Skinfaxi - 01.08.2011, Síða 34
34 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Úr hreyfingunni
Á stjórnarfundi Ung-
mennafélags Íslands,
sem haldinn var 26.
september sl., var
ákveðið að 2. Lands-
mót UMFÍ 50+
verði í umsjón Ung-
mennasambands Kjalarnesþings, UMSK,
með mótsstað í Mosfellsbæ. Fimm sam-
bandsaðilar sóttu um að halda mótið. Auk
UMSK voru það USAH með Blönduós sem
mótsstað, UMSB með Borgarnes, UÍA með
Norðfjörð og UMSE með Dalvík sem móts-
stað. Mat stjórnar var að allir umsækjend-
ur væru vel í stakk búnir til að taka að sér
framkvæmd mótsins en þetta varð niður-
staðan að þessu sinni. Mótið er sérstak-
lega ætlað einstaklingum 50 ára og eldri.
Framkvæmd mótsins verður í höndum
Ungmennafélags Íslands og UMSK í sam-
starfi við Mosfellsbæ. Fyrsta Landsmót
UMFÍ 50+ var haldið á Hvammstanga sl.
sumar.
Stefnum á fjölbreytni
„Þetta er mjög athyglisvert og spennandi
verkefni og þá alveg sérstaklega að fá að
2. Landsmót UMFÍ 50+ verður í Mosfellsbæ
halda annað mótið þar sem þarf að sanna
tilvist þess. Við treystum okkur í það á þessu
stóra markaðssvæði og stórt héraðssam-
band á bak við okkur. Við stefnum á fjöl-
breytni og höfum þegar fengið fyrir-spurnir
eins frá kraftlyftingafélögum og strand-
blaki en þessir aðilar vilja koma og vera
með sínar greinar. Það stefnir í fjölbreytni
en að sjálfsögðu verður grunngreinunum
haldið inni. Aðstaðan hjá okkur býður upp
á það að við getum keppt í hverju sem er,“
sagði Valdimar Leó Friðriksson, formaður
UMSK, í samtali við Skinfaxa.
Valdimar Leó sagði samvinna yrði höfð
við heilsuklasann Heilsuvin. Nokkrir tugir
fyrirtækja og félagasamtaka í Mosfellsbæ
munu kynna starfsemi sína í leiðinni og
vekja athygli á heilsurækt almennt.
„Það verða jákvæð samhliðaáhrif á milli
keppnisgreina, Landsmóts og heilsuefl-
ingar í gegnum Heilsuvin og ég hef trú á
því að við getum tvöfaldað mótið. Aðal-
atriðið er samt að festa mótið í sessi en
við erum mjög ánægð með að þetta mót
skuli verða haldið,“ sagði Valdimar Leó
Friðriksson.