Organistablaðið - 01.05.1969, Qupperneq 19

Organistablaðið - 01.05.1969, Qupperneq 19
SigurÖur Þórðarson. Sigurður ÞórSarson tónskáld lézt í Reykjavík 27. septeraber síðastliðinn Hann var fæddur á Gerðhömrum i Dýrafirði 8. april 1895. Hann útskrif- aðist úr Verzlunarskóla íslands 1915 og stundaði um skeið verzlunarstörf. Árið 1931 varð hann skrifstofustjóri Ríkisútvarpsins og gengdi þeim starfa til 1966. Var hann á þeim árum oft- sinnis settur útvarpsstjóri. Sigurður stundaði tónlistarnám við Konservatóríið í Leipzig 1916—1918 og seinna um eins árs skeið í Vínar- borg. Hann stjórnaði söngfélaginu „Þrestir" í Hafnarfirði 1924—1926. — Árið 1926 stofnaði hann Karlakór Reykjavíkur og stjórnaði honum til 1962 að einu ári undan skildu. Með Karlakór Reykjavíkur hélt Sigurður árlega fjölda tónleika hér í Reykjavík og oft víðsvegar úti um landiíj. Og söngferðir fór hann með kórinn til út- landa: 1935 til Noregs, Svíþjóðar, Danmerkur og Færeyja, 1937 til Dan- merkur, Þýzkalands, Tékkóslóvakíu og Austurríkis, 1946 til Bandaríkjanna og Kanada, 1953 til Norður-Afríku, Frakk- lands, Monakó, Spánar og Portúgal, -—- í þeirri ferð söng kórinn í Páfagarði — og 1960 til Bandaríkjanna og Kan- ada. Mörg íslenzk tónskáld eiga Sigurði að þakka fyrsta flutning ýmsra tón- verka sinna. Og þess er vert að minn- ast, að margir af þekktustu söngvur- um okkar hafa byrjað söngferil sinn með því að syngja undir stjórn hans. Um tima kenndi Sigurður við Söng- skóla þjóðkirkjunnar. Eftir Sigurð liggur fjöldi tónverka. Eru það píanólög, einsöngslög, karla- kórslög, orkesturverk, Alþingishátíðar- kantata, óperettan í álögum o. fl. o. fl. Af kirkjulegum tónverkum má nefna Messu fyrir einsöngvara og karlakór með píanó-undirleik og nokkrar kirkju- kantötur, Partitu fyrir orgel yfir sálma- lagið Greinir Jesús um græna tréð, sem oft hefur verið leikin og var t. d. flutt ó 9. norræna kirkjutónlistarmót- inu i Osló 1965. Loks er að nefna raddsetningar hans á gömlum Passíu- sálmalögum sem komu út hjá Menn- ingarsjóði 1960. Hafði hann safnað u. þ. b. helmingnum af þeim — skrif- að þau upp eftir ýmsum. En hin eru úr þjóðlagasafni sr. Bjarna Þorsteins- sonar. Sigurður Þórðarson var einn af frumherjum íslenzkra tónskálda og einn afkastamesti þeirra á meðal. ORGANISTABl.AÐIÐ 19

x

Organistablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Organistablaðið
https://timarit.is/publication/787

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.