Organistablaðið - 01.05.1969, Blaðsíða 22

Organistablaðið - 01.05.1969, Blaðsíða 22
Björn Kristjánsson. Björn Kristjánsson fæddist 26. febr. 1858 á Hreiðurborg í Flóa. Hann ólst upp við erfið kjör eins og altítt var um unglinga á þeim tímum En hann var snemma duglegur og fylginn sér, hvort heldur var við fiskidrátt eða vinnu til sveita. Björn var fjölhæfur gáfumaður. Hann lærði skósmíði og stundaði þá iðn um skeið. Hann setti á stofn verzlun í Reykjavík og dafn- aði hún vel og naut trausts og álits. Ilann stundaði bókhaldsstörf og var um tíma bæjargjaldkeri i Reykjavík. Árið 1900 varð hann bankastjóri i Landsbankanum. Björn átti mörg áhugamál. Hann hafði mikinn áhuga á málmvinnslu og á fullorðinsárum nam hann steina- fræði í Þýzkalandi. Björn tók mikinn þátt í stjórnmálum og sat á Alþingi yfir 30 ár, og 1917 þegar fyrst var mynduð þriggja manna ríkisstjórn hér á landi varð hann ráðherra í ráðuneyti Jóns Magnússonar. Björn var gæddur góðum tónlistar- hæfileikum. Ungur lærði hann að leika á harmoníum. Og 1878—’79 og aftur 1882—’83 dvaldi hann i Kaupmanna- höfn og lærði söngfræði. Ritaði hann af þekkingu og glöggskyggni ýmislegt um tónlistarmálefni. — Árið 1888 gaf hann út söngfræði — Stafrof söngfræð- innar — og kom sú bók út aftur 1922. Er hún einhver hin ítarlegasta bók um söngfræði sem gefin hefur verið út á Islandi. Björn var 3 ár kirkjuorganisti á Akureyri. Ifann samdi nokkur söng- lög, eru tvö þeirra prentuð í Islenzku söngvasafni og eitt (sálmalag) í Organtónum Brynjólfs Þorlákssonar. Árið 1891 kom út lítil bók. Á titilsíðu stendur: „Nokkur fjórrödduð sálmalög. Viöbót og umbót við Kirkjusöngsbæk- ur Jónasar Helgasonar. Safnað hafa og búið til prentunar síra St. Thorar- ensen og Björn Kristjánsson, Ileykja- vík. Á kostnað Sigfúsar Eymundssonar. ísafoldarprentsmiðja. 1891.“ — I þessu hefti eru tvö lög, sem kölluð eru „Is- lenzk lög“. En Sigf. Eym. segir i for- mála hver sé höfundur, en það er Björn Kristjánsson. Þessi lög, „I dag er glatt í döprum hjörtum" og „Ó, blessa Guð, vort feðrafrón" eru nú bæði í sálma- söngsbók vorri og eru oft sungin við messur og aðrar kirkjulegar athafnir. Björn dó 13. ágúst 1939. (Greinarkorn þetta átti að birtast í siðasta tbl. en varð — ásamt fleiru — að biða þessa blaðs). P. 11. 22 ORGANISTABLAÐIÐ

x

Organistablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.