Skinfaxi - 01.08.2011, Side 31
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 31
Mennta- og menningarmálaráðuneytið
boðaði þann 27. september síðastliðinn til
kynningarfundar þar sem helstu niður-
stöður rannsóknarinnar „Ungt fólk 2011 í
5., 6., og 7. bekk grunnskóla“ voru kynntar
hvað varðar líðan, menntun, menningu,
tómstundir, íþróttaiðkun og framtíðarsýn
íslenskra barna.
Rannsóknin, sem unnin var fyrir mennta-
og menningarmálaráðuneytið, var lögð
fyrir nemendur í öllum grunnskólum lands-
ins í febrúar 2011. Það var starfsfólk Rann-
sóknar og greiningar, þau Hrefna Pálsdótt-
ir, lýðheilsufræðingur, Inga Dóra Sigfús-
dóttir, prófessor, Margrét Lilja Guðmunds-
dóttir, félagsfræðingur hjá Rannsóknum
og greiningu, Birna Björnsdóttir, lýðheilsu-
fræðingur, dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir,
lektor við HR, og Jón Sigfússon sem
kynntu niðurstöðurnar. Fundurinn var vel
sóttur en hann var haldinn í húsakynnum
KFUM og KFUK við Holtaveg. Að lokinni
kynningu fóru fram umræður og spurn-
ingum úr sal var svarað.
Nokkrar niðurstöður úr
rannsókninni eru m.a. þessar:
• Meirihluti barna í 5., 6. og 7. bekk hefur
sterka sjálfsmynd og líður almennt vel.
• Börn, sem stunda íþróttir reglulega, eru
síður einmana en önnur börn.
Niðurstöður mennta- og menningarmálaráðuneytisins:
Hlutfall þeirra barna sem hreyfa sig
mikið hefur hækkað undanfarin ár
Til vinstri: Frá fund-
inum þar sem niður-
stöðurnar voru
kynntar. Til hægri:
Erlendur Kristjáns-
son, deildarstjóri í
mennta- og menn-
ingarmálaráðu-
neytinu.
• Mikill meirihluti nemenda í 5., 6. og 7. bekk
fær hjálp frá pabba sínum, mömmu eða
systkinum við heimanámið. Stelpur eru
fjölmennari í þeim hópi.
• Miklum meirihluta nemenda líður vel
heima hjá sér og hann ver drjúgum tíma
með foreldrum sínum.
• Hlutfall þeirra barna sem hreyfa sig mikið
hefur hækkað undanfarin ár, en hlutfall
þeirra sem hreyfa sig lítið sem ekkert hefur
líka hækkað.
• Um og yfir 70 prósent nemenda segjast
eiga marga vini. Nær enginn munur er á
kynjum í þessu tilliti. 7–10 af hundraði nem-
enda í 5.–7. bekk segjast fáa eða enga vini
eiga.
• Mikill meirihluti nemenda segist aldrei hafa
tekið þátt í stríðni/einelti í skóla. Stelpur
eru fjölmennari í þeim hópi.
• Tæplega 11 af hundraði nemenda finnst
námið of erfitt. Næstum jafnmörgum finnst
námið of létt.
• Hátt í fjórðungur nemanda segist engan
tíma nota í lestur annarra bóka en skóla-
bóka. Strákar eru fleiri en stelpur í þessum
hópi.
• Um 92 af hverjum hundrað nemendum
eiga gsm-síma.
• Um og yfir 20% nemenda í 5.–7. bekk
segjast eiga erfitt með að sofna á kvöldin.
• Á um 17% heimila er talað annað tungu-
mál ásamt íslensku.
• Um 20% nemenda búa ekki með föður
sínum en um 5% ekki með móður.
• Hátt í 10% nemenda finnast þeir ekki
öruggir á skólalóðinni.