Skinfaxi - 01.08.2011, Síða 35
SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands 35
Kári Steinn Karlsson, hlaupari úr Breiða-
bliki, setti 25. september sl. glæsilegt
Íslandsmet í Berlínarmaraþoninu en hann
hljóp vegalengdina á 2:17,12 klukkustund-
um. Þessi tími tryggir honum jafnframt
keppnisrétt á Ólympíuleikunum í London
á næsta ári. Kári Steinn kom 17. í mark og
6. í sínum aldursflokki. Um 40.000 hlaup-
arar tóku þátt í hlaupinu sem er eitt það
stærsta sem haldið er í heiminum ár hvert.
Kári Steinn sló 26 ára gamalt Íslands-
met Sigurðar Péturs Sigmundssonar en
það setti hann einmitt í Berlínarmaraþon-
inu árið 1985.
Jafnt og gott hlaup
Kári Steinn er fyrsti íslenski karlmaðurinn
sem tryggir sér keppnisrétt í maraþon-
hlaupi á Ólympíuleikum. Martha Ernsts-
dóttir tók fyrst Íslendinga þátt í maraþon-
hlaupi á Ólympíuleikum þegar hún tók
þátt í leikunum í Sydney fyrir 11 árum.
Fyrstur í mark í hlaupinu á nýju heims-
meti var Patrik Makua frá Kenýa en hann
rann skeiðið á 2:03:38 klst.
Hlaupið hjá Kára Steini var nokkuð jafnt
en millitímar hans voru sem hér segir:
• 5 km 16:08 mín. • 10 km 32:20 mín.
• 15 km 48:25 mín. • 20 km 1:04:28 klst.
• 25 km 1:20:31 klst. • 30 km 1:26:43 klst.
• 25 km 1:53:03 klst. • 40 km 2:10:02 klst.
Fyrri hluta hlaupsins fór hann á 1:07:58
klst. en þann síðari á 1:09:15 klst. Meðal-
hraði Kára Steins var um 18,45 km á klst.
og að jafnaði fór hann hvern km á 3:15 mín.
Kári Steinn Karlsson náði frábærum árangri í Berlínarmaraþoninu:
Sló 26 ára gamalt met og vann
sér keppnisrétt á Ólympíuleikum
Hlakka til komandi verkefna
„Ég er nýbyrjaður að æfa aftur en ég tók
mér þriggja vikna hvíld eftir Berlínarmara-
þonið. Ég hvíldi mig vel líkamlega og ekki
síst andlega áður en stífar æfingar tóku við
að nýju. Stefnan núna er hlaupa götuhlaup
hér heima en í kringum áramótin er mein-
ingin að fara til Suður-Afríku í æfingabúðir.
Í lok janúar er stefnan að taka þátt í Miami-
maraþoninu. Síðan taka við æfingar áfram
og 10 km og hálfmaraþonhlaup í vor. Ég
er með þessu að vinna í hraða og styrk sem
skilar sér vel í sjálfu maraþoninu. Ég ætla
síðan í aðrar æfingabúðir rétt fyrir Ólympíu-
leikana. Þetta leggst vel í mig, ég er í góðu
standi og hlakka til komandi verkefna,“
sagði Kári Steinn Karlsson í spjalli við
Skinfaxa.
Efri myndi: Kári Steinn fyrir framan Branden-
borgarhliðið í Berlin. Neðri mynd: Kári Steinn
ásamt Gunnari Páli Jóakimssyni, en hann er
einn af þekktari langhlaupurum Íslendinga.
Kári Steinn Karlsson sló 26 ára
gamalt Íslandsmet í maraþon-
hlaupi í Berlínarmaraþoninu.
Velkomin
á Selfoss
Verslunarmannahelgina 3.–5. ágúst 2012