Organistablaðið - 01.05.1969, Blaðsíða 34
Kirkjukór LangholtssajnuSur
hélt tónleika í Háteigskirkju 27.
apríl sl. Söngstjóri var Jón Stefánsson
organleikari. Söng9kráin hófst með
Iögum eftir gamla meistara frá 1450
til 1785. — Síðan söng Elísabet Erl-
ingsdóttir einsöng með undirleik söng-
stjórans lög eftir Pál fsólfsson, Sigurð
Þórðarson og J. S. Bach. — Ritningar-
lestur annaðist Kristjón V. Ingólfsson
stud. theol. — Þá söng kórinn sex lög
eftir J. S. Bach og að lokum tvö lög
eftir Mozart, og aðstoðaði telpnakór
úr Vogaskólanum í einu lagi. — f
kórnum eru 24 félagar (13 kvenraddir
og 11 karlaraddir) og hefur kórinn
notið raddþjálfunar hjá Elísabetu Erl-
ingsdóttur. — Hljóðfæraleikararnir
Ásdís Þorsteinsdóttir (fiðla), Unnur
Sveinbjörnsdóttir (fiðla), Jakob Hall-
grímsson (viola), Gunnar Björnsson
(cello) og Jón Ólafur Sigurðsson
(orgel), aðstoðuðu í nokkrum lögum.
Jón Isleijsson hélt tónleika í Nes-
kirkju á skírdag með Kirkjukór Ncs-
sóknar. Var kórinn stækkaður við þetta
tækifæri svo að í söngsveitinni var 45
manns. Flutt var IV. þáttur úr óratór-
íinu „Friður á jörðu“ eftir Björgvin
Guðmundsson. Einsöngvarar voru Álf-
heiður Guðmundsdóttir, Guðrún Tóm-
asdóttir og Guðmundur Jónsson. Carl
Billich lék undir á píanó og Póll Hall-
dórsson á harmoníum. Prestar safnað-
arins sr. Frank Halldórsson og sr. Páll
Þorleifsson fluttu stuttar ræður. Jan
Moravec Iék á cello með undir-
leik Jóns fsleifssonar. Ao lokum sungu
allir viðstaddir saman sálm. — Tón-
leikarnir voru endurteknir í kirkju Ó-
háða safnaðarins 4. maí. Þar flutti sr.
Emil Björnsson erindi um Björgvin
Guðmundsson.
HIjóm plötuútgája.
Oss berast helgir hljómar, heitir
hljómplata sem Fálkinn hf. hefur gefið
út. Þar syngur Kirkjukór Akureyrar,
söngstjóri er Jakob Tryggvason og org-
anleikari Haukur Guðlaugsson, 14
kirkjulega söngva, eftir innlenda og
erlenda höfunda.
Unga kirkjan. Æskulýðssamband í
Hólastifti og Fálkinn hf. hafa gefið út
hljómplötu með Trúarsöngvum, aðal-
lega ætluðum ungu fólki. Kórar, ein-
söngvarar og hljóðfæraleikarar ó Ak-
ureyri, flytja fjölbreytt efni.
Karlakór IsafjarSar og Sunnukórinn
á ísafirði, söngstjóri Ragnar H. Ragn-
ar hafa sent frá sér hljómplötu með
16 lögum. Fálkinn hf. gaf plötuna út.
Efnisskráin hefst með tveim lögum
eftir Jónas Tómasson organista og tón-
skáld á ísafirði, sem kórarnir syngja
saman (blandaður kór). Siðan syngur
karlakórinn 7 lög eftir innlenda og
erlenda höfunda. Þá syngja kvenna-
raddir Sunnukórsins 8 lög. Einsöngv-
arar með kórunum eru Herdís Jóns-
dóttir, Margrét Finnbjörnsdóttir, Lauf-
ey Maríasdóttir, Gunnlaugur Jónasson
og Gunnar Jónsson.
Hljóðritunin er gerð i tilefni 70 ára
afmælis söngstjórans Ragnars H. Ragn-
ar og 20 ára starfs hans sem forustu-
manns í tónlistarmálum á ísafirði.
Hann er einnig skólastjóri Tónlistar-
skólans og organisti kirkjunnar.
Þrjátíu sönglög.
Organistablaðinu hefur verið sent
nýútkomið sönglagahefti — einsöngs-
lög og kórlög — eftir Pétur Sigurðs-
son söngstjóra og organleikara á Sauð-
árkróki. Sum þessara laga eru þjóð-
kunn, m. a. Erla við Ijóð Stefáns frá
34 ORGANISTABLAÐIÐ