Skinfaxi - 01.08.2011, Blaðsíða 38
38 SKINFAXI – tímarit Ungmennafélags Íslands
Eftirtaldir aðilar
styðja starfsemi
Ungmennafélags Íslands:
Blönduós
Glaðheimar, sumarhús, Melabraut 21
Hótel Blönduós, Aðalgötu 6
Samstaða, skrifstofa verkalýðsfélaga,
Þverholti 1
Húnavatnshreppur, Húnavöllum
Sauðárkrókur
Doddi málari ehf., Raftahlíð 73
Fisk – Seafood hf., Eyrarvegi 18
Kaupfélag Skagfirðinga, Ártorgi 1
K–Tak ehf., Borgartúni 1
Verslun Haraldar Júlíussonar,
Aðalgötu 22
Vinnuvélar Guðmundar og Skúla sf.,
Borgarröst 4
Varmahlíð
Akrahreppur, Skagafirði
Akureyri
Eining – Iðja, www.ein.is, Skipagötu 14
Haukur og Bessi tannlæknar
Hlíð hf., Kotárgerði 30
Ísgát ehf., Laufásgötu 9
Skóhúsið – Bónusskór, Brekkugötu 1a
Vélsmiðjan Ásverk ehf., Grímseyjargötu
Kjarnafæði hf., Fjölnisgötu 1b
Grenivík
Brattás ehf., Ægissíðu 11
Dalvík
O. Jakobsson ehf., Dalvík, Ránarbraut 4
Húsavík
Jarðverk ehf., Þingeyjarsveit, Birkimel
Laugar
Gistiheimilið Stóru Laugar,
Stóru Laugum
Sparisjóður Suður–Þingeyinga, Kjarna
Laugum
Þingeyjarsveit, Kjarna
Mývatn
Eldá ehf., Helluhrauni 15
Kópasker
Vökvaþjónusta Eyþórs ehf., Bakkagötu 6
Þórshöfn
Geir ehf., Sunnuvegi 3
Langanesbyggð, Fjarðarvegi 3
Vopnafjörður
Hólmi NS–56 ehf., Hafnarbyggð 23
Vopnafjarðarhreppur, Hamrahlíð 15
Egilsstaðir
Birta ehf., Egilsstöðum og Reyðarfirði,
Miðvangi 2-4
Bílamálun Egilsstöðum ehf.,
Fagradalsbraut 21-23
Héraðsprent ehf., Miðvangi 1
Hitaveita Egilsstaða og Fella ehf.,
Einhleypingi 1
Miðás hf. (Brúnás innréttingar), Miðási 9
Seyðisfjörður
Seyðisfjarðarkaupstaður, Hafnargötu 44
Neskaupstaður
Rafgeisli Tómas R. Zoëga ehf.,
Hafnarbraut 10
Síldarvinnslan hf., útgerð, Hafnarbraut 6
HVAR
ERU ÞAU
Í DAG?
Trausti
Sveinbjörnsson
Það munu eflaust margir eftir Trausta
Sveinbjörnssyni, hlaupara úr UMSK, en
hann var áberandi á hlaupabrautinni á
sínum yngri árum. Trausti setti m.a. lands-
mótsmet í 400 metra hlaupi á Landsmóti
UMFÍ á Eiðum 1968. Á árunum 1968–1987
keppti hann undir merkjum Breiðabliks.
Hann keppti aðallega í 400 metra grinda-
hlaupi og einnig í 200 og 400 metra hlaup-
um. Trausti var í landsliðinu á árunum
1967–1971 og tók þátt í þremur Evrópu-
bikarmótum.
„Ég er ennþá að hlaupa í öldungaflokki en
ég tók upp þráðinn að nýju 1986 og hef ekki
hætt síðan. Ég tók fyrst þátt í Norðurlanda-
móti öldunga í Malmö 1986 og síðan þá hef
ég tekið þátt í um 20 Norðurlanda- og Evrópu-
mótum,“ sagði Trausti Sveinbjörnsson, sem
orðinn er 65 ára gamall, í samtali við Skinfaxa.
Hleyp nánast á hverjum degi
Trausti sagði að íþróttir hefðu alltaf átt hug
hans allan en synir hans hefðu smitast af
pabba sínum og líka farið í frjálsar íþróttir.
„Ég hleyp nánast á hverjum degi í hádeginu
með hlaupahópi í Laugardalnum. Það eru
bara fimmtudagarnir sem detta út. Hlaupin
gefa mér mikið og hafa alla tíð verið stór part-
ur af lífi mínu þannig að eiginkonunni hefur
stundum þótt nóg um. Það má segja að ég
hafi verið viðloðandi hlaupin frá 1959 þegar
„Hlaupin hafa
alla tíð verið
stór partur
af lífi mínu“
ég tók fyrst þátt í Víðavangshlaupi Hafnar-
fjarðar og þar vann ég sigur í yngsta flokkn-
um. Þessi byrjun kveikti í mér og síðan hef
ég ekki hætt,“ sagði Trausti.
Trausti sagði aðstæður allar hefðu tekið
miklum stakkaskiptum hin síðari ár. Það
hefði verið mikil breyting þegar frjálsíþrótta-
höllin í Laugardal var tekin í notkun. „Þar fæ
ég að stinga mér inn þegar veðrið er brjálað,“
sagði Trausti.
Bjartir tímar fram undan
„Mér finnast vera bjartir tímar fram undan í
frjálsum íþróttum. Bættar aðstæður eru mikil
lyftistöng fyrir íþróttina og breiddin er alltaf
að verða meiri,“ sagði Trausti.
Að ofan: Trausti á
palli eftir 300 m grinda-
hlaup. Sigurvegarinn,
Seppo Putkinen frá
Finnlandi er marg-
faldur heims-og
Evrópumeistari í sín-
um flokki. Annar varð
Arne Warheim frá
Noregi, en hann varð
Norðurlandameistari
fyrir tveimur árum.
Trausti varð svo þriðji,
en hann hefur 5 sinn-
um orðið Norðurlanda-
meistari í sínum flokki.
Til hægri: Trausti vel
á undan Kari Suo-
niitty frá Finnlandi,
en hann lenti í 4.
sæti.