Organistablaðið - 01.05.1969, Side 15

Organistablaðið - 01.05.1969, Side 15
inn. Maður varð sannfærður um óskeikulleik þessarar sterku per- sónu, og hann lék sér með orgelið, eins og sá einn getur gert, sem fullt vald og myndugleik hefur. En það var erfitt að spila í tímunum, eftir að hann hafði lokið sinum stórfengilega orgelleik. Þá hafði hann það lengi vel fyrir sið, að safna saman nemendum sínum eina kvöldstund í viku Stieglilzerns Hof í Leipzig, eða í Cafe- Baum, þar sem Schumann var vanur að sitja með vinum sínum í gamla daga. Voru þær samverustundir mjög skemmtilegar, og mátti margt læra og um marga hluti fræðast á slíkum kvöldum. Stundum var Max Reger viðstaddur á þessum samkomum, og þótti það ekki spilla ánægjunni. Oftast þögðu þá nemendurnir, en hlustuðu á þessi tvö mikilmenni tónlistarinnar tala um listina, eða það, sem oftar skeði, segja nýjustu kýmnissögur, en Reger var frægur fyrir fyndni sína og gamansögur. Um leið og Straube varð organisti við Thomas- kirkjuna, var honum falin kórstjórn Bachfélagsins í Leipzig. Þess- um kór stjórnaði hann lengi og hóf hann til vegs og virðingar. Með honum flutti hann árlega Mattheusar-passíu Bach og fjölda annarra merkra og voldugra kórverka með hljómsveit. Straube var óviðjafn- anlegur sem stjórnandi kórs og hljómsveitar, og að vera á kóræf- ingum hjá honum og fá að kynnast vinnubrögðum hans var lær- dómsríkt. Enginn getur gleymt því, sem á það hefur hlustað, þegar hann t. d. í miðri æfingu lagði frá sér taktstokkinn og byrjaði að útskýra verkið, sem verið var að æfa, t. d. Mattheusar-passíu Bach, það voru hátíðleg augnablik. Hann hafði þannig lag á kórnum, að kórinn laut algerlega vilja lians, en strangur var hann á æfingun- um, listaverkinu þurfti fyrst og fremst að gjöra góð skil, allt per- sónulegt varð að víkja. Hann heimtaði af öllum, að þeir gæfu sitt bezta, en sjálfur gaf hann æfinlega mest allra. Verkin flutti Bach- félagið annað hvort í konserthöllinni eða í Thomaskirkjunni, og lék hið fræga „Gewandhausorkester“ alltaf með. Eru þessir tónleikar einhverjir þeir dásamlegustu, sem ég hef heyrt um dagana og ógleymanlegir. 1918 var Straube skipaður í eina æðstu tónlistarstöðu Leipzig- borgar, þ. e. staðan sem Thomaskantor, söngstjóri Thomaskirkj- unnar. Þeirri stöðu gegndi Bach á sínum tíma og er hún síðan víð- frægasta kirkjumúsikstaða í heiminum. Er því, sem skiljanlegt er, vandað mjög til þeirrar vegsemdar, en valið gat ekki orðið á annan ORGANISTABLAÐIÐ 15

x

Organistablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.