Organistablaðið - 01.05.1969, Blaðsíða 19
Sigurður Þórðarson.
SigurSur ÞórSarson tónskáld lézt i
Reykjavik 27. september síðastliðinn
Hann var fæddur á Gerðhömrum i
Dýrafirði 8. april 1895. Hann útskrif-
aðist úr Verzlunarskóla Islands 1915
og stundaSi um skeiS verzlunarstörf.
Árið 1931 varð hann skrifstofustjóri
Ríkisútvarpsins og gengdi þeim starfa
til 1966. Var hann á þeim árum oft-
sinnis settur útvarpsstjóri.
Sigurður stundaði tónlistarnám viS
Konservatóríið í Leipzig 1916—1918
og seinna um eins árs skeiS í Vínar-
borg. Hann stjórnaSi söngfélaginu
„Þrestir" í HafnarfirSi 1924—1926. —
ÁriS 1926 stofnaSi hann Karlakór
Reykjavíkur og stjórnaSi honum til
1962 aS einu ári undan skildu. Með
Karlakór Reykjavíkur hélt Sigurður
arlega fjölda tónleika hér í Reykjavík
og oft víðsvegar úti um landiíi. Og
söngferSir fór hann með kórinn til út-
landa: 1935 til Noregs, Svíþjóðar,
Danmerkur og Færeyja, 1937 til Dan-
merkur, Þýzkalands, Tékkóslóvakíu og
Austurríkis, 1946 til Bandaríkjanna og
Kanada, 1953 til Norður-Afríku, Frakk-
lands, Monakó, Spánar og Portúgal, —
í þeirri ferS söng kórinn í Páfagarði
— og 1960 til Bandaríkjanna og Kan-
ada.
Mörg íslenzk tónskáld eiga Sigurði
að þakka fyrsta flutning ýmsra tón-
verka sinna. Og þess er vert að minn-
ast, að margir af þekktustu söngvur-
um okkar hafa byrjaS sóngferil sinn
meS því aS syngja undir stjórn hans.
Um tíma kenndi Sigurður við Söng-
skóla þjóSkirkjunnar.
Eftir Sigurð liggur fjöldi tónverka.
Eru það píanólóg, einsöngslög, karla-
kórslög, orkesturverk, Alþingishátíðar-
kantata, óperettan I álögum o. fl. o. fl.
Af kirkjulegum tónverkum má nefna
Messu fyrir einsöngvara og karlakór
meS píanó-undirleik og nokkrar kirkju-
kantötur, Partitu fyrir orgel yfir sálma-
lagiS Greinir Jesús um græna tréð,
sem oft hefur veriS leikin og var t. d.
flutt á 9. norræna kirkjutónlistarmót-
inu í Osló 1965. Loks er aS nefna
raddsetningar hans á gömlum Passíu-
sálmalögum sem komu út hjá Menn-
ingarsjóSi 1960. Hafði hann safnaS
u. þ. b. helmingnum af þeim — skrif-
að þau upp eftir ýmsum. En hin eru
úr þjóðlagasafni sr. Bjarna Þorsteins-
sonar.
SigurSur Þórðarson var einn af
frumherjum íslenzkra tónskélda og
einn afkastamesti þeirra á meSal.
ORGANISTABL.AÐIÐ 19