Organistablaðið - 01.05.1969, Qupperneq 30
der Höh“, eftir Bach, sonata nr. 1
eftir Hindemith og Regers fantasían
yfir Sjá morgunstjarnan blikar blíð.
Rodrigues hefur góða manul- og pedal-
tækni en á nokkuð oftir að mótast,
eða finna sinn eigin stil.
Síðastir af þessum þrem orgeltón-
leikum voru á vegum Fé). ísl. organ
leikara. Organleikarinn að þessu sinni
var Jean-Luc Jaquenod, franskur organ-
leikari af yngri kynslóðinni, sem viða
hefur fengið góða dóma fyrir orgel-
leik sinn. Jean-Luc lék í Dómkirkj-
unni þann 14. febr. og í Laugarnes-
kirkju daginn eftir. Tónleikana í Dóm-
kirkjunni hof hann með tveim frönsk-
um verkum eftir Guilain og Couperin,
sem hann skilaði meistaralega, miðað
við þær aðstæður, sem fyrir hendi voru.
Nýnæmi var að heyra meðferð hans á
þeim Bach-verkum, sem seinni hluti
efnisskrárinnar samanstóð af (G-dúr
Fantasíunnni, Es-dúr sónötunni og
Partítunni „Sei gegrússet, Jesu
gútig“). Tæplega munu allir sammála
honum um túlkun þessara Bach-verka,
en eigi að síður forvitnislegt að kynn-
ast hans viðhorfum til Bachs. Jean-
Luc leggur t. d. ekki mikið upp úr
nákvæmum „fraseringum", né sam-
ræmingu í þeim. (Einn gagnrýnand-
inn sagði að vísu að „fraseringar“
hans hefðu verið mjög nákvæmar). —
Óvenjulegt er að heyra Bach leikinn
án þessarar nákvæmni. Augnablikið
virðist ráða hvernig „fraserað" er
hverju sinni, en það þarf meira en
meðal organleikara til þess að geta
leyft sér slíka hluti og Jean-Luc gat
það.
Ástæða væri til að geta fleiri tón-
leika, sem haldnir hafa verið hér í vet-
ur, en það verður að bíða.
R. B.
Úr bæ og byggð.
Úr fréttabréfi úr Húnavatnssýslu.
Guðmundur Kr. Guðnason,
Skagaströnd skrifar Obl. m.a.:
Kirkjukór Hólaneskirkju á Skaga-
strönd var stofnaður 20. apríl 1953 af
Kjartani Jóhannessyni söngkennara á
Stóra-Núpi í Árnessýslu. Stofnfélagar
voru 11. Organleikari var Páll Jónsson
skólastjóri.
....31. marz 1963 var vígð ný
kirkja á Höskuldsstöðum og söng kór-
inn við vígJuathöfnina ásamt söng-
fólki úr kirkjukór Höskuldsstaðasókn-
ar. Söngstjóri var Kjartan Jóhannesson
söngkennari, enda hafði hann æft kór-
inn fyrir þetta tækifæri. — Þá tók
kórinn þátt i söngmóti Kirkjukóra-
sambands Húnavatnsprófastdæmis, er
haldið var á Blönduósi þann 1. apríl
1962.
... .1965 urðu organleikaraskipti hjá
Kirkjukór Hólaneskirkju. Páll Jónsson
skólastjóri, sem verið hafði organleik-
ari kirkjunnar um fjölda ára skeið og
gegnt starfi sínu vel, lét af störfum
en við þvi tók ungur maður Kristján
A. Hjartarson og er hann mjög áhuga-
samur um starf sitt og væntir kórinn
mikils og góðs samstarfs við hann.
. ...Þann 3. febr. 1968 efndi kór-
inn til kvöldvöku í samkomuhúsinu á
Skagaströnd með fjölbreyttri skemmti-
skrá, kórsöng, tvísöng og fl. Undir-
leikari var Björg Björnsdóttir söng-
kennari frá Lóni í Kelduhverfi og hef-
ur kórinn notið aðstoðar hennar 3
undanfarna vetur.... G. S.
Eyjólfur Stefánsson
organisti á Ilöfn í Ifornafirði átti
40 ára starfsafmæli 1. desember sl.
30 ORGANISTABLAÐIÐ