Organistablaðið - 01.05.1969, Page 17
NORRÆNA KIRKJUTÓNLISTARMÓTIÐ
I janúar sl. tilkynntum við aðilum norræna kirkjutónlistarráðsins,
að vio gæ.um ekki haldið íyrirhugað mót á vori komanda sökuin
fjárskoris, en liyggðumst efna til þess á vori ársins 1970.
Vnað er, að margháttaður undirbúningur að þessu móti var í
gerð meðal frændjijóoanna. í ráði var, að hingað kæmu 2—3 kórar
auk einsöngvara og einleikara frá Norðurlöndum, háskólakór frá
Texas í Bandaríkjunum og einnig stóð til, að haldin yrði ráðstefna
á vegum alþjóðasamtaka lútherskra organleikara, Ecclesia cantans.
Það voru okkur mikil vonbrigði, að ekki skyldi fásL nægilegir
styrkir til þess að halda mótið eins og til stóð. í fjárlögum þessa
árs eru okkur ætlaðar 50 þús. krónur til mótsins, en borgarsjóður
Reykjavíkur synjaði algerlega um styrk.
Þegar organistamótið var haldið hér í Reykjavík árið 1952, veittu
bædi ríki og borg félaginu nægan styrk til þess, og þótti mótið vel
takast, og markaði það tímamót í kirkjutónlistarmálum landsins. Áð-
ur, og ]ió sérslaklega síðan, hafa íslenzkir organleikarar tekið þátt í
þessum mótum (en þau eru haldin 3.—4. hvert ár í höfuðborgum
Norðurlanda á víxl), komið á framfæri íslenzkum tónverkum og sótt
nýjar hugmyndir. Móttökur liafa allar verið mjög rausnarlegar og
sýnt var að við myndum ekki geta endurgoldið gestrisnina, þar eð
félag okkar er svo fámennt og ungt, að ekki hefur því tekizt að koma
sér upp neinum sjóðum til þess að standa straum af slíku fyrirtæki
sem þessu. Annað hvort verður aðstoð hins opinbera að koma til,
eða að félagið verður að segja sig úr samtökunum. — Þess má geta,
að organleikarafélögin á hinum Norðurlöndunum hafa fengið opin-
bera styrki til sinna móta, ýmist að miklu eða öllu leyti.
Við væntum þess, að úr rætist, svo að hægt verði að halda hið
10. norræna kirkjutónlistarmót hér vorið 1970, a. m. k. munum við
leggja okkur fram til þess að það megi takast. P. K. P.
ORGANISTABLAÐIÐ 17