4. ágúst, var
haldið af stað í 30 km hjólreiðatúr um Álands-
eyjarnar, frá Godby til Vardö. Á leiðinni var
stoppað á stöðum sem höfðu haft mikil áhrif
í sögu Álandseyja, t.d. við Kastelholm-kastal-
ann. Í Vardö var gist í bjálkakofum í skóginum
ásamt því að þátttakendur voru kynntir fyrir
finnskri gufubaðsmenningu. Gufubaðið var
á flekum úti á stöðuvatni og var hitanum
hleypt vel upp þar til enginn gat verið þar inni
lengur. Síðan hlupu allir út og stungu sér í ís-
kalt vatnið. Þetta var síðan endurtekið í um
klukkustund, þátttakendum til mikillar ánægju.
Föstudagurinn, 5 ágúst, var ferðadagurinn
mikli. Þennan dag ferðuðust þátttakendur frá
Vardö til Hummelvik og frá Hummelvik var
tekin ferja til Torsholma og frá Torsholma var
síðan keyrt í rútu til Åbo. Eftir þetta mikla
ferðalag voru þátttakendur frekar þreyttir og
var föstudagskvöldið því frekar rólegt þar sem
þátttakendur þurftu á allri orku sinni að halda
til að takast á við laugardaginn.
Hópurinn notaði
tækifæri og skellti
sér í verslunar-
leiðangur.
Frá ungmennaviku
NSU sem haldin
var á Álandseyjum
dagana 31. júlí til 7.
ágúst 2010.
Laugardagsmorguninn voru þátttakendur
vaktir og byrjuðu allir að undirbúa sig fyrir
leiksýninguna miklu sem átti að halda í götu-
leikhúsinu. Veðurguðirnir léku ekki við okkur
þennan daginn og var því ákveðið að færa
götuleikhúsið inn í eina verslunarkringl-
una. Þar léku þátttakendur við hvern sinn
fingur og skemmtu gestum og gangandi.
Umsjónarmenn leikhússins voru ekki frá því
að þarna hefðu framtíðarleikarar stigið sín
fyrstu skref í áttina að glæstum leiklistarferli.
Eftir sýninguna var þátttakendum gefinn
frjáls tími frá 12:00 til 18:00. Íslendingarnir
voru fljótir að sækja kortin sín og byrja að
renna þeim í gegnum posana í hinum ýmsu
verslunum. Þegar farangur allra þátttakenda
var skoðaður í lokin var farangur íslensku
þátttakendanna þyngri en allra hinna þátt-
takendanna samanlagt, þrátt fyrir að hafa
mætt með minnst út. Ungmennavikunni var
síðan slitið með glæsilegri máltíð á veitinga-
stað í Åbo og eftirpartýi í menningarmiðstöð
ungmennasamtakanna í Åbo.
Þegar horft er til baka, á allt það sem gert
var í þessari ferð, er það sem stendur upp úr
hvað íslensku þátttakendurnir voru ótrúlega
tilbúnir í að taka þátt í ævintýri sem þessu. Í
upphafi var mikil feimni í gangi og ekki mikið
verið að blanda geði við hina þátttakend-
urna. Þegar leið á ferðina óx þeim ásmegin
og þeir urðu hrókar alls fagnaðar síðasta dag
ferðarinnar. Einn íslenskur þátttakandi orðaði
mjög vel það sem þau gengu í gegnum í
þessari viku en það var: „I was a bit shy but
when I got to know people more it almost all
came and then everything got much funnier.“
Ungmennavikur sem þessar snúast einmitt
um að kasta sér út í djúpu laugina, kynnast
fólki og njóta þess að eiga skemmtilega viku
með því. Allir íslensku þátttakendurnir átt-
uðu sig á þessu, sem betur fór, nógu fljótt til
þess að ná að njóta og upplifa félagsskap og
snefil af menningu annarra Norðurlanda-
þjóða. Allir voru sammála um að þessi helgi
hefði verið ein sú skemmtilegasta sem þau
höfðu upplifað og allir þátttakendurnir ætl-
uðu að sækja um að komast með í þessa
ferð á næsta ári.
Takk fyrir okkur,
Guðjón Bjarni Hálfdánarson,
fararstjóri.