Skinfaxi - 01.08.2011, Síða 28
28 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Harpa Hlynsdóttir
var einn af íslensku
þátttakendunum á
leiðtogaskóla NSU á
Laugum í Sælingsdal.
Leiðtogaskóli NSU var haldinn 8–13.
september sl. á vegum UMFÍ, á Laug-
um í Sælingsdal. Skólinn er árlegur
viðburður og flakkar hann á milli
Norðurlandanna á hverju ári en
ávallt er töluð skandinavíska.
Fimmtudagskvöldið þann 8. septem-
ber hittist allur hópurinn í höfuðstöðvum
UMFÍ, borðaði pizzu og skrafaði saman á
skandinavísku áður en haldið var af stað.
Íslensk náttúra
Á leiðinni til Lauga tók ég sérstaklega eftir
því að allir þátttakendurnir voru að taka
myndir af náttúrunni, allan tímann sem
við vorum á leiðinni. Mér fannst það skond-
ið en ætli það sé ekki bara af því að ég er
svo vön náttúrunni á Íslandi.
Við komum seint og fengum ör-
litla kynningu á svæðinu og því sem við
mættum búast við á næstu dögum. Svo
byrjaði þetta hálfníu á föstudagsmorgun.
Út fyrir kassann!
Næstu dagar voru einstaklega skemmti-
legir, með mörgum mismunandi, fræð-
andi en jafnframt skemmtilegum fyrirlestr-
um. Þeir innihéldu oft frumlega leiki eða
þrautir sem reyndu oftar en ekki á skap-
andi hliðina og aldrei máttum við gleyma
að hafa ávallt opinn huga. Alltaf að hugsa
út fyrir kassann! var sú setning sem við
heyrðum ábyggilega oftast á þessu nám-
skeiði.
Kartöflur og grillspjót
Eitt af verkefnum, sem okkur féllu í hend-
ur, var til dæmis að búa til turn. Hann átti
að vera hærri en 160 cm, geta staðið þegar
blásið var á hann og við máttum einungis
að nota þríhyrninga í hönnuninni. Hrá-
efnið sem við fengum til þess að búa til
þennan turn: Kartöflur og grillspjót. Við
fengum ákveðinn tímaramma og þegar
honum var lokið áttum við svo að búa til
fullkomna eftirlíkingu úr tannstönglum
og kennaratyggjói.
Leiðtogahlutverkið
Þetta reyndi auðvitað á heilasellurnar sem
og samskipti okkar í hverjum hópi. Við urð-
um að reyna að finna út bestu lausnina á
þessu og vinna saman. Við höfðum jú tak-
markaðan tíma. Þá var líka áhugavert að
fylgjast með því hver féll í „Leiðtogahlut-
verkið” og hverjir urðu fylgjendur. Þetta
heitir nú einu sinni Leiðtogaskólinn og
snýst aðallega um það að hjálpa fólki að
verða góðir leiðtogar og leiðbeinendur.
Við lærðum mikið um það hvað er það er
að vera góður leiðtogi, hvaða eiginleika
hann þarf að tileinka sér sem og hegðun
og viðmót.
Djöflaprik og geglboltar
Fyrsta eftirmiðdaginn eyddum við tíman-
um inni í íþróttasal þar sem við fórum í
marga skemmtilega og hópeflandi leiki
sem hafa alltaf þessi frábæru áhrif á sam-
stöðu og tengsl fólks sem saman er komið.
Eftir leikina fengum við að prófa hinar og
þessar sirkuskúnstir. Þar á meðal voru djöfla-
prik, geglboltar og margt annað framandi.
Þar var líka að finna ákveðna diska sem
manneskjan leggur á prik og reynir að
snúa disknum þannig hann snúist ofan á
prikinu. Stórfurðulegt allt saman! Nei, nei,
þetta var mjög krefjandi og einstaklega
gaman þegar hinar og þessar sirkustilraun-
ir gengu upp.
Ströndin dökka
Á sunnudeginum var svo haldið af stað
í dagsferð um Snæfellsnesið þar sem
margt og mikið var skoðað. Farið var út að
sjó og gengið um dökka ströndina, hellar
skoðaðir, farið í fleiri leiki og útlending-
arnir fengu að upplifa íslenska náttúru
upp á sitt besta. Um kvöldið var snætt í
Stykkishólmi.
Í okkar fínasta pússi á
galakvöldi
Seinasta kvöldið okkar saman á Laugum
var haldið „Galakvöld“. Þar mættum við öll
í okkar fínasta pússi og við tók hin mesta
skemmtun og dýrindis matur. Setið var
við tvö borð og um kvöldið var keppni á
milli borða. Hún snerist um það að vinna
ákveðinn kertastjaka á sitt borð. Ef annað
borðið var með kertastjakann gat hitt
liðið framkvæmt eitthvað sem gerði það
að verkum að þau unnu kertastjakann á
sitt borð. Og það var sungið, og dansað
og leikið fram eftir kvöldi!
Þannig mun ég líka muna eftir þessum
dögum sem fjörugu og einstaklega lær-
dómsríku námskeiði. Svo má ekki gleyma
öllum vinunum sem ég eignaðist!
Harpa Hlynsdóttir
Fjörugt og einstaklega
lærdómsríkt námskeið
Leiðtogaskóli NSU á Laugum:
Glatt á hjalla á leið-
togaskóla NSU á
Laugum í Sælings-
dal.